Tíu staðreyndir um áframhald sóttvarnaraðgerða

Hvað felst í þeim sótt­varna­ráð­stöf­unum sem taka gildi á morgun og móta dag­legt líf Íslend­inga til 10. nóv­em­ber? Kjarninn tók það helsta saman.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti reglugerðir sínar um áframhaldandi sóttvarnaráðstafanir í gær.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra kynnti reglu­gerðir sínar um áfram­hald­andi sótt­varna­ráð­staf­anir í gær. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórnin kynnti í gær tvær reglu­gerðir frá heil­brigð­is­ráð­herra um áfram­hald­andi sótt­varna­ráð­staf­anir á Íslandi, sem taka munu gildi á morgun, þriðju­dag­inn 20. októ­ber.

Hér að neðan eru tíu stað­reyndir um áfram­hald aðgerða, sem Kjarninn tók saman.

1. Aðgerðir verða áfram harðari á höfuðborgarsvæðinu til 3. nóvember

Vegna hópsmits­ins sem bloss­aði upp á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í upp­hafi októ­ber­mán­aðar var talið nauð­syn­legt að hafa meiri hömlur á eðli­legu mann­lífi þar en ann­ars­staðar á land­inu. Svo verður áfram til og með 3. nóv­em­ber.

Það felur í sér að allt skipu­lagt íþrótta­starf á vegum ÍSÍ sem krefst snert­ingar eða notk­unar á sam­eig­in­legum bún­aði er bannað í borg­inni, en svo er ekki í lands­byggð­unum. Sund­laugar þurfa einnig að vera lok­aðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þær mega vera opnar utan þess.

Starf­semi klipp­ara, nudd­ara, snyrti­fræð­inga og ann­arra sem veita þjón­ustu sem krefst lík­am­legrar nándar og telst ekki heil­brigð­is­þjón­usta er áfram óheimil á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en leyfi­leg utan þess, séu allir með grímu. Veit­inga­staðir í höf­uð­borg­inni þurfa svo að loka dyrum sínum kl. 21, en í lands­byggð­unum mega þeir hafa opið til kl. 23.

2. Tveggja metra regla um allt land

Í upp­hafi sept­em­ber­mán­aðar, þegar veru­lega var slakað á sótt­varna­ráð­stöf­unum í land­inu, var eins metra reglan tekin upp í stað tveggja metra regl­unnar. Þegar aðgerðir voru hertar sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var tveggja metra reglan tekin aftur upp, en eins metra reglan gilti áfram ann­ars­staðar á land­inu.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði í sínu nýjasta minn­is­blaði að eins metra fjar­lægð frá smit­uðum ein­stak­lingi minnk­aði lík­urnar á smiti fimm­falt, en tveggja metra fjar­lægð minnk­aði lík­urnar tífalt. Hann mælti með því að taka upp tvo metrana um land allt.

3. Grímuskylda um allt land þegar ekki er hægt að tryggja tvo metra

Þegar aðgerðir voru hertar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í upp­hafi mán­aðar varð skylt að nota and­lits­grímur þar sem ekki væri hægt að tryggja tveggja metra fjar­lægð, meðal ann­ars í versl­unum. Þetta mun nú gilda um allt land.

4. Hópæfingatímar án snertingar og sameiginlegra áhalda leyfðir

Ein­hverjar lík­ams­rækt­ar­stöðvar, bæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og utan þess, munu geta hafið starf­semi að hluta á morgun, að skil­yrðum upp­fylltum. Það verður nefni­lega heim­ilt að standa fyrir og stunda íþrótta- og heilsu­rækt­ar­starf­semi ef um er að ræða skipu­lagða hóp­tíma þar sem allir þátt­tak­endur eru skráðir.

[adspot]

Skylt er að virða 2 metra regl­una, þátt­tak­endur mega ekki skipt­ast á bún­aði meðan á tíma stendur og allur bún­aður skal sótt­hreins­aður á milli hóp­tíma. Öll sam­eig­in­leg notkun á bún­aði sem er gólf-, loft- eða vegg­fastur, s.s. í lík­ams­rækt­ar­stöðvum, er óheimil.

5. Kylfingar á höfuðborgarsvæðinu mega spila á ný

Það verður á ný leyfi­legt að stunda golf og aðrar íþróttir sem ekki krefj­ast snert­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá og með morg­un­deg­inum. Á vef Golf­sam­bands Íslands eru kylfingar hvattir til þess að sinna per­sónu­legum sótt­vörnum, virða tveggja metra regl­una og forð­ast hópa­mynd­anir á golf­valla­svæð­unum.

6. Fótbolti stopp og kvennalandsliðið fer snemma til Svíþjóðar

Íþrótta­starf með snert­ingu er áfram bannað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem þýðir að íslenska fót­bolta­sum­arið gæti verið búið, en knatt­spyrnu­lið í borg­inni mega ekki æfa með hefð­bundnum hætti né spila fyrr en 3. nóv­em­ber. Ákvarð­anir bíða Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, sem hafði ein­sett sér að klára mótið fyrir 1. des­em­ber í síð­asta lagi.

Íslenska kvenna­lands­liðið í fót­bolta má ekki heldur æfa og ætlar að flýta för sinni til Sví­þjóðar, þar sem liðið á mik­il­vægan leik við heima­konur þriðju­dag­inn 27. nóv­em­ber, en Fótbolti.net greinir frá þessu í dag.

7. Hægt að endurmeta takmarkanirnar fyrir 10. nóvember

Þrátt fyrir að gengið sé út frá því að þessar nýju hömlur á mann­lífið muni gilda til 10. nóv­em­ber, þrjár heilar vikur, munu stjórn­völd end­ur­meta þörf á tak­mörk­unum eftir því sem efni standa til.

8. Talan er ennþá 20

Áfram verða reglur um fjölda­tak­mark­anir á sam­komum að mestu óbreyttar. Fjölda­sam­komur þar sem fleiri en 20 koma saman eru óheim­ilar, bæði í opin­berum rýmum og einka­rýmum. Und­an­tekn­ingar á þessu eru nokkrar, allt að 200 mega koma inn í versl­anir að því gefnu að rými sé til að halda 2 metra fjar­lægð á milli fólks. Þá mega 50 manns mæta til útfarar. Fjölda­tak­mark­anir gilda ekki um almenn­ings­sam­göngur og störf við­bragðs­að­ila, né um störf Alþingis og í dóm­stólum.

9. Umræða væntanleg á Alþingi

Mörgum finnst gengið á frelsi ein­stak­lings­ins með þeim sótt­varna­að­gerðum sem hafa verið í gildi. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mun flytja Alþingi munn­lega skýrslu um vald­heim­ildir sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­ráð­herra. Sigríður Á. Andersen þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sagði í Facebook-færslu um helg­ina að hún ætl­aði svo sjálf að óska eftir sér­stakri umræðu á þingi vegna aðgerð­anna.

10. Árangurinn veltur á þátttöku í aðgerðunum

Markmið aðgerð­anna er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 á Íslandi. Það veltur á þátt­töku almenn­ings í aðgerð­unum hversu vel það gengur, en hlut­fall þeirra sem grein­ast og eru þá þegar komnir í sótt­kví hefur verið hátt und­an­farna daga, sem er góðs viti. Alls eru 1.234 ein­stak­lingar í ein­angrun vegna COVID-19 á Íslandi í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár