Ætla að afnema stimpilgjöld vegna fiskiskipa

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki munu ekki lengur þurfa að greiða stimp­il­gjöld vegna eigna­yf­ir­færslu skipa verði nýtt frum­varp að lögum. Gjöldin skil­uðu rík­is­sjóði 1,2 millj­arði króna í tekjur á árunum 2008 til 2017.

Brátt verður ódýrara fyrir sjávarútvegsfyrirtæki að selja og kaupa stór fiskiskip á Íslandi.
Brátt verður ódýr­ara fyrir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki að selja og kaupa stór fiski­skip á Íslandi. Mynd: Brim

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp sem, verði það að lögum, mun afnema stimp­il­gjöld af fiski­skipum. Á árunum 2008 til 2017 greiddu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki rúm­lega 1,2 millj­arða króna í stimp­il­gjald vegna fiski­skipa.

[links]Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hafa barist hart fyrir því að gjaldið verði afnumið, nú síð­ast í umsögn um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2020. Þau segja aðgerð­ina nauð­syn­lega og löngu tíma­bæra. Í umsögn­inni segir meðal ann­ars að það sé mat sam­tak­anna að mik­il­vægt sé að átta sig á því að skip séu ekk­ert annað en atvinnu­tæki þeirra sem þau nota. „Með því að fara fram á háa greiðslu stimp­il­gjalda vegna skipa sem eru yfir 5 brúttó­tonnum á sér stað mis­munun eftir atvinnu­greinum, enda ljóst að aðrir lög­að­ilar sem not­ast þurfa við tæki á borð við flug­vélar, rútur, vinnu­vélar eða önnur stór­virk atvinnu­tæki er ekki skylt að greiða stimp­il­gjöld.[...] Jafn­framt ber að nefna að fyr­ir­tæki í útgerð sem hafa áhuga á að end­ur­nýja sinn skipa­kost, þurfa ekki aðeins að greiða 1,6% stimp­il­gjald heldur verður það 3,2% af verð­mæti við­skipt­anna sem fer í stimp­il­gjöld. Þannig þurfa fyr­ir­tækin jafnan að greiða bæði gjaldið við sölu eldra skips og síðan aftur við kaup á nýju skipi og því verður álagn­ingin í raun tvö­föld við end­ur­nýjun skipa­stóls.“

Lögunum síðast breytt 2013

Árið 2013 lagði þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sami Bjarni Bene­dikts­son og nú situr í ráðu­neyt­inu, fram frum­varp til nýrra laga um stimp­il­gjald.

[adspot]Í því frum­varpi, sem varð að lögum sem tóku gildi 1. jan­úar 2014, var stimp­il­gjalds­greiðsla felld niður vegna láns­skjala, kaup­mála, vátrygg­ing­ar­skjala, aðfar­ar­gerða, kyrr­setn­ing­ar­gerða, lög­geymslna, leigu­samn­inga um jarðir og lóðir, heim­ild­ar­skjala um veiði­rétt­indi og skjala sem lögðu ítök, skyldur og kvaðir á ann­arra eign.

Í þeim lögum var þó áfram gert skylt að greiða stimp­il­gjald af eigna­yf­ir­færslu skipa, en nú bara þeim sem voru yfir fimm brúttó­tonn að þyngd. Í grein­ar­gerð með nýja frum­varp­inu segir að í lög­skýr­ing­ar­gögnum gömlu lag­anna sé ekki að finna sér­stakan rök­stuðn­ing fyrir því.

„Með vísan til sjón­ar­miða um jafn­ræði atvinnu­greina er talið rétt að ekki verði lengur inn­heimt stimp­il­gjald vegna skjala er varða eigna­yf­ir­færslu skipa yfir fimm brúttó­tonnum. Slík breyt­ing er jafn­framt í sam­ræmi við það reglu­verk sem fyr­ir­finnst á Norð­ur­lönd­unum varð­andi stimp­il­gjöld, en þar tak­markast stimp­il­gjöld almennt við fast­eigna­við­skipti. Þá mun slík breyt­ing bæta m.a. rekstr­ar­um­hverfi skipa á Íslandi, leiða til sam­bæri­legra rekstr­ar­um­hverfis líkt og hjá erlendum sam­keppn­is­að­ilum og styðja sér­stak­lega við íslenskan sjáv­ar­út­veg sem er í mik­illi alþjóð­legri sam­keppni,“ segir enn fremur í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár