Þakkar Íslendingum fyrir að hafa bjargað súpueldhúsi á Gaza

„Jafnvel úr þús­unda kíló­metra fjar­lægð stigu þeir inn þegar heim­ur­inn þagði,“ skrifar Hani Almadhoun, yfir­maður mann­úð­ar­mála hjá Banda­ríkja­deild Palest­ínu­flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna, um stuðn­ing Íslend­inga.

Mótmælt við utanríkisráðuneytið
Mótmælt við utan­rík­is­ráðu­neytið Félagið Ísland-Palest­ína stóð fyrir mót­mælum fyrir helg­ina og ákalli eftir stuðn­ingi við tón­list­ar­kon­una Möggu Stínu sem var hand­tekin af Ísra­els­her. Mynd: Golli

Íslensku örlæti er þakkað fyrir að hafa haldið súpu­eld­húsi á Gaza gang­andi und­an­farna mán­uði og brúað bilið þar til vopna­hlé komst á. Þetta segir Hani Almadhoun, yfir­maður mann­úð­ar­mála hjá Banda­ríkja­deild Palest­ínu­flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Hani AlmadhounHani þakkar Íslend­ingum fyrir stuðn­ing­inn við súpu­eld­húsið á Gaza.

„Ef þú hefur verið að velta fyrir þér hvernig Gaza-súpu­eld­húsið hefur verið að koma fjár­magni til Gaza, þá eru þetta tíð­indi: í gegnum Ísland,“ skrifar Almadhoun á Facebook í dag.

„Þökk sé örlæti margra Íslend­inga höfum við getað flutt pen­inga og fjár­muni til að berj­ast gegn hung­ursneyð og styðja við fjöl­skyldur í neyð,“ skrifar hann. „Jafnvel úr þús­unda kíló­metra fjar­lægð stigu þeir inn þegar heim­ur­inn þagði - og nú, þegar þjóð­ar­morð­inu er lokið, hefur samúð þeirra hjálpað til við að halda von­inni lif­andi í marga mán­uði.“

„Þökk sé örlæti margra Íslend­inga …
Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SO
    Sigurður Oddgeirsson skrifaði
    Ef ríkisstjórnin heykist á því að berjast við fátækt, þá er spurningin hvenær opnað verður Súpueldhús við Ingólfstorg og á fleiri stöðum víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár