Brjálæðið

Mann­skæð­asta skotárás í sögu Banda­ríkj­anna vekur upp margar spurn­ingar um byssu­eignir, hat­urs­glæpi, störf lög­regl­unnar og póli­tísk átök um byssu­lög­gjöf­ina.

Á hverjum degi deyja að með­al­tali um 36 ein­stak­lingar vegna byssu­glæpa í Banda­ríkj­unum. Séu sjálfs­víg og voða­skot með­talin, þá eru það 90 manns á dag. Heild­ar­fjöldi þeirra sem féll fyrir byssu­skotum var svip­aður fjöldi þeirra sem lést vegna bílslysa, eða um 34 þús­und.

Ekkert þróað ríki er með nærri því eins hátt hlut­fall og Banda­ríkin. Þau skera sig alveg úr. Munurinn er slá­andi. Um þrjá­tíu­faldur munur er á Banda­ríkj­unum og Bret­landi, svo dæmi sé tekið. Um 2,9 manns­líf á hverja 100 þús­und íbúa, en 0,1 í Bret­landi. Á Íslandi er hlut­fallið með allra lægsta móti (innan við 0,1) enda byssu­glæpir afar fátíðir í alþjóð­legum sam­an­burði.

Ógnvekjandi tölur

Í fyrra lét­ust 13.629 vegna byssu­glæpa í Banda­ríkj­unum, sam­kvæmt opin­berum tölum heil­brigð­is­yf­ir­valda í Banda­ríkj­unum. Í heim­inum öllum, einnig á skil­greindum stríðs­svæðum í mið­aust­ur­löndum og Norður-Afríku, þá lét­ust ríf­lega 18 þús­und vegna hryðju­verka­árása í fyrra, þar með talið vegna spreng­inga.

„Þjóð­ar­skömm, stöðvið brjál­æðið.“ Þannig skrif­aði New York Times í leið­ara á for­síðu sinni – í fyrsta skipti sem það er gert síðan 1920 – 5. des­em­ber í fyrra. Þetta var gert skömmu eftir að par hafði skotið 14 til bana í San Bern­ar­dino í Kali­forníu.

Í leið­ar­anum sagði meðal ann­ars, að það væri sið­ferð­is­legt hneyksli og þjóð­ar­skömm að Banda­ríkja­menn geti með lög­legum hætti keypt vopn sem eru hönnuð til þess að drepa fólk með miklum hraða og skil­virkni. „Þessi vopn eru stríðsvopn.“

Yfirheyrður

Atburð­irnir hrika­legu í Orlando, þar sem mann­skæð­asta skotárás í sögu Banda­ríkj­anna var fram­kvæmd á skemmti­staðnum Pulse, þar sem hinsegin fólk kom saman, hafa sett þessi mál aftur í kast­ljósið hér vestra. Þrátt fyrir að árásin sé rann­sökuð sem hryðju­verka­árás og hat­urs­glæpur, þá er það aðgengi Omars Mateen, hins 29 ára gamla ódæð­is­manns, að byssum sem hefur verið upp­spretta umræð­unnar í dag, hvort sem er í sjón­varpi, útvarpi, á net­inu eða í for­ystu­greinum dag­blaða.

Alrík­is­lög­reglan FBI hafði ítrekuð afskipti af Mateen, á árunum 2013 og 2014, og yfir­heyrði hann í tvígang. Árið 2013 og 2014 var rann­sókn á honum lokað, en beinar teng­ingar hans við hryðju­verka­sam­tök fund­ust ekki. Það var hins vegar vitað að hann væri ekki í jafn­vægi, og frá árinu 2011 þá höfðu lög­reglu­yf­ir­völd upp­lýs­ingar um að hann væri upp­stökkur, ofbeld­is­hneigður og ætti það til að tala með afar niðr­andi hætti um hinsegin fólk. For­eldrar hans stað­festu síðan, eftir árás­ina, að Mateen hefði orðið æstur við að sjá sam­kyn­hneigða kyss­ast opin­ber­lega, og blótað þeim í sand og ösku. Eig­in­kona hans fór frá honum vegna ofbeldis, en Mateen gekk ítrekað í skrokk á henni, án þess að fá á sig ákæru eða opin­bera rann­sókn, þrátt fyrir að hún hefði til­kynnt um ofbeldið til lög­reglu.

Forsetinn berst áfram

Þrátt fyrir þessa sögu, þá gekk hann inn í verslun og keypti AR 15 árás­ar­riffil og Glock skamm­byssu. Hann hafði til þess lög­vernd­aðan rétt. Vopnin not­aði hann síðan til að drepa fólkið í Pulse, í mann­skæð­ustu skotárás í sögu Banda­ríkj­anna.

Tilvik eins og þetta eru þau sem Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, hefur ítrekað rætt um að sé mik­il­vægt að greina nánar. „En við höfum ekki náð breyt­ingum í gegn,“ sagði Obama og fórn­aði höndum, þegar hann ræddi um byssu­málin við PBS, fyrir ell­efu dögum. Hann bar þá byssu­glæp­ina saman við aðgerðir sem ráð­ist var fyrir mörgum ára­tugum, til að greina orsakir bílslysa. Það hefði mestu máli skipti, að yfir­völd hafi sett á fót rann­sókn­ar­vinnu sem að lokum leiddi til þess að bíl­belta­notkun varð almenn, og öryggi fólks í umferð­inni jókst strax með áhrifa­miklum hætti. „Þegar kemur að byssu­glæp­unum, þá hefur hags­muna­sam­tökum eins og NRA (National Rifle Association, sam­tök byssu­eig­enda) tek­ist að koma í veg fyrir, að rann­sóknir fari fram og upp­lýs­inga sé aflað!,“ sagði Obama í þætti PBS. Hann sagði þetta vera grafal­var­legt mál, því að það sem reynd­ist best þegar væri verið að greina vanda­mál, væri að bera virð­ingu fyrir starfi vís­inda­manna og rann­sak­enda. Til þess þyrftu þeir aðgengi að öllum gögnum, og tíma til að vinna úr rann­sóknum sínum. Aðgerðir kæmu svo í kjöl­farið.

Á meðan ekki tekst að greina vanda­málin – eins og það háa hlut­fall byssu­glæpa er skýr vís­bend­ing um – þá verður vafa­lítið erfitt að búa til lög og reglur sem geta unnið gegn byssu­glæp­unum. Obama hefur sjálfur talað fyrir því, að bak­grunns­skoðun þeirra sem vilja kaupa vopn, sé mun nákvæm­ari en hún er núna, og að þeir sem grunur leiki á að séu hættu­legir sam­borg­urum sínum geti ekki nálg­ast hættu­leg skot­vopn. „En við þurfum að taka saman upp­lýs­ingar um þessi mál,“ ítrek­aði Obama, end­ur­tekið, og aug­ljós­lega pirr­aður á því hve illa hefur gengið að vinna gegn byssu­glæp­unum. Í yfir­lýs­ingu sem hann flutti vegna árás­ar­innar í Orlando sagði hann síðan að það væri ábyrgð­ar­hluti að gera ekki neitt.

Frá því að Obama varð for­seti, í nóv­em­ber 2008, hefur hann síend­ur­tekið haldið blaða­manna­fundi, oft með tárin í aug­unum, eftir að skotárásir á óbreytta borg­ara.

Blaða­manna­fundir Obama verið margir, um skotárásir. Þeir hafa komið eftir árásir á eft­ir­far­andi stöðum, eins og New York Times listaði þá upp, á sjö og hálfs árs valda­tíð hans.

    Skotárásir í valda­tíð Obama
  • 12. júní 2016. Orlando
  • 2. des­em­ber 2015. San Bern­ar­dino
  • 27. nóv­em­ber 2015. Colorado Springs
  • 1. októ­ber 2015. Roseburg
  • 16. júlí 2015. Chattanooga
  • 17. júní 2015. Charleston
  • 24. októ­ber 2014. Mar­ysville
  • 23. maí 2014. Isla Vista
  • 2. apríl 2014. Killeen,
  • 16. sept­em­ber 2013. Washington, D.C.
  • 7. Júní 2013 Santa Monica
  • 14. des­em­ber 2012. Newtown
  • 21. októ­ber 2012. Brookfield
  • 27. sept­em­ber 2012. Minn­ea­polis
  • 5. ágúst 2012. Oak Creek
  • 20. júlí 2012. Aurora
  • 5. nóv­em­ber 2009. Killeen
  • 2. apríl 2012. Oakland
  • 12. októ­ber 2011. Seal Beach
  • 8. jan­úar 2011. Tucson
  • 3. ágúst 2010. Manchester
  • 12. febr­úar 2010. Huntsville
  • 5. nóv­em­ber 2009. Killeen
  • 3. apríl 2009. Bing­hamton

Hatursglæpur gegn hinsegin fólki

Brotalöm í byssu­lög­gjöf­inni er eitt, en hat­urs­glæpur gegn hinsegin fólki annað. Mikil sam­staða hefur skap­ast meðal hinsegin fólks um allan heim eftir árás­ina í Orlando. Hún hitti sam­fé­lag hinsegin fólks í hjarta­stað, enda staðir eins og Pulse var, hálf­gert athvarf fyrir fólk innan þessa sam­fé­lags. Það sækir styrk til fólks í svip­uðum aðstæðum. „Pulse var grið­ar­staður fjöl­breyttrar flóru hinsegin fólks, sem sumu hverju hafði verið úthýst af fjöl­skyldum sínum. Þar fann fólk nýja fjöl­skyldu, vini, gleði og ást. Árásin er því árás á hjarta hinsegin sam­fé­lags­ins.

Árásin er hat­urs­glæpur sem bein­ist gegn hinsegin fólki um allan heim. Hinsegin fólk er með kerf­is­bundnum hætti beitt ofbeldi, jað­ar­setn­ingu og útskúfun víða um heim og þessi árás er af sama meiði. Hún er öfga­full birt­ing­ar­mynd hinsegin hat­urs sem hinsegin fólk þekkir því miður of vel á eigin skinni,“ segir í yfir­lýs­ingu sem Samtökin 78 sendu frá sér í dag. Hún er í takt við yfir­lýs­ingar sam­taka hinsegin fólks um allan heim, sem hafa for­dæmt glæp­inn og minnt á, að ekki megi horfa fram­hjá því að árásin bein­ist beint gegn hinsegin fólki. Þetta sé ekki hryðju­verk sem bein­ist gegn fólki að handa­hófi, heldur hafa árás­armað­ur­inn valið þennan stað. Regn­boga­litir eru víða sjá­an­legir, ekki síst hér í New York. Í gær­kvöldi var efsta nálin á Empire State bygg­ing­unni lituð í regn­boga­litum, hinsegin fólki til stuðn­ings. Það sama má segja um skóla­svæði Columbia skól­ans, þar sem víða mátti sjá regn­boga­lit­ina og stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar. „Við erum með ykkur!“ stóð á einum fán­anum, sem var á tröpp­unum fyrir utan bóka­safnið á skóla­svæð­inu.

Hvað gerðist?

Enn eru að ber­ast upp­lýs­ingar, sem munu gefa betri mynd af því sem gerð­ist, frá mín­útu til mín­útu, inn á Pulse. Ljóst þykir nú, að aðgerðir sér­sveitar lög­regl­unnar í Orlando, kunna að hafa leitt til þess að nokkrir lét­ust, þegar lög­reglu­menn skutu í átt að Mateen. Á blaða­manna­fundi í morgun, greindi tals­maður lög­regl­unnar frá því að rann­sókn stæði yfir á aðgerð­unum, þar sem meðal ann­ars væri rætt við vitni inni á staðnum og í nágrenni. Lög­reglu­maður á frí­vakt, sem var inni á staðnum, var sá fyrsti sem greip til varna gegn Mateen, og skipt­ust þeir á skotum. Eftir nokkurn tíma tókst að króa hann inni á kló­setti, en lög­reglan virð­ist ekki hafa haft nákvæmar upp­lýs­ingar um hversu margir voru þar inni. Sér­sveitin ákvað að brjóta sér leið í gegnum vegg, inn á bað­her­bergið, þar sem Mateen var að lokum skot­inn til bana.

Nákvæm­ari upp­lýs­ingar hafa ekki feng­ist, en FBI, lög­reglan í Orlando og stjórn­völd í Banda­ríkj­unum hafa sagt að öllum steinum verði velt við til að skýra hvernig 50 ein­stak­lingar létu lífið í þess­ari mann­skæð­ustu skotárás í sögu Banda­ríkj­anna, og 53 til við­bótar særð­ust, sumir alvar­lega.

Því miður segir sagan okkur það, að ekki þurfi að líða svo langur tími þar sem næsta brjál­æð­is­lega árás mun eiga sér stað. Þá, eins og nú, mun salti verða stráð í opið sár á banda­rísku þjóð­inni, sem síend­ur­teknar skotárásir hafa skilið eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár