Framlag úr fortíðinni skipti sköpum í baráttunni fyrir nýrri stjórnarskrá

Samtök kvenna um nýja stjórn­ar­skrá safn­aði nýverið yfir 43 þús­und und­ir­skriftum þar sem Alþingi var hvatt til að klára sam­þykkt á nýju stjórn­ar­skránni. Átakið vakti víða athygli og var mjög sýni­legt. Kjarninn hefur fengið aðgang að bók­haldi þess.

Samtök kvenna um nýja stjórn­ar­skrá, sam­tök sem hafa unnið að því að kynna nýja stjórn­ar­skrá sem félagið telur að hafi verið sam­þykkt í ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í októ­ber 2012, réðst nýverið í umfangs­mikið verk­efni. Síð­ast­liðið sumar ákvað stjórn félags­ins, í sam­starfi við Stjórn­ar­skrár­fé­lagið, að ráð­ast í und­ir­skrifta­söfnun þar sem mark­miðið var að safna að minnsta kosti 25 þús­und und­ir­skriftum til að hvetja Alþingi til að klára sam­þykkt nýju stjórn­ar­skrár­innar.

Átakið tókst vonum framar.

Þegar und­ir­skrift­irnar voru afhentar Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og öðrum full­trúum stjórn­mála­flokka í síð­ustu viku, þegar átta ár voru liðin upp á dag frá því að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan hafði farið fram, höfðu 43.423 skrifað undir. Verk­efnið hafði skilað því að Samtökum kvenna um nýja stjórn­ar­skrá tókst að ná í 74 pró­sent fleiri und­ir­skriftir en upp­haf­lega var stefnt að.

Samhliða tókst að end­ur­vekja umræðu um það ferli sem félagið, og þeir sem að því standa, hafa barist fyrir að verði við­ur­kennt sem hið rétta til að smíða nýjan sam­fé­lags­sátt­mála. Það er ferli sem hófst með tveimur Þjóð­fundum, sem haldnir voru 2009 og 2010. Það leiddi síðan til kosn­inga til stjórn­laga­þings og síðar til skip­unar stjórn­laga­ráðs eftir að kosn­ingin á stjórn­laga­þingið var dæmd ólög­mæt. Það ráð birti svo fram frum­varp um inni­hald nýrrar stjórn­ar­skrár og það er skjalið sem flestir stuðn­ings­menn mál­stað­ar­ins telja að sé hin nýja stjórn­ar­skrá. Hin ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fór svo fram 20. októ­ber 2012.

Um var að ræða alls sex spurn­ingar en sú fyrsta var hvort við­kom­andi vildi að til­­­lögur stjórn­­­laga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar frum­varpi að nýrri stjórn­­­­­ar­­­skrá. Alls sögðu 64,2 pró­­­sent þeirra sem greiddu atkvæði já við þeirri spurn­ingu. Kjör­­­sókn var 49 pró­­­sent.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis tók frum­varpið svo til með­ferðar, gerði á því breyt­ingar og lagði fram á þing­inu. Þar tókst ekki að koma því í gegn fyrir kosn­ing­arnar 2013 og þannig hafa mál staðið síðan þá.

Tókst að endurvekja draug sem draugabanar töldu úr sögunni

Hinn mikla athygli sem und­ir­skrifta­söfnun Samtaka kvenna um nýja stjórn­ar­skrá hefur náð hefur hins vegar leitt af sér að málið er kyrfi­lega komið á dag­skrá að nýju. Samband ungra Sjálf­stæð­is­manna (SUS) réð­ust til að mynda í eigin her­ferð gegn nýju stjórn­ar­skránni sem það kall­aði „stað­reynda­vakt um íslensku stjórn­ar­skrána, breyt­ingar á stjórn­ar­skránni, breyt­inga­til­lögur og annað sem að stjórn­ar­skránni snýr“ á vef­síð­unni www.stjornarskra.com.

Í til­kynn­ingu sagði SUS að með þessu vildi sam­bandið „leggja sitt af mörkum til að umræða um stjórn­ar­skrár­mál sé byggð á því sem rétt er og finna má stoð fyrir á vef Alþingis og í öðrum opin­berum gögnum en ekki á ein­staka skoð­unum eða rang­færsl­u­m.“

Fleiri and­stæð­ingar breyt­inga á stjórn­ar­skrá hafa síðan látið á sér kræla í opin­berri umræðu. Því fleiri sem und­ir­skrift­irnar urðu, bætt­ust fleiri raddir, sér­stak­lega úr Sjálf­stæð­is­flokknum, við í hóp þeirra sem töldu mál­inu allt til for­áttu og vörðu gild­andi stjórn­ar­skrá.

Tilraun til málamiðlunar hlýtur lítinn hljómgrunn

Það skipti líka máli að í stjórn­ar­sátt­mála þeirrar óvenju­legu rík­is­stjórnar sem nú situr að völdum – skipuð flokkum frá vinstri, yfir miðju og til hægri – kom fram að rík­is­stjórnin myndi „halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í þverpóli­tísku sam­starfi með aðkomu þjóð­ar­innar og nýta meðal ann­ars til þess aðferðir almenn­ings­sam­ráðs.“

Þeirri vinnu er nú lokið og hyggst Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra leggja fram frum­vörp um nokkrar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi þingi, en sem venju­legur þing­maður. Hún aug­lýsti eftir með­flutn­ings­mönnum í við­tali við Kastljós í síð­ustu viku, en enn sem komið er hefur eng­inn gefið sig fram.

Þess í stað lögðu alls 15 þing­menn Sam­fylk­ingar, Pírata, Flokks fólks­ins og tveir utan flokka fram eigið frum­varp til stjórn­skip­un­ar­laga á Alþingi sem byggir á til­lögum stjórn­laga­ráðs að nýrri stjórn­ar­skrá, en með þeim breyt­ingum sem stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd gerði á því 2013.

Við­mæl­endur Kjarnans telja litlar sem engar líkur á því að þorri þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks, eða nokkur þing­manna Mið­flokks, muni styðja veg­ferð for­sæt­is­ráð­herra. Viðreisn vill meiri breyt­ingar en ekki jafn miklar og settar eru fram í frum­varpi stjórn­laga­ráðs. Og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er þarna ein­hvers staðar á milli.

Ekkert bendir til þess eins og er, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans úr hópi þing­manna víða að úr hinu póli­tíska lit­rófi, að frum­vörp for­sæt­is­ráð­herra eigi mögu­leika á braut­ar­gengi, að minnsta kosti ekki öll. Að óbreyttu er lík­leg­asta nið­ur­staðan sú að litlar eða engar breyt­ingar verði gerðar á stjórn­ar­skránni áður en að kjör­tíma­bil­inu lýkur í sept­em­ber á næsta ári.

Settu markmið í samræmi við nýja stjórnarskrá

Sú nið­ur­staða hefur blasað við sem sú lík­leg­asta nokkuð lengi, sér­stak­lega vegna and­stöðu við breyt­ingar hjá Sjálf­stæð­is­flokknum, stærsta flokki lands­ins sem fékk 25,3 pró­sent greiddra atkvæða í síð­ustu þing­kosn­ingum.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er að reyna að finna málamiðlunarflöt í stjórnarskrármálum. Það virðist ekki vera að ganga.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra er að reyna að finna mála­miðl­un­ar­flöt í stjórn­ar­skrár­málum. Það virð­ist ekki vera að ganga.

Við þær aðstæður réð­ust Samtök kvenna um nýja stjórn­ar­skrá, í sam­vinnu við Stjórn­ar­skrár­fé­lag Íslands, í sitt und­ir­skrift­ar­verk­efni. Ástæða þess að markið var upp­haf­lega sett við 25 þús­und und­ir­skriftir var að þá myndu tíu pró­sent kjós­enda hafa skrifað undir áskor­un­ina. Samkvæmt nýju stjórn­ar­skránni hefði sá fjöldi getað lagt fram frum­varp á Alþingi. Til að tryggja áreið­an­leika und­ir­skrifta var kraf­ist raf­rænnar und­ir­rit­unar þeirra sem skrif­uðu undir, sem er ekki vana­lega krafa í und­ir­skrifta­söfn­unum.

Vinnan við verk­efnið hófst af fullu í byrjun síð­asta sum­ars. Allt starf Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins er unnið í sjálf­boða­vinnu en félags­menn töldu að til þess að ná nægj­an­legri athygli þá þyrfti fjár­muni til að kosta birt­ingu á efni frá félag­inu í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum þar sem vakin væri athygli á söfn­un­inni.

Þess vegna var farið að safna.

Fjár­öfl­unin var með ýmsum hætti. Mest áhersla var lögð á fram­lög frá ein­stak­lingum, fram­lög vegna sölu bóka og vegna sölu á töskum og bolum. Fyrstu fram­lögin komu inn á reikn­ing Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins í byrjun maí 2020 og í lok síð­ustu viku höfðu alls safn­ast 4.415.184 krónur.

Flest fram­lögin komu frá ein­stak­lingum. Kjarninn fékk aðgengi að yfir­liti yfir þau og þar sést að uppi­staðan eru örfram­lög. Flestir ein­stak­lingar gefa nokkur þús­und krónur. Samtals nema ofan­greind fram­lög rúm­lega 1,4 milljón króna.

Þá standa eftir þrjár millj­ónir króna sem Stjórn­ar­skrár­fé­lag­inu tókst að safna. Þær komu frá einum aðila.

Mauraþúfan sem safnaði milljónum

Í aðdrag­anda fyrri Þjóð­fund­ar­ins, sem hald­inn var 2009, var mynd­aður und­ir­bún­ings­hópur ein­stak­linga með afar ólíkan bak­grunn. Þessi hópur taldi sig eiga það sam­eig­in­legt að hafa talað fyrir skipu­lagðri sam­eig­in­legri umræðu og hug­mynda­vinnu meðal þjóð­ar­innar til þess að finna bestu leið­ina til fram­fara við nýjar aðstæður. Hópurinn kall­aði sig Maura­þúf­una með vísan til þess sem á ensku hefur verið kallað „Collective Intelligence“. Þegar sam­tökin voru form­lega stofnuð, í sept­em­ber 2009, sagði í til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skrár að til­gangur þeirra væri „að halda Þjóðfund og fylgja honum eftir.“

Um var að ræða hóp sem var nokkuð flæð­andi að stærð. Um tíma kom starf­aði tón­list­ar­konan Björk Guð­munds­dóttir með honum. Um tíma Guðfinna Bjarna­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Og um tíma var Ólafur Steph­en­sen, fyrr­ver­andi rit­stjóri bæði Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins og núver­andi fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, á meðal þeirra sem sagðir voru til­heyra hópnum á heima­síðu Þjóð­fund­ar­ins.

Þjoðfundurinn sem fór fram árið 2009 vakti mikla athygli, og er almennt talinn vera fyrsta formlega skrefið sem stigið var í þeirri vinnu að smíða nýja stjórnarskrá.
Þjoð­fund­ur­inn sem fór fram árið 2009 vakti mikla athygli, og er almennt tal­inn vera fyrsta form­lega skrefið sem stigið var í þeirri vinnu að smíða nýja stjórn­ar­skrá.

Kjarninn í Maura­þúf­unni voru þó þeir níu ein­stak­lingar sem skip­uðu stjórn sam­tak­anna. Og skipa hana enn sam­kvæmt þeim gögnum sem aðgengi­leg eru í fyr­ir­tækja­skrá.

Á meðal þeirra voru núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra Svandís Svav­ars­dóttir, Halla Tóm­as­dóttir sem síðar fór í for­seta­fram­boð og frum­kvöð­ull­inn Guðjón Már Guð­jóns­son, oft­ast kenndur við OZ. Aðrir með­limir voru Bjarni Snæbjörn Jónsson, Gunnar Jón­atans­son, Haukur Ingi Jónasson, María Ell­ing­sen, Þorgils Völ­und­ar­son og Lárus Ýmir Ósk­ars­son, sem var kjör­inn for­maður stjórnar.

Fjöl­margir aðilar, ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki, stofn­anir og félaga­sam­tök lögðu til fé svo að Þjóð­fund­ur­inn yrði að veru­leika. Útlagður kostn­aður við funda­haldið var áætl­aður um 27 millj­ónum króna á end­anum. Rík­is­stjórn, Reykja­vík­ur­borg og ríf­lega 70 fyr­ir­tæki, sveit­ar­fé­lög, félaga­sam­tök, stofn­anir og ein­stak­lingar voru í hópi stuðn­ings­að­ila. Þar af lagði rík­is­stjórn Íslands til sjö millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og Reykja­vík­ur­borg lán­aði Laug­ar­dals­höll­ina undir fund­inn.

Fjöldi fólks hefur barist árum saman fyrir því að koma nýju stjórnarskránni aftur á dagskrá.
Fjöldi fólks hefur barist árum saman fyrir því að koma nýju stjórn­ar­skránni aftur á dag­skrá.

Einn laun­aður starfs­maður var við verkið, verk­efn­is­stjór­inn, Kristín Erna Arn­ar­dóttir. Hún var ráðin tíma­bundið og laun hennar greidd af þeim frjálsu fram­lögum, sem verk­efnið hafði fengið.

Þegar Þjóð­fund­ar­verk­efn­inu lauk voru enn til fjár­munir. Samkvæmt því sem kom fram á styrkt­ar­síðu verk­efn­is­ins átti að setja það fé sem eftir sat í „kostnað við eft­ir­fylgni við Þjóð­fund­inn“.

Féð var sett inn á banka­reikn­ing hjá Spari­sjóði Suður-Þing­ey­inga og þar lá það fram á sum­arið 2020. Þegar stjórn Maura­þúf­unnar, sem hafði þá ekki hist árum saman, barst beiðni um styrk.

Beint framhald af Þjóðfundinum 2009

Sú beiðni kom frá stjórn Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins. Í henni sitja Katrín Odds­dóttir for­maður, Sigurður Hr. Sig­urðs­son rit­ari og Kristín Erna Arn­ar­dóttir gjald­keri, sem hafði starfað við Þjóð­fund­inn 2009 sem verk­efna­stjóri.

Katrín Oddsdóttir er formaður Stjórnarskrárfélagsins og helsti talsmaður þess.
Katrín Odds­dóttir er for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins og helsti tals­maður þess.

Í beiðn­inni sagði meðal ann­ars: „Við teljum að starf okkar og bar­átta fyrir nýrri stjórn­ar­skrá fyrir Íslensku þjóð­ina sé beint fram­hald af Þjóð­fundi 2009 og 2010 í beinu sam­hengi við hug­sjón­ina um gildi þjóð­ar­innar förum við þess á leit við Maura­þúf­una að styrkja verk­efnið um kr. 3.000.000.- Ef Maura­þúfan bregst hratt við og sam­þykkir beiðni okkar verður hægt að mæta því tak­marki Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins að allir kjós­endur á Íslandi fái upp­lýs­ingar um und­ir­skrifta­söfn­un­ina (líka þeir sem hafa ekki íslensku sem fyrsta tungu­mál). Við viljum leiða gæfu­sam­lega til lykta það mik­il­væga og góða starf sem Maura­þúfan vann í þágu lýð­ræð­is­ins á sínum tíma. Ljóst er að með slíkum endi mun ferlið allt verða að von­ar­glætu fyrir lýð­ræði á heims­vísu því það sýnir að hægt er að finna skap­andi leiðir til að hlusta raun­veru­lega á almenn­ing þegar það kemur að sam­fé­lags­legum umbótum.“

Með beiðn­inni fylgdi áætlun um fram­kvæmd og kostnað verk­efn­is­ins. Í henni var meðal ann­ars farið yfir hvernig tíma­lína þess yrði frá miðjum júlí­mán­uði og fram að 20. októ­ber, þegar und­ir­skriftir yrðu afhentar. Samkvæmt kostn­að­ar­á­ætlun átti verk­efnið að kosta um 3,3 millj­ónir króna. Þorri þess kostn­aðar féll til vegna birt­inga á aug­lýs­ingum.

Vel heppnað veggjakrot

Stjórn Maura­þúf­unnar sam­þykkti beiðn­ina. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans þá setti eng­inn í stjórn sam­tak­anna sig á móti því að fjár­mun­unum sem legið höfðu á banka­reikn­ingi norður í landi í öll þessi ár yrði ráð­stafað með þessum hætti.

Þann 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn voru þrjár millj­ónir króna milli­færðar inn á reikn­ing Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins.

Veggurinn háþrýstiþveginn að beiðni stjórnarráðsins.
Vegg­ur­inn háþrýsti­þveg­inn að beiðni stjórn­ar­ráðs­ins.

Kjarninn óskaði eftir því að fá að sjá yfir­lit yfir útgjöld vegna und­ir­skrifta­söfn­unar félags­ins, og fékk það. Í þeim gögnum sést að kostn­aður alls var rúm­lega 16 pró­sent undir áætlun. Heild­ar­kostn­aður var tæp­lega 2,8 millj­ónir króna Nær allur kostn­aður var vegna birt­ingar á aug­lýs­ingum í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum, líkt og lagt hafði verið upp með í kostn­að­ar­á­ætlun. Kostn­aður við það átak sem vakti einna mesta athygli á verk­efn­inu, þegar veggur sem þegar var þak­inn veggjakroti var mál­aður með orð­unum „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“, var sára­lít­ill. Máln­ingin kost­aði 168 þús­und krónur og pizzur fyrir mál­ar­anna 22 þús­und krónur.

Sjálf­boða­liðar á vegum verk­efn­is­ins höfðu vikum saman verið að koma skila­boðum þess fyrir á öðrum svæðum í höf­uð­borg­inni þar sem að veggjakrot var þegar til staðar. En í októ­ber var ákveðið að mála stórt vegg­lista­verk á vegg við bíla­stæði milli Sölv­hóls­vegar og Skúla­götu, við hlið atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins. Sú aðgerð var þó ekki á vegum Samtaka kvenna um nýja stjórn­ar­skrá né Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, heldur stóð Narfi Þor­steins­son og skilta­málun hans fyrir henni.

Tveimur dögum eftir að verkið var full­klárað lét rekstr­ar­fé­lag stjórn­ar­ráðs­ins háþrýsti­þvo skila­boðin í burtu, eftir að ábend­ing hafði borist frá ráðu­neyt­inu. það var í fyrsta sinn sem að vegg­ur­inn, sem hefur verið úta­t­aður í veggjakroti árum saman, var þrif­inn. Annar veggur við hlið hans sem er líka þak­inn vegg­list, en inni­heldur ekki póli­tísk skila­boð, fékk að standa óáreittur.

Ákvörðun stjórn­ar­ráðs­ins að þrífa skila­boðin í burtu var það besta sem gat gerst fyrir und­ir­skrifta­söfn­un­ina. Athæfið varð frétt á öllum miðlum lands­ins og það rataði í umræður í þing­sal þar sem Jón Þór Ólafs­son, þing­maður Pírata, sagði meðal ann­ars: „Það er tákn­rænt að þegar stjórn­völd kom­ast ekki lengur upp með það að sópa nýju stjórn­ar­skránni undir teppið þá bein­línis háþrýsti ­þvo þau burt sann­leik­ann um van­virð­ingu þeirra við þjóð­ar­vilj­ann.“

Í kjöl­farið réðst Stjórn­ar­skrár­fé­lagið í að mála vegg­lista­verkið á annan vegg, skammt frá þeim sem hafði verið þrif­inn. Það verk stendur enn.

Eyddu einungis tveimur þriðju

Alls safn­aði Stjórn­ar­skrár­fé­lagið 4.415.184 krónum frá byrjun maí og fram í lok síð­ustu viku. Af þeirri upp­hæð komu 68 pró­sent frá Maura­þúf­unni en það sem upp á vant­aði frá fjöl­mörgum ein­stak­lingum í formi lágra fjár­fram­laga, bola- og tösku­sölu og fram­laga vegna bóka.

Félagið eyddi ein­ungis tæpum tveimur þriðju af því sem safn­að­ist. Eftir standa enn um 1,6 millj­ónir króna á reikn­ingi þess sem geta nýst í næsta fasa verk­efn­is­ins, hver svo sem hann verður.

Það þýðir að rúm­lega helm­ingur þeirrar upp­hæðar sem Maura­þúfan lét renna í fjár­öfl­un­ina liggur nú inn á banka­reikn­ingi. Alveg eins og hún hefur gert frá því síðla árs 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nýja stjórnarskráin

Mest lesið undanfarið ár