„Þessir fundir eru bara á hættutímum og við erum á hættulegu augnabliki“

Til skoð­unar er að breyta sam­fé­lags­að­gerðum vegna fjölg­unar sýk­inga af COVID-19 hér á landi síð­ustu daga. Þá er einnig til skoð­unar að hækka við­búnað aftur á hættu­stig.Það var alvar­legur tónn í full­trúum yfir­valda á upp­lýs­inga­fundi í dag.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag.
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag. Mynd: Lögreglan

„Það er ekki til­viljun að við boðum til þessa upp­lýs­inga­fundar í dag,“ sagði Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri við upp­haf upp­lýs­inga­fundar almanna­varna og land­læknis í dag og rifj­aði upp að í síð­ustu viku hafi verið ákveðið að hætta með þá í bili þar sem allt virt­ist á réttri leið. „Það að við séum með þennan fund er vegna þess að við teljum að þjóðin þurfi að fá mik­il­vægar upp­lýs­ingar. Þessir fundir eru bara á hættu­tímum og við erum á hættu­legu augna­bliki.“

24 eru með virk smit á land­inu núna og í ein­angrun. „Þetta er tala sem við höfum ekki séð síðan 6. maí og sáum fyrst 4. mars,“ sagði Kamilla Sigríður Jós­efs­dóttir, stað­geng­ill sótt­varna­læknis, er hún fór yfir stöðu far­ald­urs­ins. Af þessum 24 hafa fjórtán smit­ast hér á landi. Þá hefur komið upp hóp­sýk­ing á Akranesi þar sem sjö sam­starfs­menn hafa sýkst. Enn er smitrakn­ing í gangi. Um 170 eru nú í sótt­kví en Kamilla sagði við­búið að þeim ætti eftir að fjölga.

„Við þurfum að fara vel yfir allar þær reglur, við­mið og leið­bein­ingar sem við erum að vinna með í dag,“ sagði Kamilla.

[adspot]

Efla á sýna­töku og skima fyrir veirunni í kringum þá hópa sem hafa greinst með smit en einnig af handa­hófi og mun Íslensk erfða­grein­ing veita aðstoð við þá skimun

„Það að við séum hérna enn á ný á upp­lýs­inga­fundi það minnir okkur á það að það er fjarri því að þessi veira sé farin,“ sagði Alma Möller land­læknir. Hún benti á að yfir­völd hefðu alltaf sagt að hafa þyrfti allar áætl­anir í sífelldri end­ur­skoðun. „Það er vissu­lega áhyggju­efni að við séum að fást við smit frá mis­mun­andi upp­runa sam­tímis,“ sagði hún. Benti hún á að fleiri lönd væru að fást við hóp­sýk­ingar þessa dag­ana.

Skýr­ing­arnar eru nokkrar. Búið er að létta á fjölda­tak­mörk­unum og hömlum og fólk er farið að ferð­ast á ný. „Okkur grunar að flest þessi smit komi erlendis frá,“ sagði Alma. Sem betur fer væri eng­inn alvar­lega veikur hér­lendis og það á einnig við um önnur lönd, m.a. Spán. Hvað skýri það sé óvíst en Alma benti á að meira væri ski­mað núna og að fleiri ungir ein­stak­lingar hefðu greinst en í vetur. Óvíst sé hvort þetta sé til marks um að veiran sé veik­ari. „Vegna stöð­unnar hér­lendis þar sem við erum að sjá sam­fé­lags­legt smit þá þurfum við að vera mjög á verði gagn­vart ein­kennum og láta taka sýni við minnsta grun.“

Þeir sem hafa greinst nýverið hafa verið með væg ein­kenni; hita, höf­uð­verk, slapp­leika og fleira. Einnig sagði Alma mik­il­vægt að vera vak­andi fyrir sjald­gæfari ein­kennum; skyndi­legt tap á lykt­ar­skyni til dæmis. Finni fólk fyrir ein­kennum er mjög mik­il­vægt að fólk haldi sig til hlés, fari í sýna­töku og haldi sig heima þar til nei­kvætt svar liggur fyrir. Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hóf þegar í gær að bæta aðgengi að sýna­töku og því ætti ekki að vera nein bið á að kom­ast í sýna­töku.

Alma var spurð út í birgðir á sýna­tökupinnum og sagði hún að þeir væru vissu­lega ekki ótak­mörkuð auð­lind. „En við höfum ekki verið í vand­ræðum og sjáum ekki fram á það í bili en auð­vitað er þetta eitt­hvað sem þarf að vaka yfir.“

Sagði hún alla í heil­brigð­is­kerf­inu í við­bragðs­stöðu ef á þyrfti að halda.

Sigríður Björk sagði að nú skipti mestu máli að við værum öll með­vituð og gættum var­úðar. Allir þyrftu að rifja upp allt það sem við lærðum í vetur um per­sónu­legar sótt­varnir. Veiran væri bráðsmit­andi en með skyn­semi og sam­visku­semi væri hægt að draga úr hættu á frek­ari útbreiðslu.

Lokaorð fund­ar­ins átti rík­is­lög­reglu­stjóri: „Við náðum að ráða nið­ur­lögum veirunnar í vor og við getum reynt að gera það aftur. Og ég hef trú á því að það tak­ist. Við skulum fara var­lega og vera góð hvert við annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár