Aldursmerkingar kvikmynda ekki í samræmi við lög í níu ár

Fram­kvæmd ald­urs­merk­inga á kvik­myndum, sem segja til um hversu gam­all áhorf­andi þarf að vera til að mega horfa á þeim, hefur ekki verið í sam­ræmi við lög hér­lendis frá árinu 2006. Þetta er mat fjöl­miðla­nefndar sem hefur eft­irlir með því að lög­unum sé fram­fylgt. Þetta kemur fram í bréfum sem fjöl­miðla­nefnd sendi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu á und­an­förnum árum.

Kjarninn óskaði eftir, á grund­velli upp­lýs­inga­laga, eftir öllum sam­skiptum, bréfum og gögnum fjöl­miðla­nefndar sem varða eft­ir­lit með ald­urs­mati. Í kjöl­farið fékk hann afhent bréf sem fjöl­miðla­nefnd hefur sent mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Hægt er að lesa bréfin hér, hér, hér, hér og hér.

Að horfa á myndband er góð skemmtun


Fram til árs­ins 2006 sá Kvik­mynda­skoðun rík­is­ins um að ald­urs­meta þær kvik­myndir sem sýndar voru á Íslandi. Flestir kvik­mynda­á­huga­menn muna eftir Gylfa Pálssyni til­kynna sér um að það að horfa á mynd­band sé góð skemmtun áður en myndin sjálf hófst.

http://youtu.be/O0TAQWY6BRc

Með laga­breyt­ingu árið 2006 var ald­urs­matið fært til aðild­ar­fé­laga SMÁÍS, sam­taka myndrétt­hafa á Íslandi. Samkvæmt nýja fyr­ir­komu­lag­inu átti SMÁÍS að gera sam­komu­lag við alþjóð­lega við­ur­kenndan mats­að­ila við að meta ald­urs­hæfi kvik­mynda­efnis. Látið var í það skína að gerður hefði verið full­gildur samn­ingur við hol­lenska fyr­ir­tækið NICAM í ágúst 2007 um að sjá þeim fyrir slíkri þjón­ustu.

Þannig hélt fjöl­miðla­nefnd að staðan væri þegar Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hennar, flutti erindi á nor­rænni ráð­stefnu í Helsinki í maí 2012. Á meðal þess sem kom fram í erindi hennar var hvernig ald­urs­mats­málum væri fyr­ir­komið hér­lendis. Eftir erindið til­kynnti fram­kvæmda­stjóri NICAM, sem var í salnum og hafði hlustað á það, að fyr­ir­komu­lagið væri alls ekki með þeim hætti sem Elfa hafði lýst. Síðar hafði Við­skipta­blaðið eftir fram­kvæmda­stjór­anum, Wim Bekkers, að SMÁÍS hefði aldrei greitt neitt vegna samn­ings­ins og frá und­ir­ritun hans hefði ekki verið neitt sam­bandi milli samn­ings­að­il­anna. „Ég hugs­aði með mér að það væri vegna vanda­mála sem eyjan átti við að etja á þeim tíma,“ sagði Bekkers við Við­skipta­blaðið.

Átti að vera bönnuð innan 16 en var alls ekki bönnuð


Á þessum tíma­punkti var ljóst að eft­ir­lit með því að börn væru ekki að horfa á efni sem sam­kvæmt lögum gæti „haft skað­leg áhrif á and­legan og sið­ferð­is­legan þroska þeirra“, var ekki í sam­ræmi við lög. Þegar fjöl­miðla­nefnd fór að skoða málið komu ýmsar brotala­mir fram. Í einu bréf­inu sem Kjarninn fékk afhent á grund­velli upp­lýs­inga­laga, og var sent til ráðu­neyt­is­ins síðla árs 2012, segir m.a.:

Fjöl­miðla­nefnd hefur upp­lýs­ingar um fjölda dæma þar sem um tvær ólíkar ald­urs­merk­ingar er að ræða fyrir sömu kvik­mynd, nokkur dæmi eru um þrjár ólíkar ald­urs­merk­ingar fyrir sömu kvik­mynd hér á landi[...]Fjöl­miðla­nefnd hefur fundið dæmi um það að kvik­myndir sem hafa fengið ald­urs­merk­ing­una 15-16 ára erlendis eru leyfðar öllum börnum gér á landi, t.d. kvik­myndin Black Swan frá árinu 2010.“

http://youtu.be/5jaI1XOB-bs

Þá segir einnig að veru­lega skorti upp á að kynn­ing­ar­efni sé ald­urs­merkt, gagna­grunn­ur­inn kvik­mynda­skodun.is hafi verið langt í frá tæm­andi og mikið vanti upp á að allar kvik­myndir sem gefnar eru út hér á landi séu ald­urs­merktar líkt og lög gera ráð fyrir. Þá segir: „Fjöl­miðla­nefnd er kunn­ugt um að ábyrgð­ar­að­ilar geri ýmsar und­an­tekn­ingar frá mati um ald­urs­merk­ingu sem á sér enga stoð í lögum, m.a. eru kvik­myndir á kvik­mynda­há­tíðum ekki ald­urs­merktar“.

Ekki rétt að kerfið hafi verið við lýði í áratug


SMÁÍS gerði loks samn­ing við NICAM haustið 2013, sjö árum eftir að lögin sem færðu ábyrgð­ina á ald­urs­mat­inu til sam­tak­ana voru sett. Talsmenn SMÁÍS höfðu þá haldið því fram að kerfið hafi verið við lýði á Íslandi allt frá árinu 2006. Og skömmu síðar varð SMÁÍS gjald­þrota.

Í bréfi sem fjöl­miðla­nefnd sendi til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins í byrjun des­em­ber 2014 vegna náls­ins segir: „Fjöl­miðla­nefnd vill árétta að SMÁÍS gerði ekki samn­ing við NICAM um notkun Kijkwijzer kerf­is­ins fyrr en haustið 2013, þ.e. sjö árum eftir að lögin voru sett. Það var jafn­framt í fyrsta sinn sem mats­menn á vegum ábyrgð­ar­að­ila fóru á nám­skeið hjá sér­fræð­ingum NICAM um hvernig eigi að nota skoð­un­ar­kerfið. Það er því ekki alls­kostar rétt stað­hæf­ing að kerfið hafi verið við lýði hér á landi í hátt í ára­tug“.

Skrifað undir í næstu viku


En nú virð­ist loks vera að draga til tíð­inda. Félag rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aði (FRÍSK) var stofnað á síð­asta ári í kjöl­far gjald­þrots SMÁÍS. Að félag­inu standa 365 miðlar ehf., Skjárinn, Sena, Myndform, RÚV og Sam-félagið., eða sömu aðilar og stóðu að SMÁÍS. Samhliða var upp­lýst að nýja félagið myndi sinna því hlut­verki að halda utan um form­legan samn­ing um erlent við­ur­kennt skoð­un­ar­kerfi og sam­ræma inn­leið­ingu til félags­manna og ann­arra ábyrgð­ar­að­ila.

Hall­grímur Krist­ins­son, starf­andi stjórn­ar­for­maður FRÍSK, segir að nýr samn­ingur við NICAM sé til­bú­inn og að undir hann verði lík­lega skrifað í næstu viku. „FRÍSK er búið að semja við NICAM um notkun fyrir okkar félags­menn að nota þeirra kerfi. Við munum ekki skoða myndir, heldur sam­ræmum ferlin í kringum það. Félögin sem gefa út eða sýna efni eru sjálf ábyrgð­ar­að­ilar.“

Hann segir að FRÍSK túlki lögin ekki nákvæm­lega eins og fjöl­miðla­nefnd í ákveðnum til­vikum. „Við höfum hins vegar reynt að vinna þetta mjög náið með fjöl­miðla­nefnd og tel að við séum komin ansi nálægt hvoru öðru í þessum málum. Ég er alveg sam­mála því að því að það hefði mátt gera margt betra. Það var svig­rúm til að gera betur og við erum að leggja það á okkur þessa dag­anna að kom­ast þangað. Ég er þeirrar skoð­unar að við séum að fær­ast nær hvoru öðru, við og fjöl­miðla­nefnd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár