„Þverpólitísk sátt“ um Borgarlínu nær ekki inn í Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík

Lang­flestir full­trúar í svæð­is­skipu­lags­nefnd höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þar á meðal þrír sjálf­stæð­is­menn í Kraganum, telja það fagn­að­ar­efni að borg­ar­línu­verk­efnið sé komið vel af stað. Ekki þó full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík.

Samstaða er á milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu Borgarlínu og fulltrúar segja fagnaðarefni hve langt á veg verkefnið er komið. Innan Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg ríkir ekki sama sáttin.
Samstaða er á milli sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um upp­bygg­ingu Borg­ar­línu og full­trúar segja fagn­að­ar­efni hve langt á veg verk­efnið er komið. Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg ríkir ekki sama sáttin. Mynd: Úr safni.

Næstum allir full­trúar í svæð­is­skipu­lags­nefnd höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins nema Marta Guð­jóns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks og Sveinn Óskar Sig­urðs­son, bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Mos­fellsbæ, segja það „mikið fagn­að­ar­efni“ að borg­ar­línu­verk­efnið sé komið jafn langt og raun beri vitni.

Þetta kom fram í sam­eig­in­legri bókun á fundi svæð­is­skipu­lags­nefndar 5. mars, en um var að ræða gagn­bókun við sam­eig­in­legri bókun þeirra Mörtu og Sveins Óskars, þar sem frum­draga­skýrsla Borg­ar­línu var gagn­rýnd, verk­efnið sagt of kostn­að­ar­samt og að það myndi valda umferð­artöfum að taka akreinar undir sér­rými Borg­ar­línu. Áður höfðu full­trúar Vega­gerð­ar­innar haldið kynn­ingu á frum­draga­skýrslu Borg­ar­línu fyrir nefnd­ar­mönnum.

„Einn helsti styrkur Svæð­is­skipu­lags­ins og Borg­ar­línu eru sá fag­legi grunnur og sú þverpóli­tíska sátt sem um verk­efnið ríkir. Aukin sam­keppn­is­hæfni og hús­næð­is­upp­bygg­ing á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er tryggð með upp­bygg­ingu Borg­ar­línu og ljóst að styrkur svæð­is­ins liggur í sam­stöðu sveit­ar­fé­lag­anna,“ segir í sam­eig­in­legri bókun frá næstum öllum öðrum full­trúum Reykja­víkur, Kópavogs, Hafn­ar­fjarðar, Garða­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness í nefnd­inni.

Í þeim hópi sem lagði fram bók­un­ina voru þrír full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ólafur Ingi Tómasson í Hafn­ar­firði, Sigurður Guð­munds­son í Garðabæ og Ásgeir Sveins­son í Mos­fellsbæ. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í meiri­hluta í öllum þessum sveit­ar­fé­lögum, auk Sel­tjarn­ar­ness.

Þverpóli­tíska sáttin sem þessi full­trúar sveit­ar­fé­lag­anna tala um að sé til staðar varð­andi þróun höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og upp­bygg­ingu Borg­ar­línu virð­ist þó ekki ná til full­trúa flokks­ins í Reykja­vík.

Tveir pólar hvað skipulagsmál varðar

Kjarninn sagði frá því fyrr í vik­unni að Marta Guð­jóns­dóttir myndi taka sæti í skipu­lags- og sam­göngu­ráði borg­ar­innar í stað Hildar Björns­dóttur borg­ar­full­trúa, sem færir sig yfir í skóla- og frí­stunda­ráð borg­ar­innar í stað­inn.

Það vakti athygli, enda hafa þær stöllur í borg­ar­stjórn­ar­flokki Sjálf­stæð­is­flokks lýst afar ólíkri sýn á skipu­lags­þróun Reykja­víkur og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins alls.

Hildur ritar einmitt í dag grein í Morg­un­blaðið og lýsir þar allt annarri sýn á skipu­lags­mál borg­ar­innar og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en lesa má út úr bókun Mörtu og Sveins Óskars um Borg­ar­línu.

„Lausn sam­göngu­vand­ans mun ekki fel­ast í hrað­braut gegnum Foss­vogs­dal­inn og mis­lægum gatna­mótum inn í Elliða­ár­dal­inn. Lausnin mun fel­ast í betra borg­ar­skipu­lagi, dreifð­ari atvinnu­tæki­færum og auk­inni fjar­vinnu – en ekki síst breyttum ferða­venjum og fjöl­breyttum val­kostum,“ segir Hildur í grein­inni.

Borg­ar­full­trú­inn gagn­rýnir í grein sinni til­lögur hóps sem kallar sig „Áhuga­fólk um sam­göngur fyrir alla“ (þar sem Sveinn Óskar situr einmitt í stýri­hópi) og kallar hug­myndir hóps­ins um ódýr­ari Borg­ar­línu „metn­að­ar­lausa útgáfu af hinu fyr­ir­hug­aða hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfi.“[links]

„Borg­ar­línu Lite til­heyra færri sér­a­kreinar, lengri bið­tími og verri þjón­usta. Hún er hvorki bylt­ing­ar­kennd né nýstár­leg hug­mynd. Hún hefur áður verið fullrann­sökuð og þótti ekki stand­ast gæða­kröfur,“ skrifar Hildur í grein­inni í Mogganum.

Sjálfstæðisflokkurinn geti leitt breytingar

Hún segir að nýir sam­göngu­kostir muni alltaf vekja við­brögð og breyt­ingar líka og að það hafi verið „ein­kenn­is­merki sjálf­stæð­is­manna að geta stað­ist slíkan brot­sjó – að geta leitt á krefj­andi umróts­tímum og sýnt stað­festu við inn­leið­ingu breyt­inga.“

Í grein Hildar segir að Borg­ar­línan og sam­hliða stokka­lausnir muni leiða af sér marg­vís­legan ávinn­ing fyrir gang­verk og ásýnd borg­ar­innar.

„Þær munu tryggja mann­vænna umhverfi, heild­stæð­ari borg­ar­hverfi og fjöl­breytt­ari val­kosti. Lausn­irnar eru liður í eðli­legu þroska­ferli Reykja­vík­ur­borgar – enda ein­kenni þró­aðra borga ekki að hinir efna­minni ferð­ist með bíl, heldur að hinir efna­meiri ferð­ist með almenn­ings­sam­göngum,“ skrifar Hildur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár