330 smit staðfest og yfir 3.700 í sóttkví

Land­læknir birtir nú einu sinni á dag upp­lýs­ingar um útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar á Íslandi. Í dag hafa 330 smit verið stað­fest og er allt það fólk í ein­angrun.

330 smit af nýju kór­ónu­veirunni eru nú stað­fest á Íslandi en þau voru 250 í gær. 3.718 eru nú í sótt­kví vegna veirunnar. 7.833 sýni hafa verið tekin sam­an­lagt hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans og Íslenskrar erfða­grein­ingar.

Þetta kemur fram á vefnum COVID.is þar sem dag­lega eru birtar upp­færðar tölur um útbreiðslu veirunnar.

Á vefnum kemur fram að 532 hafi nú lokið sótt­kví og að þrír liggi á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins.

Frá og með deg­inum í dag er Íslend­ingum og öðrum með búsetu á Íslandi og koma til lands­ins skylt að fara í tveggja vikna sótt­kví án til­lits til hvaðan þeir eru að koma. Und­an­þegnir þessu er flug­á­hafnir og áhafnir flutn­inga­skipa.

[links]Áður hafði Íslend­ingum sem sneru heim frá svoköll­uðum háá­hættu­svæðum verið gert að fara í tveggja vikna sótt­kví við heim­komu. Þessi svæði, þ.e. lönd með mikla smit­hættu, eru Íran, Suður-Kórea, Ítalía, Kína, Þýska­land, Spánn og Frakk­land. Nú gilda sótt­kví­artil­mælin um heim­komu frá öllum löndum.

Sótt­varna­læknir ræður Íslend­ingum jafn­framt frá ferða­lögum og þá er Íslend­ingum sem eru á ferða­lagi erlendis ráð­lagt að íhuga hvort ástæða sé til að flýta heim­för.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár