Grænlendingar hafa í hótunum við Dani og Bandaríkjamenn

Aleqa Hamm­ond, þing­maður Græn­lands, dönsku rík­is­stjórn­ina um sinnu­leysi og sagði brýnt að stjórnin tæki málið þegar í stað upp og krefðist þess að Banda­ríkja­menn hefð­ust handa við að fjar­lægja úrgang­inn sem þeir skildu eftir.
Aleqa Hamm­ond, þing­maður Græn­lands, dönsku rík­is­stjórn­ina um sinnu­leysi og sagði brýnt að stjórnin tæki málið þegar í stað upp og krefð­ist þess að Banda­ríkja­menn hefð­ust handa við að fjar­lægja úrgang­inn sem þeir skildu eftir. Mynd: EPA

Árið 1958 þegar Banda­ríkja­menn útbjuggu stóra her­stöð um 20 metrum undir yfir­borði Græn­lands­jök­uls grun­aði engan að tæpum sex ára­tugum síðar yrði þessi her­stöð, eða leif­arnar af henni, að alvar­legu ágrein­ings­efni. Svo alvar­legu að Græn­lend­ingar hóta að taka málið upp á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ásak­an­irnar snúa að Banda­ríkja­mönnum og Dönum. Græn­lend­ingar saka Dani sömu­leiðis um að sýna íbúum Græn­lands lít­ils­virð­ingu og græn­lenski utan­rík­is­ráð­herr­ann segir algjört van­traust ríkja milli Græn­lend­inga og Dana. Danski for­sæt­is­ráð­herr­ann kann­ast ekki við þessa lýs­ingu.

Camp Century

Í sept­em­ber 1960 lagði 18 ára danskur skáti, Sören Greg­er­sen upp í óvenju­lega ferð ásamt banda­rískum jafn­aldra sínum, Kent Goering. Til Græn­lands. Pilt­arnir, sem komu með flugi hvor frá sínu heima­landi, hitt­ust í Thule her­stöð­inni á Norður-Græn­landi og héldu þaðan á snjó­sleða 225 kíló­metra inn á jökul­inn til staðar sem nefndur var Camp Century. Staðar sem hvor­ugur þeirra þekkti nokkuð til fyrr en nokkrum mán­uðum áður en þeim bauðst að fara þangað til hálfs árs dvalar. Þegar þeir komu á stað­inn var 25 stiga frost, þeir vissu svo sem að þeir væru ekki á leið­inni á sól­ar­strönd, en kuld­inn kom þeim eigi að síður á óvart. Þótt tví­menn­ing­arnir hefðu heyrt talað um hið svo­kall­aða kalda stríð höfðu þeir ekki bein­línis sett það í sam­hengi við þessa Græn­lands­ferð og gerðu sér ekki grein fyrir að þeir væru um það bil að verða þátt­tak­endur í einum kafla þess. Kafla sem ára­tugum síðar, og löngu eftir að kalda stríð­inu lyki, yrði að alvar­legu ágrein­ings­efni Græn­lend­inga, Dana og Banda­ríkja­manna.

Þeir gerðu sér hins­vegar grein fyrir að þetta Camp Century, þangað sem þeir voru nú komnir, væri ekki neitt venju­legt. Þegar þeir félagar gengu inn um hell­is­munn­ann, eins og Sören Greg­er­sen komst síðar að orði, var þeim ekki ljóst hversu stórt þetta neð­an­jarð­ar­byrgi væri. Samtals þrír kíló­metrar og göngin þrjá­tíu tals­ins á um það bil tutt­ugu metra dýpi undir jökl­inum. Nánast eins og lítið þorp með tvö hund­ruð íbúa, bóka­safn, bíó­hús og verslun svo fátt eitt sé nefnt. Íbúð­irnar voru sam­settar úr ein­ingum sem höfðu verið fluttar á stað­inn og þar var allt til alls. Það sem vakti þó mesta athygli pilt­anna tveggja var orku­verið, sem reyndar var ekki alveg full­gert. Orku­verið var fær­an­legur kjarna­ofn sem gæti fram­leitt alla þá orku sem íbúar í þessu jök­ul­þorpi þyrftu á að halda og reyndar dugað marg­falt fjöl­menn­ara sam­fé­lagi. Í löngu við­tali sem dag­blaðið Politi­ken birti fyrir nokkrum dögum sagði Sören Greg­er­sen að hann hefði aldrei upp­lifað annan eins lúxus og í þessu neð­an­jarð­ar­þorpi. „Þótt her­mönn­unum hafi ugg­laust fund­ist erfitt að dvelja þarna lang­tímum saman, fjarri ætt­ingjum og vinum þótti okkur strák­unum þetta bara spenn­andi,” sagði Sören Greg­er­sen.

Stóra planið - Project Iceworm

Þótt þeim Sören Greg­er­sen og Kent Goering hafi þótt mikið til um Camp Century var neð­an­jarð­ar­her­stöðin þó ein­ungis eins­konar til­raun eða und­ir­bún­ingur fyrir það sem ætl­unin var að gera á Græn­landi. Ætlun Banda­ríkja­manna var að grafa fjöl­mörg göng, sam­tals 4000 kíló­metra löng, undir Græn­lands­jökli, þar sem hægt væri að koma fyrir allt að 600 kjarn­orkuflug­skeytum. Gert var ráð fyrir að allt að 11 þús­und her­menn yrðu að jafn­aði stað­settir í þess­ari risa­stóru jök­ul­ver­öld. Þessar hug­myndir, Project Iceworm, voru auð­vitað algjört leynd­ar­mál. Dvöl skát­anna tveggja í Camp Century, sem fjöl­miðlar víða um heim greindu ítar­lega frá, átti hins­vegar að sýna umheim­inum að engin leynd hvíldi yfir aðgerðum Banda­ríkja­manna á Græn­landi. Fréttir þessar áttu að slá ryki í augu umheims­ins, ekki síst Dana. Dönsk stjórn­völd höfðu opin­ber­lega brugð­ist ókvæða við hug­myndum um að koma fyrir kjarna­vopnum í Thule her­stöð­inni á Norður-Græn­landi, þótt þau hefðu síðar með óljósu orða­lagi látið í það skína að þau myndu snúa blinda aug­anu að ef til slíks kæmi. En þá vaknar spurn­ingin: voru ein­hverjar líkur taldar á að Danir gætu fall­ist á að 600 kjarn­orkuflug­skeytum yrði komið fyrir undir Græn­lands­jökli? Á það reyndi aldrei því risa­verk­efnið Project Iceworm var lagt á hill­una. Fyrir því voru margar ástæður: Danir hefðu (að mati Banda­ríkja­manna) aldrei sam­þykkt að kjarn­orku­vopn yrðu geymd undir jökl­inum, kostn­aður við neð­an­jarð­ar­her­stöð­ina hefði orðið gríð­ar­legur og reynslan af Camp Century leiddi í ljós marg­hátt­aða erf­ið­leika, meðal ann­ars mikla hreyf­ingu á jökl­inum. Árið 1997 fengu hol­lenskir fræði­menn og danskur kollegi þeirra aðgang að leyniskjölum Banda­ríkja­hers og greindu fyrstir frá áætl­un­inni Project Iceworm.

En hvað varð um Camp Century?

Þeirri spurn­ingu er fljótsvarað. Her­stöð­inni var lokað 1. apríl 1966. Banda­ríkja­menn fluttu tæki og tól á brott, en margt varð þó eftir. Ekki síst alls kyns úrgangur, þar á meðal næstum 10 þús­und tonn af hættu­legum úrgangs­efnum og 200 þús­und lítrar af díselolíu, sem Banda­ríkja­her hefur kannski talið að jök­ull­inn myndi geyma um ókomin ár og eng­inn myndi nokkru sinni vita um. Stundum er sagt að jök­ull­inn skili alltaf á end­anum öllu því sem hann gleypir og geymir og það er einmitt það sem nú er að ger­ast á Camp Century svæð­inu á Græn­lands­jökli. Virt banda­rískt vís­inda­tíma­rit birti sl. sumar nið­ur­stöður rann­sókna og mæl­inga sem sýna að á næstu árum og ára­tugum muni eitr­aður og geisla­virkur úrgangur frá her­stöð­inni koma upp á yfir­borð jök­uls­ins, með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum.

Grænlendingar krefjast aðgerða

Á fyrsta starfs­degi danska þings­ins, Fol­ket­inget, í haust sak­aði Aleqa Hammond þing­maður Græn­lands dönsku rík­is­stjórn­ina um sinnu­leysi og sagði brýnt að stjórnin tæki málið þegar í stað upp við banda­rísk stjórn­völd og krefð­ist þess að Banda­ríkja­menn hefð­ust strax handa við að fjar­lægja úrgang­inn sem þeir hefðu skilið eftir þegar Camp Century var lokað. Hún benti einnig á að það væru fleiri staðir á Græn­landi sem skoða þyrfti í þessu sam­hengi. Margir þing­menn tóku í sama streng og Kristian Jensen, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra lýsti yfir að hann myndi athuga málið (se paa det). Þetta þótti Alequ Hammond þing­manni klént svar og undir það tóku fleiri þing­menn. Vittus Qujaukitsoq sem fer með utan­rík­is­mál í græn­lensku stjórn­inni hefur margoft sakað dönsku rík­is­stjórn­ina um sinnu­leysi varð­andi mál­efni Græn­lands.

Hóta að taka málið upp hjá Sameinuðu þjóðunum

Fyrir nokkrum dögum birti dag­blaðið Politi­ken langt við­tal við áður­nefndan Vittus Qujaukitsoq. Hann fór þar hörðum orðum um dönsku stjórn­ina, og banda­rísk stjórn­völd, og sagði að ef ekk­ert gerð­ist von bráðar varð­andi hreins­un­ar­starf á Camp Century svæð­inu yrðu Græn­lend­ingar að taka málið upp á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Banda­ríkja­her á mik­illa hags­muna að gæta á Græn­landi og vill að lík­indum í lengstu lög forð­ast að lenda upp á kant við íbúa lands­ins.

Æ fleiri Grænlendingar vilja slíta tengslin við Danmörku

En græn­lenski ráð­herr­ann sagði fleira í áður­nefndu við­tali sem vakti mikla athygli í Danmörku. Einkum þau ummæli ráð­herr­ans að Græn­lend­ingar væru lang­þreyttir á sam­skiptum sínum við Dani og þær græn­lensku raddir sem krefð­ust sjálf­stæðis gerð­ust nú æ fleiri og hávær­ari. Allt tal danskra stjórn­mála­manna um að Grænland gæti ekki án Dan­merkur verið lit­ist af dönskum hags­munum. Þegar ummæli græn­lenska ráð­herr­ans voru borin undir Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dana vildi hann fátt segja annað en að sam­skipti Dan­merkur og Græn­lands væru bæði mikil og góð. Anders Samu­el­sen utan­rík­is­ráð­herra sagð­ist ekki kann­ast við þessar lýs­ingar græn­lenska ráð­herr­ans.

Stjórn­völd á Græn­landi settu fyrir tveimur mán­uðum á lagg­irnar nefnd sem á að vega og meta kosti þess og galla að Grænland verði sjálf­stætt ríki sem ráði alfarið sínum málum sjálft. Nefnd­inni hafa ekki verið sett tíma­mörk en miðað er við að hún skili nið­ur­stöðum sínum eins fljótt og tök eru á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár