Viðskipti með fasteignir minnka til muna í COVID-19 faraldri

COVID-19 far­ald­ur­inn hefur haft mikil áhrif á fast­eigna­við­skipti en þegar apríl á þessu ári er bor­inn saman við apríl 2019 fækkar kaup­samn­ingum um tæp 50 pró­sent og velta minnkar nær um helm­ing.

Fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga um fast­eignir við sýslu­manns­emb­ættin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apríl 2020 var 282. Heild­ar­velta nam 15,3 millj­örðum króna og með­al­upp­hæð á hvern kaup­samn­ing var 54,1 milljón króna. Við­skipti með eignir í fjöl­býli námu 11,7 millj­örðum, við­skipti með eignir í sér­býli 3 millj­örðum og við­skipti með aðrar eignir 0,5 millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Þjóð­skrár um fast­eigna­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apríl á þessu ári.

Þegar apríl 2020 er bor­inn saman við apríl 2019 fækkar kaup­samn­ingum um 47,8 pró­sent og velta minnkar um 45,6 pró­sent. Í apríl 2019 var 540 kaup­samn­ingum þing­lýst, velta nam 28,1 millj­arði króna og með­al­upp­hæð á hvern kaup­samn­ing 52 millj­ónir króna, að því er fram kemur hjá Þjóðskrá.

Þegar apríl 2020 er bor­inn saman við mars 2020 fækkar kaup­samn­ingum um 53,9 pró­sent og velta minnkar um 54,3 pró­sent. Í mars 2020 var 612 kaup­samn­ingum þing­lýst, velta nam 33,4 millj­örðum króna og með­al­upp­hæð á hvern kaup­samn­ing 54,5 millj­ónir króna.

Þjóðskrá vekur athygli á að með­al­upp­hæð kaup­samn­ings sé ekki hægt að túlka sem með­al­verð eigna og þar með sem vís­bend­ingu um verð­þróun. Þetta sé vegna þess að hver kaup­samn­ingur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mis­stórar, mis­gamlar og svo fram­vegis.

Flestum samingum þinglýst á Norðurlandi utan höfuðborgarsvæðisins

Fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga um fast­eignir á Norð­ur­landi í apríl 2020 var 78, sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár um fast­eigna­mark­að­ur­inn utan höf­uð­borg­ar­svæðis í apríl á þessu ári. Þar af voru 44 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 25 samn­ingar um eignir í sér­býli og 9 samn­ingar um ann­ars konar eignir. Heild­ar­veltan var 2.526 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 32,4 millj­ónir króna. Af þessum 78 voru 52 samn­ingar um eignir á Akureyri. Þar af voru 39 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 9 samn­ingar um eignir í sér­býli og 4 samn­ingar um ann­ars konar eignir. Heild­ar­veltan var 1.832 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 35,2 millj­ónir króna.

Á Aust­ur­landi var 12 samn­ingum þing­lýst. Þar af var 1 samn­ingur um eign í fjöl­býli, 10 samn­ingar um eignir í sér­býli og 1 samn­ingur um ann­ars konar eign. Heild­ar­veltan var 336 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 28 millj­ónir króna. Af þessum 12 voru 3 samn­ingar um eignir í Fjarða­byggð. Þar af voru 2 samn­ingar um eignir í sér­býli og 1 samn­ingur um ann­ars konar eign. Heild­ar­veltan var 32 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 10,5 millj­ónir króna.

Á Suð­ur­landi var 57 samn­ingum þing­lýst. Þar af voru 11 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 32 samn­ingar um eignir í sér­býli og 14 samn­ingar um ann­ars konar eignir. Heild­ar­veltan var 1.792 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 31,4 milljón króna. Af þessum 57 voru 39 samn­ingar um eignir á Árborg­ar­svæð­inu*. Þar af voru 8 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 28 samn­ingar um eignir í sér­býli og 3 samn­ingar um ann­ars konar eignir. Heild­ar­veltan var 1.339 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 34,3 millj­ónir króna.

Á Reykja­nesi var 38 samn­ingum þing­lýst. Þar af voru 16 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 19 samn­ingar um eignir í sér­býli og 3 samn­ingar um ann­ars konar eignir. Heild­ar­veltan var 1.221 milljón króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 32,1 millj­ónir króna. Af þessum 38 voru 25 samn­ingar um eignir í Reykja­nesbæ. Þar af voru 13 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 10 samn­ingar um eignir í sér­býli og 2 samn­ingar um ann­ars konar eignir. Heild­ar­veltan var 886 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 35,4 millj­ónir króna.

Á Vest­ur­landi var 48 samn­ingum þing­lýst. Þar af voru 26 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 15 samn­ingar um eignir í sér­býli og 7 samn­ingar um ann­ars konar eignir. Heild­ar­veltan var 2.024 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 42,2 millj­ónir króna. Af þessum 48 voru 35 samn­ingar um eignir á Akranesi. Þar af voru 24 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 10 samn­ingar um eignir í sér­býli og 1 samn­ingur um ann­ars konar eign. Heild­ar­veltan var 1.682 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 48,1 millj­ónir króna.

Á Vest­fjörðum var 10 samn­ingum þing­lýst. Þar af voru 2 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 7 samn­ingar um eignir í sér­býli og 1 samn­ingur um ann­ars konar eign. Heild­ar­veltan var 242 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 24,2 millj­ónir króna. Af þessum 10 voru 6 samn­ingar um eignir á Ísafirði. Þar af voru 2 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 4 samn­ingar um eignir í sér­býli. Heild­ar­veltan var 166 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð á samn­ing 27,7 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár