Marta íhugar að berjast við Hildi um fyrsta sætið hjá Sjálfstæðisflokknum

Sitjandi borg­ar­full­trúi íhugar að sækj­ast eftir odd­vita­sæt­inu hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í höf­uð­borg­inni. Hún myndi þá etja kappi við Hildi Björns­dóttur um sætið. Enn er ójóst hvernig valið verður á lista hjá flokknum en það skýrist vænt­an­lega í lok viku.

Marta Guðjónsdóttir.
Marta Guð­jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Marta Guðjóns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins, íhugar að bjóða sig fram gegn Hildi Björns­dóttur verði af boð­uðu leið­toga­próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

[links]Þar er haft eftir Mörtu að margir hafi hvatt hana til að gefa kost á sér til að leiða list­ann og fyrir það sé hún þakk­lát „Ég vil taka málið til gaum­gæfi­legr­ar at­hug­un­ar og þá í sam­ráði við mína fjöl­skyldu og mitt bak­land, þar sem þetta er stór ákvörðun sem maður tek­ur ekki einn.“

Miðað við boðuð áform um leið til að velja á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík mun Marta etja kappi við Hildi Björns­dóttur um fyrsta sætið, en hún er sú eina sem form­lega hefur til­kynnt að hún sæk­ist eftir því. Þær hafa boðað afar ólíkar áherslur í ýmsum lyk­il­málum í borg­inni, sér­stak­lega þegar kemur að skipu­lags­þróun Reykja­víkur og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins alls.

Eyþór Arn­alds, sitj­andi odd­viti, til­kynnti nokkrum dögum fyrir jól í fyrra að hann myndi ekki gefa kost á sér til áfram­hald­andi for­ystu og að hann ætl­aði yfir­gefa stjórn­málin. Áður hafði hann lýst yfir þeirri ætlan að sækj­ast áfram eftir sæti odd­vita.

[adspot]Kjarninn hefur rætt við fólk sem tók þátt í könnun í des­em­ber þar sem spurt var hvort því hugn­að­ist frekar að Eyþór eða Hildur leiddu lista Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík. Eyþór hefur neitað því að slík könnun hafi haft áhrif á ákvörðun hans.

Leiðin skýrist í vikunni

Á fundi Varðar, full­trúa­ráðs sjálf­stæð­is­fé­laga í Reykja­vík, snemma í des­em­ber var ákveðið að efna til leið­toga­próf­kjörs fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík. Það er sama leið og var farin fyrir kosn­ing­arnar 2018.

Full­­trú­a­ráð Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins þarf að sam­­þykkja leið­ina til að hún verði að veru­­leika með 2/3 hluta atkvæða.Gangi það eftir verður kosið í kjör­­nefnd til að fylla önnur sæti á list­an­­um.

Full­trúa­ráðið, sem átti upp­haf­lega að funda um málið 4. jan­úar, hefur hins vegar ekki haldið fund til að greiða atkvæði um stöð­una. Búist er við því að hann fari fram næst­kom­andi fimmtu­dag, mán­uði eftir að hann átti upp­haf­lega að vera hald­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár