„Þrúgandi samviskubit hjálpar engum“

Það er mann­legt að hafna því að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum því þá þarf ekki að breyta lífs­stíl. En allir geta lagt sitt af mörkum segir Snjólaug Ólafs­dóttir umhverf­is­verk­fræð­ingur sem heldur fyr­ir­lestur hjá VR í dag.

Snjólaug Ólafsdóttir er doktor í umhverfisverkfræði og markþjálfi.
Snjólaug Ólafs­dóttir er doktor í umhverf­is­verk­fræði og mark­þjálfi. Mynd: Aðsend mynd

Hvernig er hægt að sinna umhverf­is­málum í nútíma­lífi? Hver hefur tíma fyrir slíkt? Þessar spurn­ingar hafa vaknað hjá mörgum síð­ustu miss­eri með auk­inni umræðu í sam­fé­lag­inu um lofts­lags­mál og neyslu almenn­ings. Fjallað verður um leiðir að þessu mark­miði í fræðslu­fyr­ir­lestri sem Snjólaug Ólafs­dóttir, doktor í umhverf­is­verk­fræði og mark­þjálfi, heldur í sal VR í Húsi versl­un­ar­innar í dag.

Fyr­ir­lest­ur­inn hefur hún haldið reglu­lega í nokkur ár og ber hann yfir­skrift­ina Upptekni umhverf­is­sinn­inn. Skila­boðin eru þau sömu ár frá ári en efnið hefur hún þurft að upp­færa nokkrum sinnum því með­vit­und um umhverf­is­mál er alltaf að aukast. Þá hefur hún haldið nám­skeið byggt á fyr­ir­lestr­inum sem nefn­ist Sjálf­bærni og ham­ingjan.

Snjólaug segir að margir upp­lifi ákveðið vald­leysi þegar komi að umhverf­is­málum. „Það er mikil pressa á okkur alls staðar en ég legg áherslu á að þetta þarf ekki að vera erfitt, við getum gert þetta skemmti­legt.“

Hún bendir á að fólk komi að umhverf­is­málum úr ólíkum áttum. „Við þurfum ekki öll að byrja á sama stað. Það er engin ein rétt leið.“

Snjólaug er stofn­andi Andrýmis sjálf­bærni­set­urs og starfar með fyr­ir­tækjum, félaga­sam­tökum, ein­stak­lingum og opin­berum aðilum að því verk­efni að auka sjálf­bærni í sam­fé­lag­inu og tak­marka áhrif lofts­lags­breyt­inga, með stefnu­mótun, fræðslu og öðrum stuðn­ingi.

[links]Hún seg­ist finna fyrir því að fólk sé mjög opið og vilj­ugt að breyta sínum neyslu­venjum en ótt­ist að gera eitt­hvað rangt. „Ég er svo oft beðin um lista, upp­skrift að því hvernig eigi að breyta lífs­stíl sínum. Við erum svo góð í að fara eftir upp­skriftum, við kunnum það. Þegar þessu er snúið við og við spurð: Hvað finnst þér og hvað viltu gera, þá vand­ast málið. En það er ekk­ert eitt sem allir eiga að gera og þá redd­ast þetta.“

Hún seg­ist stundum líkja þessu við það að neyta holls matar. „Ég og þú getum báðar verið að borða hollt en samt mjög ólíkan mat. Það geta allir borðað hollt í þessum efnum en á mis­mun­andi hátt.“

Vonleysi er ein þeirra til­finn­inga sem vaknar hjá fólki að sögn Snjó­laugar. „Fólki finnst það þurfa að gera ákveðna hluti en stundum eru þeir ekki í boði. Þá finnst fólki það ekki geta tekið þátt.“

Hún nefnir sem dæmi sam­göngur og það að eiga bíl. „Sumir geta ekki hætt að keyra bíl­inn sinn eða hafa ekki efni á því að kaupa sér umhverf­is­vænni bíl. Þetta fólk upp­lifir að það geti þá ekki lagt sitt af mörkum. Því finnst það standa á hlið­ar­lín­unni og ekk­ert geta gert. En það er ekki þannig. Fólk getur fundið sína leið inn. Það getur til dæmis skoðað kjöt­neyslu eða fatainn­kaup.“

Mik­il­vægt er að taka ekki allt inn í einu eins og Íslend­ingar eru kannski gjarnir á að gera þegar kemur að lífs­stíls­breyt­ingum. „Það má fylgj­ast með og skoða,“ segir Snjólaug. Á sam­fé­lags­miðlum megi til dæmis finna ýmsar hug­myndir.

Skömmin kveikir á afneituninni

Sumir upp­lifa svo lofts­lagskvíða og ákveðna skömm vegna neyslu sinnar. Snjólaug nefnir sem dæmi að hún hafi rætt við konur sem verði miður sín að gleyma fjöl­nota­pok­anum heima er þær fari í búð­ina því þær skammist sín svo að kaupa einn­nota poka. „En ég vil alls ekki að fólk fyllist skömm og ótta. Og þess vegna bendi ég á að við skulum ekki dæma ein­stak­ling­inn sem er við hlið­ina á okkur þó að hann sé ekki að gera það sama og við. Við megum ekki for­dæma þegar við vitum ekki alla sög­una. Mann­eskjan við hlið­ina á þér er kannski á jeppa en það gæti verið góð ástæða fyrir því. Hún gæti hins vegar verið að kaupa sér notuð föt í stað nýrra.“

Snjólaug segir mik­inn mun á því að vera með­vit­aður og að upp­lifa skömm. „Það er vond til­finn­ing sem gerir engum gagn. Það er hún sem kveikir á afneit­un­inni og öðrum vörnum okkar. Við þurfum að vera umburð­ar­lynd gagn­vart öðrum og okkur sjálfum. Við viljum vera með­vituð og einnig með­vituð um það að við erum ófull­komin í ófull­komnu sam­fé­lagi og erum að reyna að gera okkar besta. Þrúgandi sam­visku­bit hjálpar engum.“

Mannlegi þátturinn

Síðustu daga hafa verið birtar nið­ur­stöður kann­ana hér á landi sem sýna að fleiri en áður efast um að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum og aðeins um helm­ingur telur fréttir um alvar­leika þeirra réttar. „Þarna kemur í ljós eitt af þessu mann­lega, að finna lausn og ein­hverja leið, til að kom­ast hjá því að líta í eigin barm. Við erum öll svo mann­leg og hoppum á auð­velda svarið. Það getur orðið til þess að fólk hafnar því að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum því þá þarf það ekki að gera neitt, ekki breyta neinu.“

Snjólaug segir bakslagið í umræð­unni að ákveðnu leyti skilj­an­legt. Margir bíði eftir lausnum og það sem sé talið rétt í dag sé það ekki endi­lega á morgun. „Þetta hræðir okkur svo mikið. Við erum að fara í ferða­lag og munum kom­ast að því að sumt fer kannski ekki alveg eins og við ætl­uðum og við þurfum þá gera eitt­hvað annað. En það er ekki rangt að gera það. Við verðum að halda áfram, það þýðir ekki að standa hjá og bíða eftir því að ein­hver annar leysi málin.“

Fræðslu­fyr­ir­lestur Snjó­laugar verður hald­inn í sal VR á jarð­hæð í Húsi versl­un­ar­innar og hefst klukkan 12. Hér er hægt að skrá sig og hér er hægt að skrá sig inn á streymi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár