Gefur kost á sér til prófkjörs sem óljóst er hvort fara muni fram

Ekki er útséð með hvernig Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík ætlar sér að velja á lista fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Í kvöld barst fjöl­miðlum þó til­kynn­ing um hugs­an­legt fram­boð í opið próf­kjör, ef af því verður.

Þorkell Sigurlaugsson er formaður velferðarnefndar Sjálfstæðisflokksins. Hann mun hugsanlega gefa kost á sér í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Reykjavík og vonast til að það verði í boði.
Þorkell Sig­ur­laugs­son er for­maður vel­ferð­ar­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann mun hugs­an­lega gefa kost á sér í 2.-3. sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík og von­ast til að það verði í boði. Mynd: Aðsend

Þorkell Sig­ur­laugs­son, við­skipta­fræð­ingur og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Fram­taks­sjóðs Íslands, boð­aði í kvöld að hann myndi vænt­an­lega sækj­ast eftir 2.-3. sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, ef slíkt próf­kjör færi fram.

Í til­kynn­ingu sem Þorkell sendi á fjöl­miðla kemur fram að hann hafi fengið tals­verða hvatn­ingu til þess að gefa kost á sér til þess að taka sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg, en Þorkell er for­maður vel­ferð­ar­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hins vegar hefur ekki verið ákveðið hvort flokk­ur­inn ætli sér að halda próf­kjör eða ekki. Á fundi hjá Verði, full­trúa­ráði sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík, sem fram fór þann 15. des­em­ber, var sam­þykkt til­laga um að halda svo­kallað leið­toga­próf­kjör í Reykja­vík eins og fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2018.

[adspot]

Full­­trú­a­ráð Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins þarf að sam­­þykkja leið­ina til að hún verði að veru­­leika með 2/3 hluta atkvæða. Gangi það eftir verður kosið í kjör­­nefnd til að fylla önnur sæti á list­an­­um og almennir flokks­menn myndu því ein­ungis fá að segja skoðun sína á því hver leiðir list­ann.[links]

Einungis einn fram­bjóð­andi gefur kost á sér til að leiða list­ann, en það er Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi. Hún hefur sagt að hún von­ist eftir því að flokk­ur­inn haldi opið próf­kjör um efstu sæti á lista. Eyþór Arnalds odd­viti flokks­ins í Reykja­vík hætti við fram­boð sitt skömmu eftir að Vörður sam­þykkti að leggja til leið­toga­próf­kjörið. Honum leist vel á að halda leið­toga­próf­kjör, eftir að sú til­laga kom fram.

Nú er komin yfir­lýs­ing um vænt­an­legt fram­boð til opins próf­kjörs hjá Sjálf­stæð­is­flokknum, sem eins og áður segir er enn óvíst hvort fari fram eða ekki.

„Vonandi verður haldið próf­kjör fljót­lega og þá mun ég vænt­an­lega bjóða mig fram í 2-3. sæti á list­anum,“ segir í orð­send­ingu Þorkels til fjöl­miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár