Langtímaeinkenni COVID: Stutt ganga eins og klifur á Everest

COVID-19 er ekki aðeins önd­un­ar­færa­sjúk­dómur heldur getur hann lagst á öll líf­færa­kerfi lík­am­ans. Lang­tíma­ein­kenni sjúk­dóms­ins eru farin að koma fram og þau vekja fleiri spurn­ingar en hægt er að svara.

Langtímaáhrif af COVID-19 geta verið margvísleg.
Lang­tíma­á­hrif af COVID-19 geta verið marg­vís­leg. Mynd: EPA

Fólk sem sýkt­ist af COVID-19 er farið að finna veru­lega fyrir lang­tíma­á­hrifum sjúk­dóms­ins. Stuttar göngu­ferðir verða eins og að klífa Everest-fjall. Fólk lýsir „heila­þoku“ sem geri þeim erfitt að muna og einnig erfitt að lesa, skrifa og tala. Einnig finnur það fyrir stöðugri þreytu, er and­stutt og verkjar í vöðva. Ein­föld­ustu heim­il­is­störf verða því erfið. Og að snúa aftur til vinnu hefur reynst sumum ómögu­legt.

Í Evrópu, þar sem far­ald­ur­inn gekk yfir fyrr en í Banda­ríkj­unum, eru læknar farnir að sjá lang­tíma­ein­kennin koma í ljós og bjóða fólki upp á end­ur­hæf­ingu.

[adspot]

„Það sem kemur mér mest á óvart er að jafn­vel sjúk­lingar sem þurftu ekki að leggj­ast inn á gjör­gæslu eru mjög veik­burða. Það finn­ast engin merki um vanda­mál í tengslum við hjarta-, æða- eða lungna­kerfið en þeir eiga engu að síður erfitt með að ganga upp nokkrar tröppur,“ hefur CNN eftir Piero Clarvio, yfir­manni end­ur­hæf­ing­ar­mið­stöðvar fyrir COVID-sjúk­linga í Genóa á Ítalíu. Hann segir flesta þeirra sem enn hafa ekki náð sér vera þrótt­lausa. Það geri fólki erfitt fyrir að snúa aftur til vinnu.

[links]Er far­aldur kór­ónu­veirunnar hóf að breið­ast út um heim­inn var talið að hann legð­ist verst á eldra fólk. Hins vegar er það aðal­lega yngra fólk sem hefur verið að sýkj­ast síð­ustu vikur og mán­uði. Og þrátt fyrir ungan aldur glímir það við eft­ir­köstum mörgum mán­uðum eftir að hafa sýkst.

Í frétt CNN segir að nú séu vís­bend­ingar um að COVID-19 sé ekki aðeins sjúk­dómur sem legg­ist á önd­un­ar­færin heldur á öll líf­færi og geti því skaðað lungu, nýru, lifur, hjarta, húð­ina og tauga­kerfið svo dæmi séu tekin.

Í nýrri rann­sókn sem gerð var við Háskól­ann í Texas kemur í ljós að um einn af hverjum fimm sem sýkj­ast af COVID fá alvar­leg ein­kenni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár