Baráttumál útgerðanna um afnám stimpilgjalda samþykkt á Alþingi

„Þetta skaðar okkar menn,“ segir for­maður Sjó­manna­sam­bands­ins, um frum­varp um afnám stimp­il­gjalda í skipa­við­skiptum sem sam­þykkt var á Alþingi í gær. Frum­varpið lækkar skatt­byrði útgerða og sjó­menn ótt­ast að það skaði atvinnu­ör­yggi þeirra.

Eftir að lögin taka gildi mun það ekki kosta útgerðirnar eina krónu, allavega ekki í stimpilgjöld hér á landi, að færa skip inn og út af íslenskri skipaskrá.
Eftir að lögin taka gildi mun það ekki kosta útgerð­irnar eina krónu, alla­vega ekki í stimp­il­gjöld hér á landi, að færa skip inn og út af íslenskri skipa­skrá. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Umdeilt frum­varp um afnám stimp­il­gjalds vegna skipa­við­skipta, sem sjó­menn telja að stefni atvinnu­ör­yggi þeirra í hættu, var sam­þykkt á Alþingi í gær. Um er að ræða frum­varp sem lækkar skatt­byrði útgerð­anna, en á árunum 2008 til 2017 greiddu íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki rúma 1,2 millj­arða króna í stimp­il­gjöld vegna við­skipta sinna með fiski­skip.

Sjómenn ótt­ast að með afnámi stimp­il­gjalds­ins fari útgerð­ar­fyr­ir­tækin að flagga skipum sínum inn og út úr land­inu í stór­auknum mæli, með nei­kvæðum afleið­ingum fyrir íslenska sjó­menn. Þegar talað er um að flagga skipum úr landi er átt við að færa þau eign­ar­hald þeirra til félaga erlendis, til þess að geta veitt í erlendum lög­sögum.[links]

Í umsögn Sjó­manna­fé­lags­ins og VM - félags vél­stjóra og málm­tækni­manna um frum­varpið sagði að stimp­il­gjöldin hefðu til þessa verið „nauð­syn­legur hem­ill“ til að vernda störf íslenskra sjó­manna. Bent var á að sjó­menn væru í flestum til­fellum fjöl­skyldu­menn sem ættu lífs­við­ur­væri sitt undir öruggu rekstr­ar­um­hverfi skip­anna sem eru þeirra starfs­vett­vangur og Félag skip­stjórn­ar­manna tók svip­aðan streng í umsögn sinni um málið.

Val­mundur Val­munds­son, for­maður Sjó­manna­sam­bands­ins, segir í sam­tali við Kjarnann að meiri­hluti efna­hags og við­skipta­nefndar hafi aug­ljós­lega ekk­ert hlustað á áhyggjur stétt­ar­fé­lag­anna af þessu máli og segir ljóst að laga­breyt­ingin muni koma niður á sjó­mönnum.

„Þetta skaðar okkar menn,“ segir Val­mundur og bendir á að þegar skip séu færð héðan og yfir til tengdra félaga í Græn­landi sitji und­ir­menn í íslenskri áhöfn skips­ins gjarnan eftir með sárt ennið og enga vinnu, þar sem græn­lensk lög kveða á um að græn­lensk fiski­skip séu að mestu mönnuð græn­lenskum skip­verjum. Þeir sem fái græn­lenskt pláss séu einnig á mun lak­ari kjörum en kveðið er á um í íslenskum kjara­samn­ingum og missi smám saman rétt­indi sín til almanna­trygg­inga á Íslandi. Þetta sé því slæmt mál.

[adspot]

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar mælti með því að frum­varpið yrði sam­þykkt óbreytt. Varðandi áhyggjur sjó­manna af atvinnu­ör­yggi í vís­aði nefnd­ar­meiri­hlut­inn í nefnd­ar­á­liti sínu bæði til umsagnar Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), hags­muna­sam­taka útgerð­ar­manna sem hafa lengi hafa barist fyrir því að stimp­il­gjaldið verði afnumið, og einnig til minn­is­blaðs frá atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu um þetta álita­efni.

SFS sögðu að staða íslenskra sjó­manna myndi ekki breyt­ast, yrði frum­varpið að lögum og í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins sagði meðal ann­ars að frum­varpið myndi í engu breyta kjörum sjó­manna við veiðar íslenskra skipa á íslenskum afla­heim­ildum. Ráðu­neytið benti jafn­framt á að auð­veld­ara yrði að flytja skip tíma­bundið frá Íslandi og til ann­ars ríkis. Með því gætu orðið til nýjar tekjur hjá útgerð­ar­fé­lögum og mögu­lega einnig tæki­færi fyrir íslenska sjó­menn.

Val­mundur segir að hann telji að ráðu­neytið hafi í raun ekki tekið afstöðu til þeirra atriða sem sjó­menn höfðu áhyggjur af, en byggt á minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins og umsögn SFS sagð­ist meiri­hluti nefnd­ar­innar þó ekki hafa „ástæðu til að ótt­ast“ að afnám stimp­il­gjalds­ins ógn­aði atvinnu­ör­yggi sjó­manna.

Einnig sagð­ist meiri­hluti nefnd­ar­innar telja að atvinnu­ör­yggi starfs­stétta bæri að tryggja öðru­vísi en með stimp­il­gjöldum á atvinnu­tæki, til dæmis í lögum um við­kom­andi atvinnu­grein og í kjara­samn­ingum.

Engar brýnar aðstæður kalli á skattalækkun á útgerðirnar

Ekki var þó ein­hugur um þessa afstöðu í efna­hags- og við­skipta­nefnd. Jón Steindór Valdi­mars­son þing­maður Við­reisnar og Álf­heiður Eymars­dóttir Pírati sögðu í áliti sínu um málið að þrátt fyrir að þau væru á því að í fyll­ingu tím­ans væri skyn­sam­legt að stefna að afnámi allra stimp­il­gjalda í áföngum, væri nú um að ræða sér­tæka skatta­lækkun fyrir útgerðir sem kaupa og selja fiski­skip.

„Engar brýnar aðstæður kalla á að sköttum sé sér­stak­lega létt af útgerð­inni eins og frum­varpið gerir ráð fyrir. Ekki síst í ljósi þeirra erf­iðu og óljósu tíma sem nú eru í efna­hags­málum,“ sögðu Jón Steindór og Álf­heiður.

Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar tók undir þá afstöðu sem hafði komið frá stétt sjó­manna, að vel kæmi til greina að fella niður stimp­il­gjöldin þegar skip kæmu í fyrsta skipti inn á íslenska skipa­skr. Það væri þó ekki rétt að fella þau niður þegar verið væri að flagga skipum inn og út af íslensku skipa­skránni eftir hent­ug­leika.

„Afleið­ingar þess­arar breyt­ingar geta orðið veru­legar fyrir stöðu íslenskra sjó­manna. Stöðu sjó­manna ætti frekar að gæta að og styðja í stað þess að grípa til ráð­staf­ana sem ógna atvinnu­ör­yggi þeirra. Skýrt dæmi um slíkt er þegar íslensk skip eru skráð á Græn­landi en sam­kvæmt græn­lenskum lögum er skylda að allir und­ir­menn á skip­inu séu græn­lenskir. Einnig eru slysa­trygg­ingar og kjara­samn­ings­bundin rétt­indi sem sjálf­sögð eru á íslenskum skipum ekki á skipum sem flaggað er til Græn­lands,“ sagði Oddný í áliti sínu.

Önnur umræða um frum­varpið fór fram í þing­inu á þriðju­dag. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins sagði þá að hann gæti ekki stutt frum­varpið þrátt fyrir að vera í grunn­inn sam­mála afnámi stimp­il­gjalds. Á frum­varp­inu væri nefni­lega sá galli að ekki væri komið til móts við yfir­lýstar áhyggjur sjó­manna með neinum hætti.

„Sanngirnismál“ fyrir útgerðirnar

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sagð­ist á móti vera full­viss um að þetta myndi virka í báðar áttir, þannig að fleiri erlendum skipum yrði flaggað inn og þau mönnuð íslenskum áhöfnum.

[adspot]

„Við sjáum núna, þegar loðnu­brestur verður, að það væru gríð­ar­leg tæki­færi í því að útgerðin gæti flaggað út skip­unum sínum, til þess að stunda veiðar á öðrum haf­svæðum. Það er gríð­ar­lega kostn­að­ar­samt að flagga skipum inn og út og svona venju­legt upp­sjáv­ar­skip, notað, er að greiða kannski svona 70-80 millj­ónir þegar þú flaggar því út og annað eins þegar það kemur til baka,“ sagði Ásmundur, sem bætti því við um rétt­læt­is­mál væri að ræða fyrir íslenskar útgerðir.

„Það þætti mörgum Suð­ur­nesja­mann­inum skrítið, ef að Icelandair ætl­aði að flagga út flug­vél í ein­hverja mán­uði í verk­efni erlendis, að þá þyrfti að borga stimp­il­gjald af flug­vél­inni. Það dettur ekki nokkrum manni í hug. Þess vegna er það bara sann­girn­is­mál að útgerðin sitji við sama borð og aðrir,“ sagði Ásmundur.

Margt skrítið í „þríeinum kýrhaus ríkisstjórnarinnar“

Jón Steindór þing­maður Við­reisnar steig einnig í pontu á þriðju­dag og gagn­rýndi að þetta frum­varp væri verið að sam­þykkja núna í miðjum heims­far­aldri sem er, sam­kvæmt spá Seðla­banka Íslands, að fara að blása Íslandi inn í dýpstu kreppu síðan árið 1920.

„Nú ber svo við að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa metið það svo að það sé for­gangs­at­riði að ívilna útgerð­inni með klæð­skera­sniðnu frum­varpi henni til hags­bóta. Það er væg­ast sagt sér­kenni­legt, en það er nú einu sinni þannig að í hinum þrí­eina kýr­haus rík­is­stjórn­ar­innar er margt skrítið og kemur kannski ekki á óvart hvernig hinn þrí­eini kýr­haus hugsar í þessu máli,“ sagði Jón Steindór.

Fleiri þing­menn, sem mót­fallnir voru frum­varp­inu, tjáðu sig um það í pontu Alþingis í gær og sögðu þing­menn bæði Við­reisnar og Sam­fylk­ingar að sam­þykkt frum­varps­ins sýndi að hags­munir stór­út­gerð­ar­innar í land­inu væru í fyr­ir­rúmi hjá rík­is­stjórn­inni.

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar sagð­ist sitja hjá við afgreiðslu máls­ins með óbragð í munni og Guð­mundur Andri Thorsson þing­maður Sam­fylk­ingar sagði að um væri að ræða sum­ar­gjöf rík­is­stjórn­ar­innar til útgerð­anna.



Málið var sam­þykkt með 28 atkvæðum gegn 14.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár