Segjast ekki hafa nógu góðar upplýsingar til að leggja mat á sóttvarnastefnuna

Píratar á þingi segja að frek­ari upp­lýs­ingar þurfi að koma fram til að hægt sé að leggja mat á það hvort við séum á réttri leið í bar­áttu við veiruna. Þingmenn Við­reisnar segja kraft­litlar efna­hags­að­gerðir sam­fara sótt­vörnum skapa óvissu, sem auki kvíða.

Þingflokkur Pírata.
Þing­flokkur Pírata. Mynd: Brynjar Snaer Thrastarson

Þing­flokkur Pírata telur erfitt að segja til um það á þessu stigi hvort Ísland sé að feta rétta leið í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn eða hvort ein­hverju ætti að breyta varð­andi þá stefnu sem unnið sé eftir. Í sam­eig­in­legu svari til Kjarnans segir þing­flokk­ur­inn að „við höfum ekki fengið nægi­lega góðar upp­lýs­ingar til að meta það.“

„Það hefur þannig skort skýr­ingar á því til hvers var litið við ákvarð­anir í þessum efnum; hvaða hags­munir voru lagðir á vog­ar­skál­arnar, hvernig með­al­hófs og jafn­ræðis var gætt o.s.frv. Það er þó ótví­rætt að dag­legum til­fellum hefur fækkað þegar aðgerðir hafa verið hertar og því má segja að árangur hafi náðst við það að tak­marka útbreiðslu veirunnar. Það sem er óljóst er hvort það hefði verið hægt að ná sama eða jafn­vel betri árangri með öðrum ákvörð­unum, og eins hvaða hags­munum var fórnað til að ná umræddum árangri,“ segir í svari þing­flokks­ins.[links]

Svarið barst til blaða­manns eftir að umfjöllun birt­ist í Kjarn­anum í gær um svör þing­manna sem bár­ust við tveimur spurn­ingum sem lagðar voru fyrir alla þing­menn sem ekki sitja í rík­is­stjórn í síð­ustu viku. Það gerði líka svar frá þing­flokki Við­reisnar, sem greint er frá hér neðar í frétt­inni.

Annars vegar var spurt hvort þing­menn teldu að sótt­varna­ráð­staf­anir ættu að koma til umræðu og ákvörð­unar á Alþingi í stað þess að vera á for­ræði rík­is­stjórn­ar­innar eins og verið hefur. Hins vegar var spurt hvort þing­menn teldu Ísland hafa fetað rétta leið í glímunni við far­ald­ur­inn, eða hvort þörf væri á stefnu­breyt­ingu.

[adspot]

Hvað varðar fyrri spurn­ing­una seg­ist þing­flokkur Pírata telja „eðli­legt að fram­kvæmda­valdið taki ákvarð­anir um sótt­varnir innan ramma lag­anna en að Alþingi sinni sínu eft­ir­lits­hlut­verki og fjalli um ráð­staf­an­irnar,“ enda sé það hlut­verk þings­ins að fjalla um ákvarð­anir rík­is­stjórn­ar­innar.

„Alþingi á ekki að taka ákvarð­anir um ein­staka sótt­varn­ar­ráð­staf­anir nema með almennum laga­heim­ildum. Alþingi á jafn­framt að fara í ítar­lega skoðun á þeim laga­heim­ildum sem stjórn­völd beita til að tak­marka rétt­indi fólks og meta hvort þær séu full­nægj­andi og bregð­ast við ef svo er ekki,“ segja Píratar, í svari sínu til blaða­manns.

Þing­flokk­ur­inn segir það á „ábyrgð rík­is­stjórn­ar­innar að rök­styðja að þeirra ákvarð­anir hafi verið við­eig­andi miðað við aðstæður, með til­liti til þeirra tak­mark­ana sem voru settar á líf fólks og það er hluti af starfi þings­ins að hafa eft­ir­lit með og fara yfir rök­stuðn­ing rík­is­stjórn­ar­innar.“

Viðreisn: Kraftlitlar efnahagsaðgerðir valdi óvissu, kvíða og áhyggjum

Þing­flokkur Við­reisnar sendi Kjarn­anum einnig svör við spurn­ing­unum tveimur eftir að umfjöll­unin birt­ist í gær. Sótt­varn­ar­að­gerðir „eiga hik­laust að koma til umræðu inni á Alþingi og á það hefur skort,“ segir í svari þing­manna flokks­ins.

„Ráðherra setur reglu­gerð hverju sinni um ákvarð­anir en aðkoma þings­ins er gríð­ar­lega mik­il­væg, ekki síst eftir því sem þetta ástand leng­ist. Af þessum sökum hefur þing­flokkur Við­reisnar haft frum­kvæði að því að nú er búið að taka upp reglu­lega umræðu og skýrslu­gjöf frá heil­brigð­is­ráð­herra um sótt­varn­ar­ráð­staf­anir. Þetta gerðum við til að fá fram for­sendur að baki ákvörð­unum, að ráð­herra geri grein fyrir hags­muna­mati að baki og síð­ast en ekki síst til að stuðla að meiri festu og meiri fyr­ir­sjá­an­leika. Fólkið og fyr­ir­tækin í land­inu eiga rétt á því,“ segir í svari þing­flokks Við­reisnar.

Varðandi það hvort Ísland sé á réttri braut í glímunni við far­aldr­inum segir þing­flokkur Við­reisnar að sótt­varna­málin séu fag­lega á könnu sótt­varna­læknis og til­lögur hans fari til ráð­herra. Verkefni stjórn­mál­anna sé „hvernig við vinnum úr sam­hengi þeirra ráð­staf­ana við aðra hags­muni, efna­hags­að­gerðir og hvernig við verjum heilsu lands­manna að öðru leyti.“

Þing­flokkur Við­reisnar segir að það hafi „vantað veru­lega upp á að hörðum sótt­varn­ar­að­gerðum hafi fylgt kraft­miklar efna­hags­að­gerðir“ og að rík­is­stjórnin, með full­tingi Alþingis, hefði „átt að taka sér stærra hlut­verk og axla rík­ari ábyrgð.“

„Við höfum gagn­rýnt hversu stjórn­völd hafa verið svifa­sein að kynna efna­hags­að­gerðir sam­hliða sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum og gefa betri fyr­ir­heit og fyr­ir­sjá­an­leika um hvað verður gert við til­teknar aðstæður. Það hefur skapað óvissu sem hefur skað­leg áhrif í atvinnu­líf­inu og kvíða og áhyggjur sem getur haft var­an­legar afleið­ingar. Það hefur því skort á að staðið hafi verið við að gera meira en minna. Hér hefðum við viljað taka stór skref strax,“ segja þing­menn Við­reisnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár