Sjálfstæðisflokkurinn ætlar í leiðtogaprófkjör í borginni

Ákveðið var í kvöld að við­hafa sama fyr­ir­komu­lag við val á odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík og var fyrir kosn­ing­arnar 2018. Kosið verður um leið­toga flokks­ins í borg­inni. Tveir borg­ar­full­trúar hafa þegar til­kynnt fram­boð.

Eyþór Arnalds og Hildur Björnsdóttir hafa þegar tilkynnt að þau sækist eftir oddvitasætinu.
Eyþór Arnalds og Hildur Björns­dóttir hafa þegar til­kynnt að þau sæk­ist eftir odd­vita­sæt­inu.

Kosið verður um leið­toga lista Sjálf­stæð­is­manna fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Reykja­vík að óbreyttu. Það er sama leið og flokk­ur­inn fór fyrir kosn­ing­arnar 2018 þegar Eyþór Arnalds var val­inn til að leiða lista flokks­ins. Þetta var ákveðið á fundi Varðar, full­trúa­ráðs sjálf­stæðis­fé­laga í Reykja­vík, í kvöld.

Full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins þarf að sam­þykkja leið­ina til að hún verði að veru­leika með 2/3 hluta atkvæða. Gangi það eftir verður kosið í kjör­nefnd til að fylla önnur sæti á list­anum.

Eyþór hefur gefið það út að hann stefni að end­ur­kjöri að óbreyttu og Hildur Björns­dóttir, sem var í öðru sæti á lista flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar, hefur þegar til­kynnt að hún skori hann á hólm. Enginn annar hefur sem stendur til­kynnt fram­boð í leið­toga­sætið.

[adspot]Ef sama aðferð verður notuð til að manna önnur sæti á list­anum og í fyrir síð­ustu kosn­ingar mun kjör­nefnd svo raða í önnur sæti að loknu leið­toga­kjöri og full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan taka afstöðu til þeirrar til­lögu.

[links]Árið 2018 sótt­ust, ásamt Eyþóri þau Kjartan Magn­ús­son og Áslaug Frið­riks­dóttir, þáver­andi borg­ar­full­trúar, Vil­hjálmur Bjarna­son fyrr­ver­andi Alþing­is­maður og Viðar Guðjohn­sen leigu­sali eftir því að leiða list­ann.

Enginn þeirra sem lutu í lægra haldi fyrir Eyþóri fékk sæti á lista flokks­ins í kjöl­farið og eini sitj­andi borg­ar­full­trú­inn sem sat í efstu sæt­unum var Marta Guð­jóns­dóttir.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 30,8 pró­sent atkvæða í þeim kosn­ingum og átta borg­ar­full­trúa kjörna. Fyrir vikið varð hann stærsti flokk­ur­inn í borg­inni á ný. Það dugði þó ekki til þar sem Sam­fylk­ingin, Viðreisn, Píratar og Vinstri græn mynd­uðu meiri­hluta og Dagur B. Egg­erts­son hélt áfram sem borg­ar­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár