Uppsagnarstyrkirnir komnir yfir tíu milljarða króna – Icelandair tekur langmest til sín

Félög tengd Icelandair Group hafa fengið um 3,8 millj­arða króna í upp­sagn­ar­styrki. Gert var ráð fyrir að úrræðið gæti kostað 27 millj­arða króna í heild sinni en það hefur ein­ungis kostað 37 pró­sent af þeirri upp­hæð.

Leiðtogar ríkisstjórnar Íslands.
Leið­togar rík­is­stjórnar Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Í fyrra­dag höfðu borist 1.028 umsóknir frá 351 mis­mun­andi rekstr­ar­að­ilum um svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki úr rík­is­sjóði. Sam­an­lögð upp­hæð umsókna er upp á 10,1 millj­arð króna.

Þegar frum­varp um upp­­sagn­­ar­­styrki var lagt fram um miðjan maí var gert ráð fyrir því að bein útgjöld rík­­is­­sjóðs vegna úrræð­is­ins yrðu 27 millj­­arðar króna. Því er upp­hæðin sem greidd hefur verið út enn sem komið er ein­ungis 37 pró­sent af ætl­aðri upp­hæð.

Þetta má lesa úr upp­færðum tölum um stöðu efna­hags­að­gerða stjórn­valda vegna COVID-19 á heima­síðu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Í minn­is­­blaði Bjarna Bene­dikts­­son­­ar, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem inn­i­heldur yfir­­lit yfir stöðu stærstu efna­hags­að­­gerða stjórn­­­valda vegna COVID-19, og var lagt fyrir rík­­is­­stjórn 14. ágúst, sagði að umsóknir hefðu verið færri en gert hefði verið ráð fyrir á tíma­bil­inu. 

Dregið úr gjaldþrotum og eign hluthafa varin

Þann 28. apr­íl var til­­­kynnt um að rík­­­is­­­stjórnin ætl­­­aði að veita ákveðnum fyr­ir­tækj­um, sem hefðu orðið fyrir umfangs­­­miklu tekju­tapi, eða að minnsta kosti 75 pró­­sent, styrki til að eyða ráðn­­­ing­­­ar­­­sam­­­böndum þeirra við starfs­­­fólk sitt.

Þegar þessi áform voru kynnt lá ekk­ert frum­varp fyr­ir, ekk­ert kostn­að­­­ar­­­mat hafði verið gert opin­bert og engin kynn­ing á áformunum hafði átt sér stað meðal þing­­­flokka. Fyr­ir­tæki hófu að segja fólki upp í miklu magni strax í kjöl­far­ið, og áður en nýr mán­uðum hæf­ist.

[adspot]Frum­varp var svo lagt fram um miðjan maí mánuð og kostn­að­­­ar­­­mat kynnt sam­hliða. Það gerði ráð fyrir því að rík­­­is­­­sjóður greiði fyr­ir­tækjum sem upp­­­­­fylla sett skil­yrði alls 27 millj­­­arða króna í styrki í ár til að hjálpa þeim að segja upp fólki.

Yfir­­­lýst mark­mið var að draga úr fjölda­gjald­­­þrotum og tryggja rétt­indi launa­­­fólks. Hlið­­­ar­á­hrif eru að eign hlut­hafa er var­in.

Hátt í fjórir milljarðar króna til Icelandair og tengdra félaga

Upp­­lýs­ingar um hverjir hafa nýtt sér úrræðið og hversu mik­inn stuðn­­ing þessir aðilar hafa feng­ið, áttu að birt­ast á vef Skatts­ins eftir 20. ágúst. Þær voru fyrst birtar snemma í sept­em­ber og upp­færðar í síð­ustu viku með tölum um stuðn­ing vegna launa­kostn­aðar í ágúst­mán­uði líka.

[links]Líkt og áður var Icelandair ehf. það félag sem hefur fengið mest greitt, eða 2.996 millj­ónir króna vegna upp­sagna 1.889 starfs­manna. Flug­leiða­hótel hf., sem eru í 25 pró­sent eigu Icelandair Group, fékk 562 millj­ónir króna vegna upp­sagna á 481 starfs­manni og Iceland Travel, ferða­skrif­stofa að fullu í eigu Icelandair Group fékk 147 millj­ónir króna fyrir að segja upp 82 starfs­mönnum.

Þá fékk Flug­fé­lag Íslands, líka að öllu leyti í eigu Icelandair Group, 83 millj­ónir króna tvegna upp­sagna á 41 starfs­manni, og bíla­leiga Flug­leiða fékk 21 milljón króna vegna upp­sagna á alls 27 manns. Samtals nema greiðslur til fyr­ir­tækja að öllu leyti eða hluta í eigu Icelandair Group vegna upp­sagn­ar­styrkja því um 3,8 millj­örðum króna.

Bláa lónið fékk 571 milljón króna

Bláa Lónið fékk næst hæstu ein­stöku upp­sagn­ar­styrk­ina, alls um 571 milljón króna vegna upp­sagna 545 manns. Fjórða fyr­ir­tækið sem fékk upp­sagn­ar­styrki yfir hálfri milljón króna var Íslands­hótel hf., sem fékk alls 560 millj­ónir króna fyrir að segja upp alls 468 starfs­mönnum.

Hótel eru raunar fyr­ir­ferða­mikil á list­anum. Centerhotels fékk 243 millj­ónir króna, Foss­hótel 154 millj­ónir króna, Keahótel 135 millj­ónir króna og Hótel Saga 114 millj­ónir króna.

Rútu­fyr­ir­tækið Allra­handa, sem rekur vöru­merkin Grey Line og Airport Express, fékk 184 millj­ónir króna og tvö félög tengd Kynn­is­ferðum, sem reka vöru­merkið Reykja­vik Excursions, fengu sam­tals um 175 millj­ónir króna.

Önnur fyr­ir­tæki á list­anum sem fengu yfir 100 millj­ónir króna eru öll tengd ferða­þjón­ustu með einum eða öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár