Verðlækkun í miðborginni í kortunum

Allt stefnir í að mikið fram­boð af hús­næði verði í boði á næst­unni, á tíma þar sem eft­ir­spurn er að gefa nokkuð eftir. Fjallað er um stöð­una á fast­eigna­mark­aði í Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands.

Dræm sala á nýjum íbúðum í miðbæ Reykja­víkur bendir til þess að verð­lækkun gæti verið framundan á því svæði.

Þetta kemur fram í Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands, sem kom út í morgun. Fjallað er um stöð­una á fast­eigna­mark­aði í rit­inu.

Í rit­inu segir meðal ann­ars að allt bendi til þess að mikið fram­boð nýrra íbúða - og íbúða sem áður voru í útleigu til ferða­manna - muni leiða til mik­ils fram­boðs á næstu miss­erum, á tímum þar sem eft­ir­spurnin er að dala eftir mikið upp­gangs­tíma­bil.

„Nýbygg­ingum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur fjölgað mikið síð­ustu ár. Á árunum eftir efna­hags­á­fallið var óvenju­lítil fjár­fest­ing í íbúð­ar­hús­næði, sem leiddi til íbúða­skorts þegar eft­ir­spurn glædd­ist á ný. Samkvæmt spá Samtaka iðn­að­ar­ins er búist við að tæp­lega 2.300 nýjar íbúðir komi inn á mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á hverju ári næstu þrjú árin sam­an­borið við um 1.300 íbúðir á ári á síð­ustu þremur árum. Gangi spáin eftir verður fram­boð nýrra íbúða á næstu árum mun meira en á upp­gangs­ár­unum fyrir efna­hags­á­fallið, en á árunum 2006 til 2008 komu árlega um 2.100 nýjar íbúðir inn á mark­að­inn. Samhliða fjölgun nýbygg­inga hefur dregið úr skamm­tíma­út­leigu íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þessi þróun ætti að leiða til þess að íbúðir sem áður voru nýttar í skamm­tíma­út­leigu komi á sölu eða í lang­tíma­leigu. Því má gera ráð fyrir að fram­boð íbúð­ar­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu auk­ist nokkuð á næstu miss­erum. Hins vegar virð­ist fjöldi erlendra starfs­manna í bygg­ing­ar­iðn­aði hafa náð hámarki ásamt því að sem­ents­sala er farin að drag­ast saman,“ segir meðal ann­ars í Fjár­mála­stöð­ug­leika.

Fast­eigna­verð hefur staðið í stað und­an­farin miss­eri, sé litið til þró­unar raun­verðs. Í júlí mæld­ist verð­lækkun á fast­eigna­mark­aði en í ágúst 0,4 pró­sent hækkun, miðað við árið á undan. Mikil hækkun hefur verið á fast­eigna­verði á und­an­förnum árum, en mest mæld­ist árleg hækkun 23,5 pró­sent vorið 2017. Hún var þá hvergi í heim­inum meir, og sé horft til geng­is­þró­unar krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal, þá hækk­aði verðið um meira en 40 pró­sent á einu ári í Banda­ríkja­dal mælt.

Mikil sveifla niður á við hefur verið í kaup­samn­ingum miðað við í fyrra, að því er segir í Fjár­mála­stöð­ug­leika.

„Kaup­samn­ingum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fækk­aði um 12% á fyrstu átta mán­uðum árs­ins miðað við sama tíma í fyrra. Fækkun samn­inga um kaup á nýbygg­ingum var enn meiri eða 26%. Gögn yfir nýbygg­ingar á mark­aði og samn­inga um kaup á nýbygg­ingum benda til þess að sölu­tregða sé á nýbygg­ingum í miðbæ Reykja­víkur. Um 70-90% af nýjum íbúðum sem komið hafa inn á mark­að­inn á mat­svæðum utan mið­bæj­ar­ins sl. þrjú ár eru seld en ein­ungis um fjórð­ungur nýbygg­inga í miðbæ Reykja­víkur,“ segir í Fjár­mála­stöð­ug­leika.

Um sex prósent heildarskulda

Skuldir bygg­inga­geirans við bank­ana hafa auk­ist und­an­farin ár sam­hliða mik­illi upp­bygg­ingu. Þær námu um 168 millj­örðum króna í lok ágúst eða rúm­lega sex pró­sent af útlánum til við­skipta­vina.

Ætla má að veru­legur hluti þeirra skulda sé vegna bygg­ingar íbúð­ar­hús­næðis. Raun­vöxtur útlána kerf­is­lægt mik­il­vægra banka, þ.e. Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans, til bygg­inga­geirans hefur verið nær stöðugt yfir 10 pró­sent á árs­grund­velli frá árinu 2016. Í lok ágúst mæld­ist hann um 16 pró­sent sam­an­borið við rúm­lega 15 pró­sent í árs­lok 2018.

Þróunin snúist við

Á árunum 2016 og 2017 hækk­aði íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu umfram bæði laun og leigu­verð og langt umfram bygg­ing­ar­kostnað, sam­kvæmt upp­lýs­ingum í Fjár­mála­stöð­ug­leika. Þessi þróun hefur snú­ist við. Í lok ágúst hafði launa­vísi­talan hækkað um 4,3 pró­sent á und­an­förnum tólf mán­uðum, vísi­tala leigu­verðs um 3,7 pró­sent og vísi­tala bygg­ing­ar­kostn­aðar um 4,6 pró­sent, en vísi­tala fast­eigna­verðs hafði hækkað um 3,6 pró­sen. Verð­bólga mælist nú þrjú pró­sent á árs­grund­velli, og stýri­vextir Seðla­banka Íslands eru 3,25 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár