Enn fjölgar innlögnum vegna COVID-19: 23 á Landspítala

Yfir hund­rað smit af kór­ónu­veirunni greindust hér á landi í gær. Inn­an­lands­smit voru 94. Innan við helm­ingur var í sótt­kví við grein­ingu. 23 liggja á Land­spít­al­anum með COVID-19.

Tæplega hundrað innanlandssmit greindust í gær.
Tæplega hund­rað inn­an­lands­smit greindust í gær. Mynd: EPA

23 sjúk­lingar með COVID-19 liggja nú á Land­spít­al­anum. Þrír eru á gjör­gæslu­deild. Inn­lögðum hefur því fjölgað um þrjá frá því í gær.

Yfir hund­rað smit af kór­ónu­veirunni greindust hér á landi í gær. Af þeim voru 94 inn­an­lands­smit og átta greind við landa­mærin. Aðeins 40 af þeim sem greindust inn­an­lands, innan við helm­ingur, var í sótt­kví við grein­ingu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn fékk frá almanna­vörnum í morgun.

Í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins höfðu 20 verið lagðir inn á sjúkra­hús 27 dögum eftir að fyrsta smitið greind­ist. Þá voru sex á gjör­gæslu. Nú, 27 dögum eftir að þriðja bylgjan hófst að mati vís­inda­fólks við Háskóla Íslands, eru 23 á sjúkra­húsi en þrír á gjör­gæslu.

Vís­inda­fólk við Háskóla Íslands vinnur nú að því að upp­færa spálíkan sitt um mögu­lega þróun far­ald­urs­ins. Til stendur að gera einnig sviðs­myndir um fjölda inn­lagna í þess­ari upp­færðu spá.

Glíma við fjölþætt einkenni

Sigríður Zöega, sér­fræð­ingur í hjúkrun og dós­ent við Háskóla Íslands, birti í gær fyrstu nið­ur­stöður úr könnun um ein­kenni og líðan sjúk­linga í kjöl­far Covid 19. Til­gangur rann­sókn­ar­innar var að kanna ein­kenni og líðan ein­stak­linga sem fengu Covid-19 og nutu þjón­ustu Covid-19 göngu­deildar Land­spít­ala. Spurn­inga­listi var sendur út í júlí og var svar­hlut­fall um 60%. Þátt­tak­endur mátu líðan sína og ein­kenni bæði á meðan þeir voru í ein­angrun og und­an­farnar 1-2 vikur þegar spurn­inga­lista var svarað.

Rann­sóknin sýndi að þótt ein­kennum fækki og það dragi úr styrk­leika þeir þá er fólk engu að síður að glíma við fjöl­þætt ein­kenni sem hafa áhrif á dag­legt líf, einkum þreytu, mæði og verki. Meiri­hluti þátt­tak­enda mat heilsu sína verri nú en fyrir Covid-19.

Auknar líkur á veldisvexti

Sótt­varna­læknir og almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra ítreka til­mæli sín vegna auk­ins fjöldi smita einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vegna Covid-19 síð­ustu daga og aukið hafa líkur á veld­is­vexti í far­aldr­inum. Búast má við að tölur um fjölda smita verði háar næstu daga, segir í til­kynn­ingu sem barst fjöl­miðlum í morgun. Tilmælin eru:

  • Hvetjum alla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að vera eins mikið heima­við og kostur er.
  • Ekki vera á ferð­inni til eða frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu nema nauð­syn sé til.
  • Verjum við­kvæma hópa og tak­mörkum heim­sóknir til ein­stak­linga í áhættu­hópum eins og hægt er.
  • Tak­mörkun fjölda í búðum – einn fari að versla frá heim­ili ef kostur er
  • Hvatt er til þess að þeir sem standi fyrir við­burðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fresti þeim
  • Klúbbar, kórar, hlaupa­hópar, hjóla­hópar og aðrir hópar sem koma saman geri hlé á starf­semi sinni.
  • Allir staðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem almenn­ingur á erindi herði allar sínar sótt­varn­ar­að­gerðir, tak­marki eins og hægt er fjölda, tryggi að allir geti sótt­hreinsað hendur við inn­ganga, sótt­hreinsi snertifleti og gæti vel að hægt sé að virða fjar­lægð­ar­mörk.
  • Íþrótta­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu geri hlé á æfingum og keppni í öllum íþróttum.
  • Íþrótta­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fresti keppn­is­ferðum út á land.
  • Allir sem finni fyrir hinum minnstu ein­kennum haldi sig heima, fari í sýna­töku og líti á að þeir séu í ein­angrun þar til nei­kvæð nið­ur­staða úr sýna­töku liggi fyrir.

„Allir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar þurfa að koma með okkur í þetta átak og gæta sér­stak­lega vel að sér næstu vikur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár