Talar beint í brotna sjálfsmynd þjóðarinnar

Panama­skjölin, flótta­manna­vand­inn og átök innan Sam­tak­anna ‘78 eru meðal ann­ars til umfjöll­unar í sýn­ing­unni Sterta­bendu í leik­stjórn Grétu Krist­ínar Ómars­dóttur.

Þjóð­leik­húsið hefur bætt við sýn­ingum á leik­verkið Sterta­bendu, í leik­stjórn Grétu Krist­ínar Ómars­dóttur, sem fengið hefur mikið lof gagn­rýnenda. Sterta­benda var útskrift­ar­verk­efni Grétu Krist­ínar en hún útskrif­að­ist frá sviðs­höf­unda­braut Lista­há­skóla Íslands síð­asta vor. „Það er ótrú­lega gaman þegar inn­sæi manns er stað­fest, þegar maður veit að maður er með eitt­hvað gott í hönd­unum,“ segir hún um tæki­færið sem Þjóð­leik­húsið færði henni strax að lok­inni útskrift. „Okkur leið þannig í hópnum. Það var mjög góð og sterk til­finn­ing í leik­hópnum þegar við vorum að vinna þessa sýn­ingu og okkur fannst við eiga meira inni. Það er því ótrú­lega þakk­látt og auð­mýkj­andi að fá það stað­fest og fá tæki­færi til þess að klára sýn­ing­una með því að taka hana upp á næsta stig,“ segir Gréta Kristín. 

Sterta­benda er upp­runa­lega eftir þýska höf­und­inn Marius von Mayen­burg en Gréta Kristín aðlag­aði verkið að íslenskum sam­tíma. „Við vorum undir miklum áhrifum umræð­unnar í kringum Panama­skjölin og reynum að end­ur­spegla það ástand í verk­inu,“ segir hún. „Svo tölum við líka um flótta­manna­vand­ann og frið­þæg­ing­una sem við beitum á okkur sjálf, við setjum bara ein­hvern í trúða­bún­ing og syngjum „Hjálpum þeim“ í sjón­varp­inu. Við komum líka inn á umræður sem voru í Sam­tök­unum ‘78 um hver megi vera með, hver megi vera hinsegin og hver ekki.“    

Fáránlegt starf leikarans

Leik­hús­mið­ill­inn sjálfur er til umfjöll­unar í Sterta­bendu. Unnið með blekk­ingar leik­húss­ins og sjálfs­með­vit­und leik­ara gagn­vart áhorf­endum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár