Þetta eru áhyggjur Þórólfs

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir tínir til marg­vís­leg áhyggju­efni sín í minn­is­blað­inu sem liggur til grund­vallar hertum sam­komu­tak­mörk­unum sem eru þær ströng­ustu í far­aldr­inum hingað til.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Sótt­varn­ar­læknir mælist til þess að ekki fleiri en tíu komi saman á einka­heim­ilum. Und­an­skildar er stærri fjöl­skyldur sem búa á sama heim­ili.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í minn­is­blaði sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sendi heil­brigð­is­ráð­herra í gær. Ráð­herr­ann hefur fall­ist á nær allar til­lögur hans, m.a. um að færa fjölda­tak­mark­anir niður í tíu í stað tutt­ugu og hafa sam­komu­tak­mark­anir í far­aldr­inum ekki áður verið jafn strangar.

Tilefni hertra aðgerða er ríkt, að mati Þórólfs. Harðar aðgerðir hafa verið í gildi í rúmar þrjár vikur en árangur ekki verið nægi­legur. Nýgengi hefur farið hækk­andi og klasa­sýk­ingar sjást víða og tengj­ast m.a. skólum, vinnu­stöðum, einka­sam­kvæmum og lík­sam­rækt­ar­stöðvum. Þá er Land­spít­al­inn á neyð­ar­stigi og dregið hefur verið úr fram­kvæmd val­kvæðra aðgerða. Fimm far­sótt­ar­hús eru nú starf­rækt og veik­indi þeirra sem þar dvelja hafa farið versn­andi. Einnig hefur komið upp smit í jað­ar­hópum, far­sótt­ar­þreyta gert vart við sig og að auki er far­ald­ur­inn í miklum vexti í Evrópu.

[adspot]

Hertar inn­an­lands­að­gerðir tóku gildi 5. og 6. októ­ber. Frá þeim tíma hefur sam­fé­lags­smitum heldur farið fækk­andi á lands­vísu, skrifar Þórólfur í minn­is­blaði sínu en bendir á að hins vegar hafi bæst við tvö stór hópsmit. Annað var á frysti­skip­inu Júlíusi Geir­munds­syni þar sem 22 greindust og hitt kom upp á Landa­koti, þar sem að rúm­lega 80 ein­stak­lingar hafa greinst, ýmist starfs­menn eða sjúk­lingar. Smitið hefur auk þess borist út fyrir Landakot til hjúkr­un­ar­heim­ilis á Eyr­ar­bakka og á Reykja­lund.

[links]„Á þess­ari stundu er ekki séð fyrir end­ann á hóp­sýk­ing­unni og ekki ljóst hvort hún muni dreifa sér víðar í sam­fé­lag­inu,“ skrifar Þórólfur. Inn­an­lands­smit að frá­dregnum ofan­greindum hóp­sýk­ingum séu hins vegar mæli­kvarði á virk sam­fé­lags­smit. Þessum smitum hafi fækkað en síð­ustu dag­ana hefur dag­legur fjöldi verið 13-28 ein­stak­lingar.

„Áhyggju­efni er því að með þetta mikið af sam­fé­lags­legu smiti í gangi muni á ein­hverju tíma­punkti á næst­unni brjót­ast út hóp­sýk­ingar og valda enn meira álagi á heil­brigð­is­kerfið.“

Þessa bylgju far­ald­urs­ins má aðal­lega rekja til smita sem tengj­ast krám í miðbæ Reykja­víkur og til nokk­urra lík­ams­rækt­ar­stöðva. Und­an­farið má rekja smitin til hópa­myndana í vina­hópum, innan fjöl­skyldna og í skólum. Aðeins einn stofn veirunnar hefur greinst í þess­ari bylgju sem rekja má til ein­stak­lings sem kom inn í landið 10. ágúst.

Þórólfur von­ast til þess að þær hertu aðgerðir sem taka munu gildi á mið­nætti þurfi ekki að standa lengur en í tvær vikur. Þær snúa að því að minnka sem mest sam­gang ein­stak­linga, virða nánd­ar­regl­una sem mest og auka notkun á grímum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár