Þjóðminjasafn og Minjastofnun sameinist í eitt

Til stendur að sam­eina Þjóð­minja­safn Íslands og Minja­stofnun Íslands. For­sæt­is­ráðu­neytið til­kynnir þetta form­lega á næst­unni. Boðað hefur verið til starfs­manna­funda hjá báðum stofn­unum eftir hádegi. Forn­leifa­fræða­sam­fé­lagið gagn­rýnir sam­ein­ing­una.

Til stendur að sam­eina Þjóð­minja­safnið og Minja­stofnun Íslands í eitt. For­sæt­is­ráðu­neytið til­kynnir þetta form­lega í dag eða á næstu dögum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra setti saman stýri­hóp síð­asta haust til þess að kanna kosti og galla sam­ein­ing­ar­innar og hefur sá hópur nú kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að æski­legt sé að sam­eina stofn­an­irnar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Capacent gerði einnig fýsi­leika­könnun og ræddi við hags­muna­að­ila.

Minja­stofnun Íslands er þriggja ára gömul stofnun, en hún varð til þann 1. jan­úar 2013 þegar Forn­leifa­vernd rík­is­ins og Húsa­frið­un­ar­nefnd sam­ein­að­ist í eitt. 

Starfsmannafundir haldnir í dag

For­stöðu­menn Þjóð­minja­safns­ins og Minja­stofn­unar eru boð­aðir á fund í ráðu­neyt­inu í hádeg­inu í dag. Fundað verður með öllum starfs­mönnum Þjóð­minja­safns í dag klukkan 14 og Minja­stofn­unar klukkan 15, þar sem staðan í mál­inu verður til­kynnt.

Margrét Hall­gríms­dóttir, for­stöðu­maður Þjóð­minja­safns Íslands, und­ir­strikar að hún hafi enn ekki fengið form­lega til­kynn­ingu um málið, en sé á leið á fund í ráðu­neyt­inu í hádeg­inu. Hún er á þeirri skoðun að það sé rétt að skoða sam­ein­ingu og telur margt benda til þess að hún efli starf­sem­ina.

„Ég fagna líka hversu fag­lega hefur verið staðið að þessu ferli. Þetta er ekki skyndi­á­kvörðun og hefur verið í umræð­unni síðan 2001,” segir hún. „Ég styð þetta heils­hugar út frá mál­efn­inu.” Margrét segir að talað hafi verið um að með sam­ein­ingu eigi ekki að þurfa að koma til upp­sagna meðal starfs­fólks. 

Kristín Huld Sig­urð­ar­dóttir, for­stöðu­maður Minja­stofn­unar Íslands, vildi ekki tjá sig um málið fyrr en fund­ur­inn væri afstað­inn með ráðu­neyt­inu.

Fræðigeirinn mótmælir harðlega

For­leifa­fræð­inga­fé­lag Íslands er alfarið á móti sam­ein­ing­unni og lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þess. Sam­ein­ingin auki við enn meiri óstöð­ug­leika á sviði menn­ing­ar­mála í land­inu. 

Á heima­síðu félags­ins kemur fram að for­mað­ur­inn, Sólrún Inga Trausta­dóttir, hafi verið kölluð á fund Capacent í byrjun febr­úar, ásamt fleiri for­svars­mönnum úr fræði­geir­anum, þar sem kostir og gallar sam­ein­ing­ar­innar voru ræddir. Auk Sólrúnar voru á fund­inum Bjarni F. Ein­ars­son, frá Forn­leifa­fræði­stof­unni, Albína Páls­dóttir, frá Íslenskum forn­leifa­rann­sóknum, Elín Ósk Hreið­ars­dóttir, frá Forn­leifa­stofnun Íslands, Berg­sveinn Þórsson, for­maður Félags íslenskra safna og safn­manna, Ágústa Krist­ó­fers­dóttir, for­stöðu­maður Hafn­ar­borgar og Þóra Björk Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Safna­ráðs. Var það ein­róma álit fund­ar­ins að sam­ein­ing stofn­an­anna væri slæm hug­mynd, segir á heima­síðu For­leifa­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár