Ríkisstjórnin styrkir gerð heimildarmyndar um flóttamenn

Rík­is­stjórnin veitir þriggja millj­óna króna styrk til gerðar heim­ild­ar­myndar um mót­töku flótta­manna á Íslandi. Áætlað er að verk­efnið taki um ár, sam­kvæmt aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra. Fyr­ir­tækið Skotta kvik­mynda­fjelag gerir mynd­ina.

Sýrlenska fjölskyldan komin til landsins
Sýr­lenska fjöl­skyldan komin til lands­ins Mynd: Skjáskot: RÚV

Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að veita þriggja millj­óna króna styrk til gerðar heim­ild­ar­myndar um mót­töku sýr­lensku flótta­mann­anna hér á landi.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra bar til­lög­una upp á fundi rík­is­stjórnar í gær og var hún sam­þykkt ein­róma.

Það er fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Skotta Film sem fram­leiðir mynd­ina með Árna Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi for­mann Flótta­manna­ráðs, í far­ar­broddi.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra, segir verk­efnið hafa verið að gerj­ast í ein­hvern tíma.

„Árni fór til Líbanon og hefur fylgt fólk­inu eftir, þá sér­stak­lega þeim hópi sem fór til Akur­eyrar,” segir hann. „Hug­myndin er að gera heim­ild­ar­mynd um mót­töku og aðlögun þess­ara hópa hér á Íslandi og hvernig aðlögun gengur.”

Að sögn Jóhann­esar stendur einnig til að gera kennslu­mynd­bönd fyrir skóla og nýta verk­efnið á fleiri sviðum. Áætlað er að það taki um ár að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár