Aldursmerkingar kvikmynda eru enn ekki í lagi

Enn upp­fylla ald­urs­merk­ingar á kvik­myndum, sem segja til um hversu gam­all áhorf­andi þarf að vera til að mega horfa á þær, ekki kröfur Fjöl­miðla­nefndar þrátt fyrir að end­ur­bættur vefur félags rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aði, kvik­mynda­skodun.is, hafi verið opn­aður á ný í byrjun viku. Kjarninn greindi frá því í febr­úar að fram­kvæmd ald­urs­merk­inga á kvik­myndum hafi ekki verið í sam­ræmi við lög frá árinu 2006, sam­kvæmt mati Fjöl­miðla­nefndar. Þetta kom fram í bréfum sem nefndin hafði sent mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu á und­an­förnum árum og Kjarninn fékk afhent á grund­velli upp­lýs­inga­laga.

Fjöl­miðla­nefnd segir að vef­síðan hafi verið sett í loftið án þess að allt hafi verið komið inn á hana og að ýmsar breyt­ingar verða gerða á henni á næstu vikum. Málið sé því enn í vinnslu.

Tilkynntu um endurbætta síðu á mánudag


FRÍSK, félag rétta­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aði, sendi frá sér til­kynn­ingu á mánu­dag þar sem fram kom að nýr og end­ur­bættur vefur hefði verið opn­aður á slóð­inni kvik­mynda­skodun.is. Þar mætti nálg­ast „ítar­legar upp­lýs­ingar um ald­urs­tak­mörk á kvik­myndum og tölvu­leikjum á Íslandi. Vefurinn er sér­stak­lega hann­aður með for­eldra og for­ráða­menn í huga og þar er m.a. hægt að leita í gagna­grunni af kvik­myndum, sjón­varps­þáttum og tölvu­leikjum og sjá ald­urs­tak­mörk við­kom­andi efnis ásamt upp­lýs­ingum um hvaða efn­is­þættir ráða ald­urs­merk­ing­unni.“

Kjarninn sendi í kjöl­farið fyr­ir­spurn til Fjöl­miðla­nefndar með spurn­ingum um hvort vef­ur­inn upp­fyllti þau skil­yrði sem nefndin setur. Í svari nefnd­ar­innar segir að hún hafi fundað á þriðju­dag með FRÍSK til að fara yfir end­ur­bætta vef­síðu félags­ins. Á þeim fundi var upp­lýst að ákveðið hefði verið að setja vef­síð­una í loftið án þess að allt væri komið inn á hana.

Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið segir Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Fjöl­miðla­nefndar, að FRÍSK muni á næstu vikum, í sam­ráði við nefnd­ina, gera ýmsar breyt­ingar á síð­unni. „Meðal ann­ars að upp­færa og breyta verk­lags­reglum félags­ins, skoða með hvaða hætti kynn­inga­stiklur verði ald­urs­metnar og ald­urs­mat birt, setja inn upp­lýs­inga um mót­t­töku og afgreiðslu erinda frá almenn­inga og fleira.“

Málið sé því enn í vinnslu en gott sé að vita til þess að loks sé búið að ganga frá samn­ingi við NICAM í Hollandi.

Að horfa á myndband er góð skemmtun


Fram til árs­ins 2006 sá Kvik­mynda­skoðun rík­is­ins um að ald­urs­meta þær kvik­myndir sem sýndar voru á Íslandi. Flestir kvik­mynda­á­huga­menn muna eftir Gylfa Pálssyni til­kynna sér um að það að horfa á mynd­band sé góð skemmtun áður en myndin sjálf hófst.

Með laga­breyt­ingu árið 2006 var ald­urs­matið fært til aðild­ar­fé­laga SMÁÍS, sam­taka myndrétt­hafa á Íslandi. Samkvæmt nýja fyr­ir­komu­lag­inu átti SMÁÍS að gera sam­komu­lag við alþjóð­lega við­ur­kenndan mats­að­ila við að meta ald­urs­hæfi kvik­mynda­efnis. Látið var í það skína að gerður hefði verið full­gildur samn­ingur við hol­lenska fyr­ir­tækið NICAM í ágúst 2007 um að sjá þeim fyrir slíkri þjón­ustu.

https://www.youtube.com/watch?v=O0TAQWY6BRc

Þannig hélt fjöl­miðla­nefnd að staðan væri þegar Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hennar, flutti erindi á nor­rænni ráð­stefnu í Helsinki í maí 2012. Á meðal þess sem kom fram í erindi hennar var hvernig ald­urs­mats­málum væri fyr­ir­komið hér­lendis. Eftir erindið til­kynnti fram­kvæmda­stjóri NICAM, sem var í salnum og hafði hlustað á það, að fyr­ir­komu­lagið væri alls ekki með þeim hætti sem Elfa hafði lýst. Síðar hafði Við­skipta­blaðið eftir fram­kvæmda­stjór­anum, Wim Bekkers, að SMÁÍS hefði aldrei greitt neitt vegna samn­ings­ins og frá und­ir­ritun hans hefði ekki verið neitt sam­bandi milli samn­ings­að­il­anna. „Ég hugs­aði með mér að það væri vegna vanda­mála sem eyjan átti við að etja á þeim tíma,“ sagði Bekkers við Við­skipta­blaðið.

Með laga­breyt­ingu árið 2006 var ald­urs­matið fært til aðild­ar­fé­laga SMÁÍS, sam­taka myndrétt­hafa á Íslandi. Samkvæmt nýja fyr­ir­komu­lag­inu átti SMÁÍS að gera sam­komu­lag við alþjóð­lega við­ur­kenndan mats­að­ila við að meta ald­urs­hæfi kvik­mynda­efnis. Látið var í það skína að gerður hefði verið full­gildur samn­ingur við hol­lenska fyr­ir­tækið NICAM í ágúst 2007 um að sjá þeim fyrir slíkri þjón­ustu.

Þannig hélt fjöl­miðla­nefnd að staðan væri þegar Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hennar, flutti erindi á nor­rænni ráð­stefnu í Helsinki í maí 2012. Á meðal þess sem kom fram í erindi hennar var hvernig ald­urs­mats­málum væri fyr­ir­komið hér­lendis. Eftir erindið til­kynnti fram­kvæmda­stjóri NICAM, sem var í salnum og hafði hlustað á það, að fyr­ir­komu­lagið væri alls ekki með þeim hætti sem Elfa hafði lýst. Síðar hafði Við­skipta­blaðið eftir fram­kvæmda­stjór­anum, Wim Bekkers, að SMÁÍS hefði aldrei greitt neitt vegna samn­ings­ins og frá und­ir­ritun hans hefði ekki verið neitt sam­bandi milli samn­ings­að­il­anna. „Ég hugs­aði með mér að það væri vegna vanda­mála sem eyjan átti við að etja á þeim tíma,“ sagði Bekkers við Við­skipta­blaðið.

Þá segir einnig að veru­lega skorti upp á að kynn­ing­ar­efni sé ald­urs­merkt, gagna­grunn­ur­inn kvik­mynda­skodun.is hafi verið langt í frá tæm­andi og mikið vanti upp á að allar kvik­myndir sem gefnar eru út hér á landi séu ald­urs­merktar líkt og lög gera ráð fyrir. Þá segir: „Fjöl­miðla­nefnd er kunn­ugt um að ábyrgð­ar­að­ilar geri ýmsar und­an­tekn­ingar frá mati um ald­urs­merk­ingu sem á sér enga stoð í lögum, m.a. eru kvik­myndir á kvik­mynda­há­tíðum ekki ald­urs­merktar“.

Ekki rétt að kerfið hafi verið við lýði í áratug


SMÁÍS gerði loks samn­ing við NICAM haustið 2013, sjö árum eftir að lögin sem færðu ábyrgð­ina á ald­urs­mat­inu til sam­tak­ana voru sett. Talsmenn SMÁÍS höfðu þá haldið því fram að kerfið hafi verið við lýði á Íslandi allt frá árinu 2006. Og skömmu síðar varð SMÁÍS gjald­þrota.

Í bréfi sem fjöl­miðla­nefnd sendi til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins í byrjun des­em­ber 2014 vegna máls­ins segir: „Fjöl­miðla­nefnd vill árétta að SMÁÍS gerði ekki samn­ing við NICAM um notkun Kijkwijzer kerf­is­ins fyrr en haustið 2013, þ.e. sjö árum eftir að lögin voru sett. Það var jafn­framt í fyrsta sinn sem mats­menn á vegum ábyrgð­ar­að­ila fóru á nám­skeið hjá sér­fræð­ingum NICAM um hvernig eigi að nota skoð­un­ar­kerfið. Það er því ekki alls­kostar rétt stað­hæf­ing að kerfið hafi verið við lýði hér á landi í hátt í ára­tug“.

Stofnað eftir gjaldþrot SMÁÍS


Félag rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aði (FRÍSK) var stofnað á síð­asta ári í kjöl­far gjald­þrots SMÁÍS. Að félag­inu standa 365 miðlar ehf., Skjárinn, Sena, Myndform, RÚV og Sam-félagið., eða sömu aðilar og stóðu að SMÁÍS. Samhliða var upp­lýst að nýja félagið myndi sinna því hlut­verki að halda utan um form­legan samn­ing um erlent við­ur­kennt skoð­un­ar­kerfi og sam­ræma inn­leið­ingu til félags­manna og ann­arra ábyrgð­ar­að­ila.

Hall­grímur Krist­ins­son, starf­andi stjórn­ar­for­maður FRÍSK, sagði í sam­tali við Kjarnann í febr­úar að nýr samn­ingur við NICAM væri til­bú­inn og að lík­lega yrði skrifað undir hann í þeim mán­uði. Það gekk ekki alveg eftir en í dag er slíkur samn­ingur í höfn.

Samkvæmt honum er ald­urs­hæfi ákveðið af mat­skrefi frá NICAM. Ábyrgð­ar­að­ilar, til dæmis kvik­mynda­hús og sjón­varps­stöðvar, flokka sitt efni sjálfir með því að nota spurn­inga­lista sem NICAM setur saman. Í til­kynn­ingu sem FRÍSK sendi frá sér vegna end­ur­opn­unar vefs­ins kvik­mynda­skodun.is sagði að sér­þjálfaðir starfs­menn „svo­kall­aðir mats­menn, horfa gaum­gæfi­lega á myndefni og svara sex­tíu spurn­ingum á matsvefnum net­inu um það sem þeir sáu.Tölvu­for­rit sem NICAM bjó til reiknar svo út hvaða flokkun til­greint myndefni fær. Allir félags­menn FRÍSK hafa sér­þjálf­aða mats­menn á sínum snærum. Spurn­inga­list­inn var settur saman af hópi þekktra sér­fræð­inga á sviði fjöl­miðl­unar og ung­menna. Þar nýttu þeir sér ára­tuga rann­sóknir á skað­legum áhrifum hljóð- og myndefnis á börn og ung­menni. Einnig var tekið ríkt til­lit til óska for­eldra og fræðslu­að­ila. Á heild­ina litið hefur spurn­inga­list­inn reynst áreið­an­legur mæli­kvarði og þykir hol­lenska kerfið eitt það besta í ver­öld­inni. Þess má geta að ald­urs­merk­ingar á tölvu­leikjum í Evrópu (svo­kallað PEGI-kerfi) er einnig byggt á hol­lenska kerf­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár