Bændur ætla að kolefnisjafna allt lambakjöt

Sauð­fjár­bændur ætla ekki að láta sitt eftir liggja í umhverf­is­málum á næstu árum.

Aðal­fundur Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda, sem hald­inn er í Bænda­höll­inni við Hagatorg í dag og á morgun, hefur sam­þykkt stefnu sam­tak­anna til næstu tíu ára. Meðal þess sem hefur verið sam­þykkt er að kolefn­is­jafna skuli alla grein­ina „eins fljótt og auðið er“ að því er segir í til­kynn­ingu frá Lands­sam­tökum sauð­fjár­bænda.

Stefnan er í tíu liðum. Einnig kemur fram í stefn­unni að stefnt sé að því að allar afurðir skuli vera rekj­an­legar og að sam­tökin skuli sjálf setja sér umhverf­is­stjórn­un­ar­stefnu. „Með þessu eru festar í sessi þær áherslur sem hafa rutt sér til rúms í starf­semi sam­tak­anna og íslenskri sauð­fjár­rækt á und­an­förnum miss­erum og árum. Til­gang­ur­inn er að efla íslenska sauð­fjár­rækt í sátt við sam­fé­lag og nátt­úru þar sem sér­staða, sjálf­bærni, fjöl­breytni og verð­mæta­sköpun eru höfð að leið­ar­ljósi,“ segir í til­kynn­ingu sam­tak­anna.

Á aðal­fund­inum var einnig sam­þykkt sér­stök neyt­enda­stefna á fund­inum. Í henni kemur meðal ann­ars fram að sauð­fjár­bændur muni sér­stak­lega leggja áherslu á að neyt­endur fái góðar og réttar upp­lýs­ingar um vörur á mark­aði.

„Íslenskir sauð­fjár­bændur eru stoltir af því að fram­leiða hágæða afurðir fyrir opnum tjöldum með umhverf­is­vænum og nátt­úru­legum hætti. Þeir telja mik­il­vægt að neyt­endur fái réttar og góðar upp­lýs­ingar hvar sem þeir kaupa mat­vörur, hvort sem er í versl­unum, á veit­inga­stöðum eða í mötu­neytum. Þetta er grunn­ur­inn að heið­ar­legri sam­keppni og raun­veru­legu val­frelsi neyt­enda. Þetta eru sam­eig­in­legir hags­munir bænda og neyt­enda. Íslenskir sauð­fjár­bændur vilja að neyt­endur viti sem mest um þær afurðir sem bændur leggja alúð við að fram­leiða í sátt við nátt­úru og sam­fé­lag. Þess vegna setja þeir sér nú neyt­enda­stefnu í fyrsta sinn undir yfir­skrift­inni Okkar afurð – okkar mál. Þessi stefna verður lögð til grund­vallar í allri sam­vinnu bænda við þá sem vinna og selja afurð­irnar, almenn­ing, sam­tök neyt­enda og stjórn­völd,“ segir í neyt­enda­stefn­unni.

Stefna til 2027.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár