Vilja að hægt verði að breyta stjórnarskrá án þingrofs

Þingmenn úr þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum, auk eins sem stendur utan flokka, vilja að breyt­ingar á stjórn­ar­skrá fari í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu til að und­ir­strika vald þjóð­ar­innar sem stjórn­ar­skrár­gjafa.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Alls 17 þing­menn frá Sam­fylk­ingu, Pírötum og Flokki fólks­ins, auk eins utan flokka, hafa lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við stjórn­ar­skrár­frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Ef breyt­ing­ar­til­lagan yrði sam­þykkt myndi verða hægt að breyta stjórn­ar­skrá án þing­rofs, en í dag þurfa tvö þing að sam­þykkja breyt­ingar á stjórn­ar­skrá áður en þær taka gildi.

[links]Samkvæmt breyt­ing­ar­til­lög­unni á að leggja frum­varp sem sam­þykkt hefur verið á Alþingi um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu til að und­ir­strika vald þjóð­ar­innar sem stjórn­ar­skrár­gjafa. Til þess að það verði hægt vilja þing­menn­irnir að nýrri grein verði bætt við stjórn­ar­skránna þess efnis. Í grein­inni á enn fremur að segja að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan eigi að „fara fram í fyrsta lagi sex mán­uðum og í síð­asta lagi níu mán­uðum eftir sam­þykkt frum­varps­ins á Alþingi. Sé frum­varpið sam­þykkt með meiri hluta greiddra atkvæða í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni skal það stað­fest af for­seta lýð­veld­is­ins innan tveggja vikna og er þá gild stjórn­ar­skip­un­ar­lög.“

Katrín mun mæla fyrir frum­varpi sínu um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar á Alþingi í dag. Samkvæmt frum­varp­inu munu nokkur atriði stjórn­ar­skrár­innar taka breyt­ingum, verði það sam­þykkt. Þar er um að ræða atriði sem fjalla um for­seta Íslands, rík­is­stjórnir, verk­efni fram­kvæmd­ar­valds, umhverf­is­vernd, auð­lindir í nátt­úru Íslands og íslensk tunga.

Breyt­ing­ar­til­lagan er lögð fram af Loga Ein­ars­syni, Andrési Inga Jónssyni, Helga Hrafni Gunn­ars­syni, Ingu Sæland, Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur, Birni Leví Gunn­ars­syni, Ágústi Ólafi Ágústs­syni, Jóni Þór Ólafs­syni, Guðjóni S. Brjáns­syni, Söru Elísu Þórð­ar­dóttur, Guðmundi Andra Thors­syni, Smára McCarthy, Helgu Völu Helga­dóttur, Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, Oddnýju G. Harð­ar­dóttur, Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur og Guðmundi Inga Krist­ins­syni.

Vilja öðruvísi auðlindaákvæði

Þetta er ekki eina breyt­ing­ar­til­lagan sem lögð hefur verið fram vegna frum­varps Katrínar. Tvær aðrar, sem snúa að auð­linda­á­kvæði frum­varps­ins, höfðu þegar komið fram.

[adspot]Í frum­varpi Katrínar segir að auð­lindir nátt­úru Íslands til­­heyri íslensku þjóð­inni. Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki séu háð einka­­eign­­ar­rétti séu þjóð­­ar­­eign og að eng­inn geti fengið þau gæði eða rétt­indi til eignar eða var­an­­legra afnota. þá eigi að kveða á um gjald­­töku fyrir heim­ildir til nýt­ingar í ábata­­skyni með lög­­um, ekki í stjórn­­­ar­­skrá.

Sami hópur og vill afnema þörf­ina á þing­rofi til að breyta stjórn­ar­skrá lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu á þessu ákvæði í lok síð­asta mán­aðar.

Hún felur meðal ann­­ars í sér að bannað yrði að veð­­setja auð­lindir sem séu sam­eig­in­­leg og ævi­var­andi eign þjóð­­ar­inn­­ar. Það gæti haft mikil áhrif á stöðu mála innan sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ins ef veið­i­­heim­ildir yrðu inn­­­kall­aðar með ein­hverjum hætti og leigðar út að nýju, þar sem stór hluti úthlut­aðs kvóta hefur verið veð­­settur til að kaupa upp veið­i­­heim­ildir ann­­arra eftir að slíkt var leyft með lögum árið 1997. Afleið­ing þessa hefur verið mikið sam­­þjöppun í sjá­v­­­ar­út­­­vegi, en sam­­kvæmt nýj­­ustu tölum halda tíu útgerðir á um helm­ing alls úthlut­aðs kvóta og fjórar blokkir innan geirans halda á tæp­­lega 43 pró­­sent hans.

Til­lagan felur líka í sér að fest yrði í stjórn­­­ar­­skrá að stjórn­­völd geti leyft afnot eða hag­nýt­ingu auð­linda „gegn eðli­­legu gjaldi og til til­­­tek­ins hóf­­legs tíma í senn.“

Afnot verði aldrei ótímabundin

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, lagði einnig fram breyt­ing­ar­til­lögu vegna auð­linda­á­kvæð­is­ins. Til­laga Þor­gerðar Katrínar gengur ann­ars vegar út á að orð­inu „var­an­lega“ verði breytt í „ótíma­bundna“ í öðrum máls­lið annar máls­greinar frum­varps Katrín­ar. Sá liður myndi í kjöl­farið hljóma svona: „Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki eru háð einka­­eign­­ar­rétti eru þjóð­­ar­­eign. Eng­inn getur fengið þessi gæði eða rétt­indi tengd þeim til eignar eða ótíma­bund­inna afnota.“

Með þessu yrði fest í stjórn­ar­skrá að úthlutun á t.d. fisk­veiði­kvóta væri tíma­bund­in, og þar með inn­kall­an­leg. Eins og sakir standa í dag er kvóta úthlutað til vörslu­að­ila hans til ótíma­bund­inna afnota.

Hins vegar vill Þor­gerður Katrín að í stað þess að síð­asti máls­liður þriðju máls­greinar ákvæð­is­ins orð­ist svona: „Með lögum skal kveða á um gjald­­töku fyrir heim­ildir til nýt­ingar í ábata­­skyni“ segi í hon­um: „Með lögum skal kveða á um eðli­legt end­ur­gjald fyrir tíma­bundnar heim­ildir til nýt­ingar í ábata­skyn­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár