Búa til blómabelti vítt og breitt fyrir býflugur

Býflugum hefur fækkað gríð­ar­lega mikið síð­ustu ára­tugi svo í mikið óefni stefnir. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök í Bret­landi fengu þá hug­mynd fyrir nokkrum árum að byggja upp net blóma­belta um landið til að bjarga býflug­unum.

Býfluga á kafi í villiblómi.
Býfluga á kafi í villi­blómi. Mynd: Af heimasíðu Buglife

Frá því á fimmta ára­tug síð­ustu aldar hefur svæði þar sem villi­blóm vaxa í Bret­landi minnkað um sjö millj­ónir hekt­ara eða 97 pró­sent. Sífellt meira land er brotið undir land­búnað og manna­bú­staði með þessum afleið­ingum. En villi­blómin eru grund­völlur lífs mjög mik­il­vægrar líf­veru – líf­veru sem gegnir lyk­il­hlut­verki í vist­kerfum jarðar: Býflug­unnar.

Í Bret­landi er því svo komið að býfluga sem kennd er við langa fálm­ara karl­dýrs­ins og nefn­ist long horned bee á ensku, er aðeins að finna á örfáum svæðum, aðal­lega á grös­ugum klettum við strönd­ina. Þessi býfluga er háð villi­blómunum sem hún lifir á. Í námunda við þau gerir hún svo bú sitt.

Fækkun býflugna í Bret­landi, ann­ars staðar í Evrópu, í Banda­ríkj­unum og víðar, hefur verið ljós í nokkur ár. Og skýr­ingin á fækk­un­inni sömu­leiðis. Bresku nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Buglife ætla nú að reyna að koma upp „býlínu“ – líf­línu fyrir býfl­ugur – um Bretland þvert og endi­langt. Línan verður í formi villi­blóma á að minnsta kosti 150 þús­undum hekt­ara lands, gangi allt að óskum. Blóma­beltin verða um þrír kíló­metrar að breidd og munu ná stranda á milli, þræða sig í kringum borgi og bæi og þekja sam­tals 48 þús­und fer­kíló­metra á Englandi.

„Ímyndaðu þér hvernig það væri að reyna að ferð­ast um Bretland án þess að hafa til þess vegi og járn­brautir. Ímyndaðu þér ef níu af hverjum tíu kíló­metrum af vegum væru horfnir. Lífið við þær aðstæður væri ómögu­legt,“ segir í kynn­ing­ar­texta býlínu verk­efn­is­ins á heima­síðu Buglife.

Vonast er til að blóma­beltin – býlínan – eigi eftir að skapa góð skil­yrði fyrir býfl­ug­urnar með löngu þreifar­ana og fleiri skor­dýr sem eru und­ir­staða alls lífs á jörð­inni.

Andrew Whitehouse, líf­fræð­ingur sem starfar hjá Buglife-sam­tök­unum segir að allt of mikið land­svæði villtra plöntu­teg­unda hafi verið brotið undir beitar- og rækt­ar­lönd. Það hafi slitið nátt­úru­leg blóma­belti í sundur sem hefti útbreiðslu og fjölgun býflugna. Þess vegna þurfi að tengja þau svæði sem eftir eru saman á ný. Og þar kemur býlínan til sög­unnar.

Catherine Jones, sem fer fyrir býlínu-verk­efn­inu hjá Buglife, segir að skipu­lag verk­efn­is­ins fyrir England sé klárt og síðar á þessu ári verið lokið við að skipu­leggja það í Skotlandi, Wales og á Norður-Írlandi.

Buglife hóf und­ir­bún­ings verk­efn­is­ins fyrir sex árum með fjár­stuðn­ingi frá umhverf­is­ráðu­neyt­inu og fleiri opin­berum aðilum. Við und­ir­bún­ing­inn hefur verið leitað til fjölda sam­starfs­að­ila, m.a. nátt­úru­vernd­ar­hópa á ýmsum svæðum, land­eig­enda og fleiri. Verk­efnið er þegar farið af stað og í sam­ein­ingu hafa þessir aðilar búið til 450 hekt­ara blóma­belti á milli nátt­úru­legra svæða sem enn eru ósnortin. Árang­ur­inn er þegar far­inn að koma í ljós og hefur ein býflugna­teg­und sést t.d. suður af Bristol þar sem engin slík fluga hefur fund­ist í sjö ár. Í blóma­belt­inu er ekki aðeins að finna blóm­strandi plöntur heldur ýmsar aðrar sem býfl­ug­urnar sækj­ast í.

Ein býlínan liggur frá strönd­inni í Devon og inn í land og von­ast er til þess að býflugan með löngu þreifar­ana nýti sér hana. Enn á eftir að fá marga land­eig­endur að verk­efn­inu svo að það geti fari að skila þeim árangri sem vænta má.

Þessa vik­una stendur yfir árvekni­á­tak í Bret­landi, Bees’ Needs Week, þar sem almenn­ingur er fræddur um hvernig hann getur tekið þátt í því að bæta lífs­kjör býflugna með ein­földum aðgerðum. Þær geta m.a. falist í því að planta ákveðnum blómum í garða og að slá flöt­ina sjaldnar.

Í Bret­landi er að finna 250 teg­undir af villtum býflugum. 24 þeirra eru hun­angs­fl­ugur og fækkað hefur um meira en 80 pró­sent í stofnum sex slíkra teg­unda á síð­ustu ára­tugum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár