Kunnugleg staða í íslenskum stjórnmálum einu ári eftir þingkosningar

Margt er sam­eig­in­legt með þeirri þróun sem varð á fyrsta ári rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur eftir kosn­ing­arnar 2017 og þess sem hefur gerst á því ári sem liðið er frá síð­ustu kosn­ingum.

Flokk­arnir sem mynda rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur fengu sam­tals 52,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 og byrj­aði líf­tíma sinn með 35 manna meiri­hluta, þótt það kvarn­að­ist úr honum síðar á kjör­tíma­bil­inu. Ári síðar var farið að halla tölu­vert undan fæti og fylgið mæld­ist ein­ungis 43,6 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði einn stjórn­ar­flokk­anna bætt ein­hverju við sig í könn­unum og mæld­ist með 25,8 pró­sent fylgi. Hinir tveir, Vinstri græn og Framsókn, höfðu tapað miklu fylgi, eða sam­tals 9,8 pró­sentu­stigum.

Nokkrum mán­uðum síðar skall á kór­ónu­veiru­far­aldur og fylgi stjórn­ar­flokk­anna tók kipp upp á við. Verkefni þeirra breytt­ist enda yfir nóttu í að vera fyrst og fremst við­bragð við heil­brigð­isvá og efna­hags­legum afleið­ingum þess far­ald­urs.

Þegar kosið var á ný í sept­em­ber í fyrra gerði mik­ill kosn­inga­sigur Fram­sókn­ar­flokks­ins, og for­dæma­laust lið­hlaup Birgis Þór­ar­ins­sonar úr Mið­flokki í Sjálf­stæð­is­flokk. það að verkum að stjórn­ar­flokk­arnir styrktu stöðu sína á þingi. Stjórn­ar­flokk­arnir fengu 54,3 pró­sent atkvæða og eru nú með 39 þing­menn af 63 á þingi.

[adspot]Það sem af er kjör­tíma­bili er margt svipað því sem gerð­ist á fyrsta ári rík­is­stjórn­ar­innar eftir kosn­ing­arnar 2017. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur reyndar tapað smá fylgi, en það er vart mæl­an­legt, og hinir tveir flokk­arnir hafa skroppið skarpt saman. Alls hafa Vinstri græn misst þriðj­ung síns fylgis á kjör­tíma­bil­inu og tapað fleiri pró­sentu­stigum en nokkur annar flokkur. Flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans mælist nú sjötti stærsti flokkur lands­ins. Framsókn er í frjálsu falli með 13,4 pró­sent fylgi og hefur misst bæði Sam­fylk­ingu og Pírata fram úr sér í stærð. Flokkur Sigurðar Inga Jóhanns­sonar er nú sá fjórði stærsti á þingi.

Með nákvæmlega sama fylgi og ári eftir kosningarnar 2017

Í þing­kosn­ing­unum 2017 fengu Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn sam­tals 28 pró­sent atkvæða. Ári síðar mæld­ist sam­eig­in­legt fylgi þeirra 38,4 pró­sent í könn­unum Gallup. Sú staða hélst alls ekki út kjör­tíma­bilið og þegar kosið var að nýju í sept­em­ber 2021 fengu flokk­arnir þrír sam­tals 26,8 pró­sent atkvæða. Eftir fjögur ár í stjórn­ar­and­stöðu gegn rík­is­stjórn sem átti lítið sam­eig­in­legt sam­kvæmt hefð­bundnum póli­tískum kvörðum þá tap­aði hin svo­kall­aða frjáls­lynda miðja fylgi milli kosn­inga. Það átti ekki að vera hægt.

Mestu mun­aði um hrun fylgis Sam­fylk­ing­ar­innar. Hún mæld­ist með 17 pró­sent fylgi í októ­ber 2018 – og fór reyndar upp í 19,3 pró­sent skömmu áður sem var mesta fylgi sem flokkur annar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist með á síð­asta kjör­tíma­bili – en fékk ein­ungis 9,9 pró­sent í kosn­ing­unum 2021.

Nú, ári eftir síð­ustu kosn­ingar, er Sam­fylk­ingin aftur á sigl­ingu og mælist næst stærsti flokkur lands­ins með 16,3 pró­sent fylgi. Þar skipta yfir­vof­andi for­manns­skipti í flokknum, sem munu eiga sér stað í lok þessa mán­aðar, senni­lega miklu máli. Þá mun Kristrún Frosta­dóttir að óbreyttu taka við for­mennsku af Loga Ein­ars­syni. Fylgi flokks­ins er samt sem áður minna en það var ári eftir kosn­ing­arnar sem leiddu af sér fyrstu rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur.

Sam­an­lagt fylgi hinnar frjáls­lyndu miðju er nú nákvæm­lega það sama og það var ári eftir kosn­ing­arnar 2017, eða 38,4 pró­sent.

Níu flokka þing breytir stöðunni

Nú mæl­ast hins vegar bæði Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins mun minni en þeir gerðu þá. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra tveggja var 16,5 pró­sent í lok októ­ber 2018 en mælist nú 10,5 pró­sent.

Þá hefur til­vist Sós­í­alista­flokks Íslands breytt stöð­unni í íslenskum stjórn­málum en hann mælist sem stendur með menn inni á þingi. Það þýðir að flokk­arnir á Alþingi yrðu níu tals­ins. Þótt Sós­í­alista­flokk­ur­inn bæti aðeins við sig einu pró­sentu­stigi í nýj­ustu könnun Gallup frá síð­ustu kosn­ingum þá myndi það skila honum þremur þing­mönnum í stað engra í dag.

Við það myndi rík­is­stjórnin falla, enda fengi hún ein­ungis 30 þing­menn ef kosið yrði í dag. Það er átta færri en hún fékk í síð­ustu kosn­ingum og níu færri en hún er með nú, þegar lið­hlaup Birgis Þór­ar­ins­sonar er talið með.

Auk Sós­í­alista­flokks­ins myndu Sam­fylk­ingin og Píratar bæta við sig. Fyrr­nefndi flokk­ur­inn fengi fjóra nýja þing­menn ef kosið yrði í dag en Píratar þrjá.

Nokkur stjórnarmynstur í kortunum

Sú staða myndi teikna upp nokkra mögu­leika í rík­is­stjórn­ar­myndun. Í ljósi þess að núver­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf næði ekki meiri­hluta, og bæði Sam­fylk­ing og Píratar munu ekki mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki, þá á stærsti flokkur lands­ins engan mögu­leika á tveggja eða þriggja flokka rík­is­stjórn­ar­sam­starfi miðað við stöðu mála í könn­unum í dag.

Ef mynda ætti stjórn til hægri þyrfti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að fá til liðs við sig Framsókn, Viðreisn og annað hvort Miðflokk eða Flokk fólks­ins til að ná þriggja manna meiri­hluta.

Frjáls­lynda miðjan – Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn – er sem stendur að mæl­ast með 24 þing­menn og ef miðju­flokk­ur­inn Framsókn myndi bæt­ast í hóp­inn væru flokk­arnir með 33 þing­menn og meiri­hluta. Önnur leið væri að horfa til vinstri, sleppa Viðreisn en bæta Vinstri grænum við fjög­urra flokka mynstrið og fá út sama meiri­hluta. Í slíku sam­starfi væri einnig hægt að bæta Sós­í­alista­flokknum við og ná þing­manna­fjöld­anum á bak­við stjórn­ina upp í 36.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár