Víðir: Við erum ekkert að grínast með þetta

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, var mjög ákveð­inn á upp­lýs­inga­fund­inum í dag þegar hann sagði: „Nú verða allir að taka þessu alvar­lega og fara eftir þessum leið­bein­ingum sem við erum að gefa út.“

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði frá því á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að þó nokkuð margar umsóknir um und­an­þágur frá sam­komu­banni hafi borist. Almanna­varna­deild og sótt­varna­læknir gefa umsagnir um þær en það er svo heil­brigð­is­ráðu­neytið sem tekur ákvörðun um að veita þær eða ekki.

Und­an­þágur hafa m.a. verið veittar mat­væla­fram­leiðslu­fyr­ir­tækjum sem eru mik­il­væg „til að halda okkur á lífi, það er að segja, við þurfum að fá að borða. Sagði Víðir að fyr­ir­tæki sem fái und­an­þágur þurfi að upp­fylla mjög ströng skil­yrði, m.a. hvað varðar aðskilnað starfs­manna og varn­ar­bún­aði starfs­fólks.

Hann sagði að tölu­vert mörgum umsóknum um und­an­þágur hafi verið hafnað.

[adspot]

Hert sam­komu­bann tók gildi á mið­nætti. „Þetta hefur gengið ágæt­lega,“ sagði Víðir um síð­ustu klukku­stundir. „Það er bara mjög mik­il­vægt, og það er það sem við erum að leggja áherslu á, að fólk fari eftir þessu. Við erum ekk­ert að grín­ast með þetta. Það er full alvara á bak við þessar tölur. Þess vegna verður fólk að taka þetta alvar­lega.“

Það er ekkert í samfélaginu sem virkar eins og venjulega

Víðir sagði að fjöldi und­an­þágu­beiðna frá sam­komu­banni sýni að það séu „ekki alveg allir“ með almanna­vörnum í bar­átt­unni.

[links]„Nú verða menn bara að spyrja sig: Af hverju erum við að þessu? Ef við horfum á löndin í kringum okkur, þar sem aðeins tveir mega koma saman, sem er mun lengra en við erum að ganga. Nú verða allir að taka þessu alvar­lega og fara eftir þessum leið­bein­ingum sem við erum að gefa út. Þetta er erfitt og snúið fyrir mörg fyr­ir­tæki. Mörg fyr­ir­tæki munu ekki getað starfað en það er ekk­ert í sam­fé­lag­inu að virka eins og það gerir venju­lega. Menn geta ekki sett þetta þannig niður fyrir sér að það muni eitt­hvað virka eins og venju­lega. Þetta er það sem menn þurfa að huga að núna.“

Hvað fellst í hertu samkomubanni?

Hert sam­komu­bann nær til allra skipu­lagðra við­burða þar sem fleiri en 20 manns koma saman. Við öll minni manna­mót þarf auk þess að tryggja að nánd milli fólks sé yfir tveir metrar.

Skipu­lagðir við­burðir sem bannið nær til eru til dæmis:

  • Ráð­stefnur, mál­þing, fundir og hlið­stæðir við­burðir. Skemmt­anir, s.s. tón­leikar, leik­sýn­ingar, bíó­sýn­ingar, íþrótta­við­burðir og einka­sam­kvæmi.
  • Trú­arat­hafnir hvers konar, s.s. vegna útfara, gift­inga, ferm­inga og ann­arra trú­ar­sam­koma.
  • Aðrir sam­bæri­legir við­burðir með 20 ein­stak­lingum eða fleiri.

Eft­ir­far­andi starf­semi er óheimil og verður lokað frá og með þriðju­deg­inum 24. mars:

  • Sund­laugar, lík­ams­rækt­ar­stöðvar, skemmti­staðir, spila­salir, spila­kassar og söfn.
  • Starf­semi þar sem nálægð er mikil er bönnuð og gildir það t.a.m. um hár­greiðslu­stofur, snyrti­stofur, nudd­stofur og aðra slíka starf­semi. Sjúkra­þjálfun sem er mik­il­væg vegna end­ur­hæf­ingar er heimil með skil­yrðum um öfl­ugar sótt­varna­ráð­staf­anir.
  • Allt íþrótta­starf barna og full­orð­inna þar sem nálægð er minni en tveir metrar og ein­hver sam­eig­in­leg notkun á bún­aði er fyrir hendi er bönnuð, þar með taldar skíða­lyftur.

Frekari upp­lýs­ingar er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár