Verði til neytenda á svína- og kjúklingakjöti ýtt upp

Einn stærsti fram­leið­and­inn líka stærsti inn­flytj­and­inn á hvítu kjöti. Formaður Félags atvinnu­rek­enda segir tíma­bært að stjórn­völd hætti vit­leys­unni í kringum úthlutun toll­kvóta.

Stærsti hluti toll­kvóta til að flytja inn svína- og ali­fugla­kjöt fór til umsvifa­mik­ils inn­lends fram­leið­anda sam­kvæmt til­kynn­ingu atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins. Kvótinn veitir heim­ild til að flytja inn við­kom­andi kjöt­teg­undir frá ríkum Evr­ópu­sam­bands­ins á þessu ári. Mata ehf., sem er syst­ur­fyr­ir­tæki Síldar og fisks og Matfugls, fær þannig í sinn hlut 61,8 pró­sent toll­kvóta fyrir svína­kjöt og 42,65 pró­sent af toll­kvóta fyrir ali­fugla­kjöt.

Fyr­ir­tækja­sam­steypan, sem ræktar bæði svín og kjúklinga til mann­eldis, nýtir inn­flutn­ing­inn að öllum lík­indum þannig að kjötið er ýmist unnið áfram eða pakkað í neyt­enda­um­búðir á þeirra vegum. Öll eru fyr­ir­tæki í eigu Langa­sjávar hf., sem svo er að stærstum hluta í eigu Coldrock Invest­ments á Möltu.

Ólafur Steph­en­sen fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda segir að með kaupum Mata á öllum þessum toll­kvóta sé verði til neyt­enda á bæði kjúklingi og svína­kjöti ýtt upp. Mata sé í raun og veru í sam­keppni við sjálfa sig og bjóði hátt verði fyrir inn­flutn­ings­kvót­ana sem gerir það að verum að aðrir þurfi að bjóða hátt til að eiga mögu­leika á þessum kvóta.

„Hitt er það að það er nátt­úru­lega ein­hver tví­skinn­ungur í því fólg­inn að einn stærsti svína- og fugla­fram­lieð­and­inn sé líka orð­inn einn stærsti kaup­and­inn af kvóta því félaga­sam­tökin hafa marglýst því yfir að þessi inn­flutn­ingur sé hættu­legur og óheil­næmur af heil­brigð­is­á­stæðum,“ segir Ólafur í sam­tali við Kjarnann og á þar við félög kjúklinga­bænda og svína­bæna. Hann segir þær áhyggjur óþarfar, eins og stór­kaup Mata á kvót­anum sýni, en þetta kjöt er fram­leitt sam­kvæmt sömu heil­brigð­is­reglum og undir sama eða strang­ara heil­brigð­is­eft­ir­liti og inn­lend fram­leiðsla.

Mata hefur oft á und­an­förnum árum fengið stærstan hluta svína­kjötskvót­ans í sinn hlut; fékk til dæmis 90,9 pró­sent af honum árið 2012, 69,4 pró­sent árið 2016 og 59,5 pró­sent í fyrra. Í fyrra fékk Mata enn­fremur 24 pró­sent ali­fugla­kjöt­kvót­ans. Með­al­verð fyrir kíló af svína­kjötskvóta var í síð­asta útboði 378 krónur á kíló, en hæsta boð 500 krónur á kíló. Með­al­verðið á kíló af ali­fugla­kjöti var 620 krónur, en hæsta boð 670 krónur.

„Þarna er komin enn ein ástæðan til þess að end­ur­skoða þetta útboðs fyr­ir­komu­lag,“ segir Ólafur en í frétt á heima­síðu sam­tak­anna frá því á mið­viku­dag kemur fram að útboðs­gjaldið hafi hækkað um tugi og jafn­vel hund­ruð pró­senta á fjórum árum vegna sívax­andi eft­isp­urnar eftir inn­lendri búvöru. Á sama tíma hefur álagn­ing útboðs­gjalds tví­vegis verið dæmt ólög­mæt og and­stæð stjórn­ar­skrá. Eftir dóm Hæsta­réttar í jan­úar 2016 þurfti ríkið að end­ur­greiða inn­flytj­endum um tvo millj­arða króna vegna ólög­mætrar álagn­ingar útboðs­gjalds. Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum féll síðan dómur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, þar sem útboðs­gjaldið var aftur dæmt ólög­mætt. Í vik­unni bár­ust þær fregnir að ríkið hygð­ist ekki áfrýja þeim dómi.

Í frétt Félags atvinnu­rek­enda segir Ólafur að þetta kerfi sé aug­ljós­lega komið að fótum fram, þar sem toll­kvótum er úthlutað með upp­boði til að vernda inn­lenda fram­leiðslu og dóm­stólar kom­ast ítrekað að þeirri nið­ur­stöðu að fyr­ir­komu­lagið sé ólög­legt og end­ur­greiða beri gjöldin. Hann segir þó allt útlit fyrir að þetta haldi áfram, tíma­bært sé að stjórn­völd hætti þess­ari vit­leysu og beiti sér frekar fyrir sátt um skyn­sam­legt fyr­ir­komu­lag á inn­flutn­ingi búvara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár