Fylgistap ríkisstjórnarflokkanna minna en nær allra annarra stjórna eftir bankahrun

Einungis ein rík­is­stjórn sem setið hefur frá 2009 hefur mælst með meira fylgi tíu mán­uðum eftir að hún tók við völdum en hún fékk í kosn­ing­unum sem færði henni þau völd. Sú rík­is­stjórn beið afhroð í kosn­ingum rúmum þremur árum síðar.

Sitjandi rík­is­stjórn­ar­flokkar hafa sam­eig­in­lega dalað minna í fylgi á fyrstu tíu mán­uð­unum eftir kosn­ingar en þær rík­is­stjórnir sem mynd­aðar voru eftir kosn­ing­arnar 2013, 2016 og 2017. Sam­eig­in­legt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna mæld­ist 46,1 pró­sent í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup,, eða 8,2 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi, og hafa allir flokk­arnir þrír tapað fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­inu.

Þegar sömu flokkar mynd­uðu rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar 2017 hröp­uðu vin­sældir þeirra hraðar en þær hafa gert nú. Þá fengu þeir minna sam­eig­in­legt fylgi í kosn­ing­unum sjálfum en fjórum árum síðar, alls 52,8 pró­sent, og höfðu misst 10,2 pró­sentu­stig tíu mán­uðum síðar. Fylgið náði aftur flugi eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á og hlut­verk rík­is­stjórn­ar­innar breytt­ist umtals­vert, í það að bregð­ast að stóru leyti við afleið­ingum hans, jafnt heil­brigð­is­lega og efna­hags­lega.

Fjaraði fljótt undan Panamastjórninni

Eina rík­is­stjórnin eftir banka­hrun sem hefur mælst með meira fylgi tíu mán­uðum eftir kosn­ingar er fyrsta hreina vinstri­st­jórnin, skipuð Sam­fylk­ingu og Vinstri grænum, sem mæld­ist með 55,2 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi í febr­úar 2010, eða 3,7 pró­sentu­stigum meira en hún fékk í kosn­ing­unum í apríl árið áður. Það fjar­aði þó hratt undan þeim stuðn­ingi á næstu árum og þegar kosið var 2013, eftir að rík­is­stjórnin náði að klára kjör­tíma­bilið sem minni­hluta­stjórn, fengu stjórn­ar­flokk­arnir ein­ungis 23,8 pró­sent atkvæða. Um for­dæma­laust fylgis­tap var að ræða.

[adspot]Sú sem tók við af henni, rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks undir for­sæti Sig­mundar Daviðs Gunn­laugs­sonar, fékk 51,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum sem fram fóru í apríl 2013. Tíu mán­uðum síðar hafði fylgi þeirra hrunið niður í 40 pró­sent. Sú rík­is­stjórn náði ekki að sitja út kjör­tíma­bilið heldur hrökkl­að­ist frá haustið 2016 í snemm­búnum kosn­ingum sem boðað var til eftir opin­berum Panama­skjal­anna.

Óvinsælasta ríkisstjórn seinni tíma

Eftir lang­vinna stjórn­ar­kreppu, þar sem afar illa gekk að mynda rík­is­stjórn, tók stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar, við stjórn­ar­taumunum snemma árs 2017, en kosið hafði verið í lok októ­ber árið áður. Flokk­arnir þrír voru ekki með meiri­hluta atkvæða á bak­við sig – fengu 47,7 pró­sent þeirra – en fengu samt sem áður 32 af 63 þing­mönnum kjörna, sem dug­aði til minnsta mögu­lega meiri­hluta í þing­inu. Tíu mán­uðum eftir að stjórnin tók við mæld­ist sam­eig­in­legt fylgi þeirra flokka sem að henni stóðu 34 pró­sent, eða 13,7 pró­sentu­stigum minna en þeir höfðu fengið í kosn­ing­unum haustið 2016. Örfáum vikum síðar, um miðjan sept­em­ber 2017, sprakk rík­is­stjórnin og boðað var til nýrra kosn­inga.

Eftir þær var mynduð rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur sem inni­hélt Vinstri græna, Sjálf­stæð­is­flokk og Framsókn og hefur hún setið síðan. Flokk­arnir end­ur­nýj­uðu sam­starf sitt í fyrra eftir að hafa bætt sam­eig­in­lega við sig fylgi milli kosn­inga, sem var ein­vörð­ungu til­komið vegna fylg­is­aukn­ingar Fram­sókn­ar­flokks­ins. Bæði Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokkur töp­uðu fylgi.

Framsókn tvöföld, Sjálfstæðisflokkur á pari en Vinstri græn dala

Í nýj­ustu fylgiskönnun Gallup, sem birt var í síð­ustu viku, kom fram að allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafi tapað fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­inu.

[links]Mestu hafa Vinstri græn tapað og fylgi flokks­ins hefur und­an­farna mán­uði mælst með því lægsta sem það hefur mælst frá því að Gallup fór að mæla það. Botninum var náð í júní þegar fylgið mæld­ist 7,2 pró­sent, og hafði aldrei mælst minna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað rúmum tveimur pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og Framsókn tæpum tveimur pró­sentu­stigum.

Ef horft er á þróun á fylgi flokk­anna tíu mán­uðum eftir að þeir mynd­uðu fyrst rík­is­stjórn í kjöl­far kosn­ing­anna 2017 þá hefur staða tveggja þeirra breyst umtals­vert. Á þeim tíma, í ágúst 2018, mæld­ist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks svipað og það er í dag, eða 22,7 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist hins vegar næstum tvisvar sinnum stærri nú en þá, fer úr 8,3 í 15,4 pró­sent. Vinstri græn eru hins vegar með umtals­vert lægra fylgi í dag en fyrir fjórum árum þegar flokk­ur­inn mæld­ist með 11,7 pró­sent. Í nýjasta Þjóð­ar­púls­inum mæld­ist fylgið 8,6 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár