Sjávarútvegurinn, SA og Viðskiptaráð vilja ekki auðlindaákvæðið í stjórnarskrá

Í umsögnum helstu hags­muna­gæslu­sam­taka lands­ins um stjórn­ar­skrár­frum­varp for­sæt­is­ráð­herra eru gerðar veru­legar athuga­semdir við hug­takið „þjóð­ar­eign“.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) telja frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá ýmsum ann­mörkum háð og leggja til að það nái ekki óbreytt fram að ganga.

Í frum­varpi Katrínar segir að auð­lindir nátt­úru Íslands til­­­heyri íslensku þjóð­inni. Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki séu háð einka­­­eign­­­ar­rétti séu þjóð­­­ar­­­eign og að eng­inn geti fengið þau gæði eða rétt­indi til eignar eða var­an­­­legra afnota. þá eigi að kveða á um gjald­­­töku fyrir heim­ildir til nýt­ingar í ábata­­­skyni með lög­­­um, ekki í stjórn­­­­­ar­­­skrá.

[links]Athuga­semdir sam­tak­anna, sem settar eru fram í umsögn um frum­varpið, snúa aðal­lega að setn­ingu þessa auð­linda­á­kvæðis í stjórn­ar­skrá og skil­grein­ingu á hug­tak­inu „þjóð­ar­eign“, sem SFS telur að sé ekki skýr sam­kvæmt frum­varp­inu. Undir umsögn­ina skrifar Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS.

Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) hafa líkað skilað inn umsögn um frum­varpið þar sem marg­hátt­aðar athuga­semdir eru gerðar við áform um setn­ingu auð­linda­á­kvæði. Samtökin leggja til að auð­linda­á­kvæðið verði ein­fald­lega fellt á brott úr frum­varp­inu. Undir umsögn SA skrifar Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna. Samtökin gera ekki athuga­semdir við önnur ákvæði frum­varps for­sæt­is­ráð­herra um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar.

Athuga­semdir SA eru af sam­bæri­legum toga og hjá SFS og sér­stak­lega fundið að notkun á hug­tak­inu „þjóð­ar­eign“. Í umsögn sam­tak­anna segir í flestum til­fellum sé talað um rík­is­eign í stjórn­ar­skrám sem á annað borð hafa að geyma ákvæði um eign­ar­hald að auð­lindum. „Aðeins stjórn­ar­skrár Eist­lands og Slóveníu hafa að geyma þjóð­ar­eign­ar­á­kvæði. Eina nágranna­landið sem hefur ákvæði af þessum toga í stjórn­ar­skrá sinni er Írland, en þar er talað um rík­is­eign. Það er vara­samt að leita fyr­ir­mynda að svona ákvæði til ríkja sem Ísland ber sig alla­jafna ekki saman við. Rétt­ar­kerfi þess­ara ríkja, þar á meðal stjórn­skip­un­ar­réttur og eign­ar­réttur, er allt ann­ars eðlis en á Íslandi. Miklu eðli­legra er að líta til Norð­ur­landa þar sem rétt­ar­farið er sam­bæri­legt því íslenska.“

[adspot]Samtökin telja að stýra eigi auð­linda­nýt­ingu með lögum, ekki með því að setja ákvæði í stjórn­ar­skrá. Þau til­taka einnig að þau taki undir „almenn sjón­ar­mið um auð­linda­nýt­ingu og nátt­úru­auð­lindir í þjóð­ar­eign sem reifuð eru í umsögn Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.“

Varanleiki heimilda hornsteinn fiskveiðistjórnunarkerfis

SFS segir í sinni umsögn að ótækt sé að byggja rétt á óljósri skil­grein­ingu á „þjóð­ar­eign“. „Skortur á skýr­leika hefur í för með sér óvissu sem er til þess fallin að hafa áhrif á fjölda sviða, enda er gert ráð fyrir því að allar nátt­úru­auð­lindir sem ekki eru háðar einka­eign­ar­rétti falli undir þessa teg­und eign­ar­halds. Þá er á það að benda að alls­endis óljóst er hvert sam­spil þessa frum­varps­á­kvæðis og 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar er.“

SFS segj­ast þó líka telja það mik­il­vægt að ná og við­halda sam­fé­lags­legri sátt og sam­stöðu um sjáv­ar­út­veg enda sé um að ræða und­ir­stöðu­at­vinnu­veg þjóð­ar­innar. „Sjálfbær nýt­ing, skyn­sam­leg stjórnun veiða og nýsköpun í sjáv­ar­út­vegi eru enda hagur bæði þeirra sem við atvinnu­greina starfa og þjóð­ar­innar allrar. Stöðugt og fyr­ir­sjá­an­legt lagaum­hverfi, þar sem hvati ríkir til þess að gera sem mest verð­mæti úr sam­eig­in­legri auð­lind, öllum til hags­bóta, án þess að gengið sé á rétt kom­andi kyn­slóða til hins sama, er nauð­syn­legt. Það hafa Íslend­ingar lagt áherslu á til þessa við fisk­veiði­stjórn og það er ljóst að margar þjóðir líta til Íslands þegar kemur að skipu­lagi veiða og vinnslu.“

Að mati sam­tak­anna sé var­an­leiki heim­ilda til nýt­ingar á nytja­stofnum sjávar einn af horn­steinum núver­andi fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfis. Festa og fyr­ir­sjá­an­leiki skipti miklu máli til að tryggja góða umgengni um auð­lind­ina, rekstr­ar­ör­yggi fyr­ir­tækja, atvinnu­ör­yggi starfs­manna, fjár­mögnun, láns­kjör fyr­ir­tækja og nýsköpun. „Óvissa um rekstr­ar­um­hverfi greinar í harðri alþjóð­legri sam­keppni mun bitna á sam­keppn­is­hæfni hennar og þar með þjóð­ar­hag til lengri tíma litið, þvert á mark­mið frum­varps­ins. Leggja ber sér­staka áherslu á að íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki selja um 98% af afla á alþjóð­legum mark­aði og að langan tíma hefur tekið að byggja upp sterka mark­aðs­stöðu og tryggja hæstu verð. Missi fyr­ir­tækin fót­festu þar mun taka langan tíma að ná henni aftur, náist hún yfir höfuð.“

Telja misráðið að setja auðlindaákvæði

Við­skipta­ráð Íslands er á svip­uðum slóðum í sinni umsögn og segir að skýra þurfi nátt­úru­verndar- og auð­linda­á­kvæði frum­varps­ins. Að mati ráðs­ins sé mis­ráðið að auð­linda­á­kvæðið fari óbreytt inn í stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins enda sé ekk­ert sem kemur í veg fyrir að mark­miðum með hinu nýja hug­taki „þjóð­ar­eign“ verði náð fram með almennri laga­setn­ingu. Við­skipta­ráð vill því að frum­varpið verði end­ur­skoðað með til­liti til athuga­semda sinna.

Að mati Við­skipta­ráðs liggur fyrir að ekki hafi náðst nægi­leg póli­tísk sátt um þær breyt­ingar sem frum­varpið hefur að geyma. „Þannig hafa þrjár breyt­ing­ar­til­lögur komið fram í þing­inu nú þegar og að þeim standa þing­menn úr fjórum stjórn­ar­and­stöðu­flokkum. Stjórn­ar­skrám er ætlað að stand­ast tím­ans tönn og löng hefð er fyrir því að breyt­ingar á stjórn­ar­skrám séu gerðar í sátt þvert á stjórn­mála­flokka. Við­skipta­ráð telur mik­il­vægt að stjórn­ar­skrár­breyt­ingar séu almennt gerðar í sem mestri sátt.“

Undir umsögn­ina ritar Agla Eir Vil­hjálms­dóttir, lög­fræð­ingur Við­skipta­ráðs, en fram­kvæmda­stjóri þess er Svan­hildur Hólm Vals­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár