NY Times birtir leiðara á forsíðu: Stöðvið byssufaraldurinn

Skjáskot af forsíðu New York Times í dag
Skjáskot af for­síðu New York Times í dag Mynd: New York Times

Það er sið­ferð­is­legt hneyksli og þjóð­ar­skömm að Banda­ríkja­menn geti með lög­legum hætti keypt vopn sem eru hönnuð til þess að drepa fólk með miklum hraða og skil­virkni. Þessi vopn eru stríðsvopn.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í leið­ara New York Times í dag, en leið­ar­inn, sem heitir The Gun Epidemic, eða Byssu­far­ald­ur­inn, birt­ist á for­síðu blaðs­ins. Þar er kallað eftir hert­ari reglum um byssu­eign eftir fjölda­skotárásir und­an­farið.

„Athygli og reiði Banda­ríkja­manna ætti einnig að bein­ast að kjörnum leið­togum sem hafa það verk­efni að tryggja öryggi okkar en þykir meira verð­mæti í pen­ingum og póli­tískum völdum iðn­aðar sem er helg­aður því að hagn­ast á óhindr­aðri útbreiðslu enn öfl­ugri skot­vopna,“ segir meðal ann­ars í leið­ar­anum. „Kjörnir leið­togar Banda­ríkj­anna bjóða fram bænir fyrir fórn­ar­lömb skot­vopna, og svo, til­finn­inga­lausir og án hræðslu við afleið­ing­arnar, hafna þeir grund­vall­ar­tak­mörk­unum á vopn sem eru notuð í fjöldamorðum, eins og þeir gerðu á fimmtu­dag­inn. Þeir afvega­leiða okkur með rökum sem inni­halda orðið hryðju­verk. Verum alveg skýr: Þessi fjöldamorð eru öll, á sinn hátt, hryðju­verk.“

Í leið­ar­anum er komið inn á það að and­stæð­ingar þess að byssu­lög­gjöfin verði hert noti sem rök að þeir sem ætli sér að drepa verði sér úti um vopn. Það hafi gerst í Frakk­landi, Englandi og Noregi, þar sem byssu­lög­gjöfin er ströng. Leið­ara­höf­undur segir að það sé vissu­lega rétt, „en þessi lönd eru að minnsta kosti að reyna. Banda­ríkin eru það ekki.“

Það verði að fækka skot­vopnum veru­lega og útrýma mörgum teg­undum. „Hvaða tími er betri en á meðan á for­seta­kosn­ingum stendur til að sýna loks­ins að þjóðin hefur ennþá sóma­kennd sína?“ er spurt að lokum í leið­ar­anum.

Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1920 sem leið­ari er birtur á for­síðu blaðs­ins. Arthur Sulzberger Jr., útgef­andi blaðs­ins, segir að blaðið hafi ákveðið að setja leið­ara á for­síð­una til að senda sterka og sýni­lega yfir­lýs­ingu um gremju og þján­ingu yfir plág­unni sem byssur séu. Forsíður blaða séu ennþá mjög sterkar og öfl­ugar og góð leið til að koma mál­efnum sem þarfn­ist athygli á fram­færi. „Og hvaða mál­efni er mik­il­væg­ara en það að þjóð­inni mis­tekst að vernda borg­ar­anna?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár