Hildur og Marta hafa sætaskipti í ráðum borgarinnar

Hildur Björns­dóttir fer í skóla- og frí­stunda­ráð og Marta Guð­jóns­dóttir í skipu­lags- og sam­göngu­ráð. Hildur segir við Kjarnann að þetta sé gert að hennar beiðni. Marta hlakkar til að takast á við skipu­lags­málin.

Hildur Björnsdóttir og Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.
Hildur Björns­dóttir og Marta Guð­jóns­dóttir borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Samsett

Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks mun víkja úr skipu­lags- og sam­göngu­ráði borg­ar­innar og taka sæti í skóla- og frí­stunda­ráði í stað­inn. Marta Guð­jóns­dóttir mun taka sæti Hildar í skipu­lags- og sam­göngu­ráði og víkja úr skóla- og frí­stunda­ráði. Kosning um breytta skipan í þessum nefndum og reyndar fleirum fer fram á borg­ar­stjórn­ar­fundi á morgun.

Aðspurð segir Hildur í sam­tali við Kjarnann að verið sé að gera þessar breyt­ingar að hennar beiðni. „Ég held við þurfum að setja skóla­málin ennþá meira á odd­inn,“ segir Hildur og nefnir að ekki sé búið að leysa „leik­skóla­vand­ann“ og auk þess standi grunn­skólar borg­ar­innar ekki vel, hvorki í inn­lendum né alþjóð­legum sam­an­burði.

Hildur, sem var í 2. sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, hefur verið einn þriggja full­trúa flokks­ins í skipu­lags- og sam­göngu­ráði það sem af er kjör­tíma­bili ásamt odd­vit­anum Eyþóri Arnalds og Katrínu Atla­dóttur.

Stundum hefur það vakið athygli að borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur ekki deilt sýn á skipu­lags­málin í borg­inni, meðal ann­ars í umræðum um Borg­ar­línu. Þær Hildur og Katrín hafa þá talað með öðrum hætti um fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en sumir aðrir kjörnir full­trúar flokks­ins í borg­inni.[links]

Hildur segir að hún muni áfram sitja í borg­ar­ráði, þar sem öll stærstu skipu­lags­málin séu tekin fyrir til afgreiðslu og á henni er að heyra að hún muni síður en svo hætta að láta skipu­lags­mál sig varða þrátt fyrir að víkja úr skipu­lags- og sam­göngu­ráði.

Marta ætlar að vinna eftir samþykktum Varðar

Marta Guð­jóns­dóttir, sem leysir Hildi af hólmi í skipu­lags­mál­unum, segir við Kjarnann að henni lít­ist „ljóm­andi vel á þetta.“ „Ég hef brenn­andi áhuga á skipu­lags­málum og hef beitt mér mikið í mála­flokknum,“ segir Marta.

Spurð út í þær áherslur sem hún taki með sér inn í starf ráðs­ins seg­ist Marta „fyrst og síð­ast“ ætla að fara eftir sam­þykktum Reykja­vík­ur­þings Varðar, full­trúa­ráðs sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík, hvað skipu­lags­málin varðar.

[adspot]

„Ég mun halda mig við það eins og ég hef gert hingað til,“ segir Marta.

Í stjórn­mála­á­lyktun síð­asta Reykja­vík­ur­þings Varðar, sem haldið var árið 2019, sagði meðal ann­ars að þétt­ing byggðar á ákveðnum svæðum í borg­inni, eins og hún hefði verið fram­kvæmd und­an­farin ár, væri „á villi­götum“ og hefði „víða haft skað­leg áhrif á umhverfi sitt.“

Einnig myndu „Borg­ar­lína og veggjöld“ ekki ein og sér leysa sam­göngu­vanda Reykja­víkur. „Umferð­ar­vandi borg­ar­innar verður aðeins leystur með fjöl­þættum lausnum þar sem íbúum gefst kostur að á að velja þann sam­göngu­máta sem hentar best hverju sinni. Stefna ber að því að Sunda­braut verði lögð sem fyrst,“ sagði í stjórn­mála­á­lyktun Varðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár