Bilið breikkar milli banka og lífeyrissjóða í útlánum til húsnæðiskaupa

Júní var umsvifa­minnsti mán­uður í útlánum til hús­næð­is­kaupa hjá líf­eyr­is­sjóðum en meira var greitt upp af lánum þeirra heldur en þeir lán­uðu út. Ný óverð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum námu alls 31 millj­arði króna hjá bönk­unum í júní.

Júní síð­ast­lið­inn var umsvifa­mesti ein­staki mán­uð­ur­inn, að minnsta kosti frá árinu 2013, í hreinum nýjum íbúða­lánum hjá bönk­unum. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) sem kom út í gær. Mán­uð­ur­inn var jafn framt sá umsvifa­minnsti í útlánum líf­eyr­is­sjóða síðan árið 2008.

Fram kemur í skýrsl­unni að hjá bönk­unum hafi ný óverð­tryggð íbúða­lán á breyti­legum vöxtum numið alls 31 millj­arði króna, að frá­dregnum upp­greiðslum, í júní. Óverð­tryggð lán á föstum vöxtum til þriggja eða fimm ára voru nei­kvæð um sem nemur þremur millj­örðum króna í sama mán­uði. Þá námu upp­greiðslur á verð­tryggðum lánum einum millj­arði umfram ný óverð­tryggð útlán.

Stærsti mánuður banka, minnsti mánuður lífeyrissjóða

„Hrein ný íbúða­lán bank­anna til heim­il­anna juk­ust alls um 23% að raun­virði frá maí til júní, en maí­mán­uður er þó næst stærsti útlána­mán­uður bank­anna hingað til. Að þeim mán­uði und­an­skildum var júní­mán­uður 66% stærri að raun­virði en sá útlána­mán­uður sem næstur kemur, sem var júlí 2015. Ef borið er saman við júní­mánuð í fyrra var aukn­ingin um 207% að raun­virði á milli ára,“ segir um útlán bank­anna til hús­næð­is­kaupa í skýrsl­unni.

Ný íbúða­lán líf­eyr­is­sjóð­anna voru í fyrsta sinn að lægri fjár­hæð en upp­greiðslur eldri lána hjá sjóð­unum. Ný óverð­tryggð lán námu 563 millj­ónum króna í júní en ný verð­tryggð lán voru alls nei­kvæð um 896 millj­ónir í mán­uð­inum. „Var júní síð­ast­lið­inn þar með sá umsvifa­minnsti innan líf­eyr­is­sjóð­anna frá upp­hafi mæl­inga. Síð­ast­liðna þrjá mán­uði hafa hrein ný íbúða­lán alls dreg­ist saman um 92% að raun­virði frá fyrstu þremur mán­uðum árs­ins og um 91% frá sama tíma í fyrra. Fyrstu sex mán­uði árs­ins mælist sá sam­dráttur um 37% frá sama tíma í fyrra,“ segir í skýrsl­unni.

Breytingar á vaxtakjörum skýra breytta stöðu

[links]Útlána­aukn­ing und­an­far­inna mán­aða má helst rekja til mik­illa vaxta­lækk­ana á und­an­förnum miss­erum að því er fram kemur í skýrsl­unni. Stýri­vextir hafa lækkað mikið og eru nú eitt pró­sent. Til sam­an­burðar voru þeir 3,75 pró­sent fyrir ári. Þetta hefur orðið til þess að vextir á hús­næð­is­lánum hafa lækkað hratt og þá sér­stak­lega á óverð­tryggðum lánum á breyti­legum vöxtum. Fyrr á þessu ári urðu vextir á slíkum lánum almennt lægri hjá bönk­unum heldur en hjá líf­eyr­is­sjóð­unum, ef frá er tal­inn Birta líf­eyr­is­sjóður. Því hefur hlut­deild banka í hús­næð­is­lánum heim­ila auk­ist á und­an­förnum mán­uðum, en lækkað hjá líf­eyr­is­sjóðum.

Í skýrslu HMS segir að hlut­deild hús­næð­is­lána í inn­lendum eignum bank­anna sé nú 29 pró­sent. Hlut­deildin hafi verið lægst í sept­em­ber árið 2008 þegar hún ham 8,1 pró­sent. Hlut­deild líf­eyr­is­sjóð­anna hefur vaxið hratt frá byrjun árs 2016 þegar hlut­deild hús­næð­is­lána í inn­lendum eignum sjóð­anna nam 6,8 pró­sentum. Í mars síð­ast­liðnum náði hún hámarki í 15,6 pró­sentum en er nú 15,1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár