Mynd: Bára Huld Beck

Tapaði rifrildi og varð vegan

Sam­viskan er svo mik­il­vægt tól, hún er átta­vit­inn okkar, segir Eydís Blöndal, vara­þing­maður VG. Hún segir okkur þurfa að end­ur­skoða það sem við teljum lífs­gæði og hætta að líta á jörð­ina eins og hún sé ein­göngu til fyrir mann­fólk.

Við eigum ekki til­kall til lífs dýra. Fram­leiðsla á lífi þeirra, ein­ungis til neyslu, ynd­is­auka eða skemmt­unar okkar er grund­vallar frels­is­svipt­ing sem ég leggst alfarið gegn. [...] Dýr eru skyni gæddar verur, hafa til­finn­ingar og finna til sárs­auka. Sömu­leiðis er okkur ekki nauð­syn­legt að hag­nýta þau á einn eða annan hátt.“

Jóm­frú­ar­ræða sem vara­þing­maður Vinstri grænna flutti í lok jan­úar mark­aði ákveðin tíma­mót. Í henni var fjallað um dýra­vel­ferð á nokkuð öðrum nótum en áður hefur heyrst í sölum Alþingis. Hún fjall­aði ekki um hvernig fara skuli með dýr svo að þeim líði sem best þar til að þeim er slátrað, heldur um það að slátra þeim alls ekki.

Vara­þing­mað­ur­inn heitir Eydís Blöndal og er aktí­visti. Hún seg­ist hafa „lent“ í póli­tík, ekki ætlað sér að verða stjórn­mála­maður eins og faðir sinn. Hún efast reyndar um að hug­sjónir hennar rúmist innan hefð­bund­innar póli­tíkur. Hún brennur fyrir því að nauð­syn­legt sé að breyta við­tek­inni heims­mynd. Að breyta því við­horfi að jörðin sé fyrst og fremst til fyrir okkur mann­fólkið og að við megum fara með hana eins og okkur lysti. Undir áhrifum þess hug­ar­fars hafi lofts­lags­váin bankað upp á.

„Ég hef stundum sagt að við séum eins og heimtu­frekir ung­lingar á móður jörð,“ segir Eydís. „Viljum hafa allt eftir okkar höfði, að það þurfi bara að smella fingrum og þá fáum við það sem við viljum. Þetta við­horf er hins vegar orðið upp­þornað, skrælnað. Núna er nauð­syn­legt að breyta því og þar með lífs­stíl okkar og vera ekki hrædd við það.“

Það er hávetur í Reykja­vík. Hálka á gang­stéttum og hvít jörð. Eydís vinnur hjá græn­ker­a­staðnum Jömm og tekur strætó niður í miðbæ. Hún gengur rösk­lega inn í and­dyri hót­els við úfinn sjó­inn og með útsýni til snævi­þaktra hlíða Esjunnar. Heilsar glað­lega, klædd þykkri peysu og úlpu í íslenska vetr­inum en með sól­gler­augu á höfð­inu. „Ég spurði reynslu­meiri þing­mann hvar best væri að hitta blaða­mann. Hann sagði mjög virðu­legt að gera það á hót­eli,“ segir hún og skelli­hlær.

Hún er létt­lynd, glað­vær. Segist alltaf hafa verið það og sjaldn­ast taka sjálfa sig of alvar­lega. En að innra með henni tak­ist samt á tvær hliðar: Sú afslapp­aða og svala og sú jarð­bundna og fer­kant­aða. Báðar hafa þær góða kosti sem hafa nýst henni í leik og starfi, ekki síst þegar kemur að því að miðla hug­myndum og skoð­unum, semja ljóð og ræður og halda fyr­ir­lestra.

Það skýrir kannski klæðn­að­inn. Mögulega var það sú jarð­bundna sem valdi að klæð­ast hlýjum fötum en sú afslapp­aða sem stakk upp á að bæta sól­gler­aug­unum við.

Eydís segir að innra með sér takist á tvær hliðar: Sú afslappaða og svala og sú jarðbundna og ferkantaða. Báðar hafa þær góða kosti.
Eydís segir að innra með sér tak­ist á tvær hliðar: Sú afslapp­aða og svala og sú jarð­bundna og fer­kant­aða. Báðar hafa þær góða kosti.

Eydís kýs að drekka te, helst Earl Gray segir hún við þjón­inn, og biður um hafra­mjólk út í. Hún reyn­ist ekki til. „En áttu eitt­hvað annað en kúa­mjólk?“ spyr hún þá.

Já, Eydís er vegan. Hún tók ákvörðun um að hætta að neyta dýra­af­urða fyrir um einu og hálfu ári. Það átti sér langan aðdrag­anda þar sem harðar innri rök­ræður og brunnið svína­kjöt kom meðal ann­ars við sögu.

En áður en við komum að þeim kafla í lífi hennar skal byrja á að næra hina sígildu íslensku for­vitni: Hvar og hvenær er hún fædd fædd og hverra manna er hún?

Alla tíð farið eigin leiðir

Eydís er fædd í byrjun jan­úar árið 1994 og er því nýorðin 26 ára. Hún er í sam­búð með Ása Þórð­ar­syni og eiga þau dótt­ur­ina Vigdísi Birnu. Hún ólst upp í Safa­mýr­inni í Reykja­vík, er dóttir Péturs H. Blöndal heit­ins, fyrr­ver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Birnu Guð­munds­dóttur tölv­un­ar­fræð­ings. For­eldrar hennar skildu er hún var þriggja ára og bjó hún eftir það aðal­lega hjá móður sinni en var reglu­lega hjá föður sínum. Hún á fimm systk­ini.

„Fólk er stundum að reyna að reikna mig út miðað við það hvernig pabbi minn var,“ segir hún og kímir. Það skilar litlu. „Ég get ekki talið hversu oft fólk hefur sagt við mig í gegnum tíð­ina að það hafi borið virð­ingu fyrir pabba og hans póli­tík en að það hafi alls ekki verið sam­mála honum,“ segir hún.

Það kom henni ekk­ert sér­stak­lega á óvart, sjálf var hún langt í frá alltaf sam­mála honum, hvort sem það var í póli­tík eða hvað varð­aði skurð á bakk­elsi. „En mér finnst ekki rétt af mér að tala um það opin­ber­lega hvernig við vorum ólík af því að hann er ekki hér lengur og getur þess vegna ekki brugð­ist við því. Svo fólk verður bara að sjá það sjálft hvar okkur greinir á.“

Hún er auð­vitað dóttir for­eldra sinna og á sitt hvað sam­eig­in­legt með þeim en hún hefur alla tíð farið eigin leiðir, myndað sér sjálf sínar sterku skoð­anir og háð sínar eigin orr­ustur.

„Mér líður eins og ég hafi fæðst 36 ára,“ segir hún og hlær dátt. „Ég sagði það líka þegar ég var tíu ára. Og ég bíð ennþá spennt eftir því að ná þeim aldri. Ég er smám saman að vaxa upp í sjálfa mig.“

Er Eydís var barn og ung­lingur gekk henni ávallt vel í því sem hún tók sér fyrir hendur. Nám lá mjög vel fyrir henni og hverskyns íþróttir sömu­leiðis. Eftir grunn­skóla fór hún Mennta­skól­ann í Hamra­hlíð. Henni fannst námið auð­velt, tók áfanga á öllum þremur braut­unum sem í boði voru og end­aði á að útskrif­ast af nátt­úru­fræði­braut, önn fyrr en til stóð vegna yfir­vof­andi verk­falls.

Áfall að fá 1 á prófi

En alvaran tók við er í Háskóla Íslands var komið. Þá átt­aði hún sig á því að það þýddi ekki lengur að glugga í náms­bæk­urnar og mæta svo í próf. Hún hafði heldur ekki valið auð­veldasta námið: Verk­fræði­lega eðl­is­fræði. Hún grípur snöggt um and­lit sitt er hún rifjar upp að eitt sinn hafi hún fengið 1 í ein­kunn á sjúkra­prófi í eðl­is­fræði. „Það var smá skellur. Lærdómur hafði alltaf komið til mín svo nátt­úru­lega en þarna var allt breytt. Í þessu námi þurfti að kafa ofan í hlut­ina, greina og dvelja lengi með hugs­unum sínum. Það geri ég yfir­leitt ekki, ég leyfi bara hugs­unum að koma og svo kveð ég þær,“ segir hún og hlær.

Þegar þarna var komið við sögu hugs­aði hún: „Ef ég fæ einn í eðl­is­fræði þegar ég er að læra eðl­is­fræði þá er þetta kannski ekki það sem ætti að leggja fyrir mig.“

Og það gerði hún. Yfirgaf hið fer­hyrnda sjálf og fór að læra heim­speki. „Það nám lá miklu betur fyrir mér.“ Eydís lagði einnig stund á hag­fræði í HÍ og útskrif­að­ist í fyrra.

Allt frá unga aldri gat hún ekki staðið hljóð hjá þegar hún upp­lifði eitt­hvað sem hún áleit órétt­læti. Er hún var níu eða tíu ára í Álfta­mýr­ar­skóla stóð til að kenna á sjálfum ösku­deg­inum. „Þetta fannst okkur í bekknum ósann­gjarnt því það var frí í öðrum skólum og þess vegna gerðum við smá upp­reisn. Bókuðum tíma hjá skóla­stjór­anum og sungum fyrir hann frum­samið lag um kröfur okkar. Það virk­aði ekki, það var kennt á ösku­deg­inum. En það má alltaf reyna!“

Sem ung­lingur vann hún í kjöt­borði í verslun og upp­götv­aði er leið á sum­arið að hún hafði ekki fengið umsamda launa­hækkun líkt og strák­arnir sem unnu við hlið hennar. „Þá gat ég ekki setið á mér og taldi það enga til­viljun að eina stelpan í kjöt­borð­inu hefði einmitt verið sú sem gleymd­ist að gefa launa­hækkun.“

Alltaf látið fyrir sér fara

Þrátt fyrir að hafa allt frá barns­aldri verið póli­tískt þenkj­andi í ákveðnum skiln­ingi seg­ist hún þó aldrei hafa ætlað sér að verða stjórn­mála­maður. „Ég hef alltaf haft skoðun á hlut­unum og látið fyrir mér fara og í mér heyra en aldrei lagt á ráðin um ein­hvern póli­tískan feril.“

Kannski af því að faðir hennar var áber­andi stjórn­mála­maður og hún þekkti það líf. „En ég vildi heldur ekki verða tölv­un­ar­fræð­ingur eins og mamma,“ bætir hún við. Hún seg­ist hins vegar hafa „lent“ í póli­tísku starfi á árum áður, bæði í mennta­skóla og háskóla þar sem hún var odd­viti Röskvu.

En hvernig kom það svo til að hún end­aði á lista Vinstri grænna fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar?

„Bara nákvæm­lega eins og áður. Katrín [Jak­obs­dóttir] hringdi í mig og bauð mér sæti á lista. Ég hafði ekki komið nálægt flokks­starf­inu áður enda hafði ég engan áhuga á að vera í ein­hverjum flokki. Ég er ekki hrifin af flokks­fyr­ir­komu­lagi yfir höfuð ef ég á að vera hrein­skilin. En af þeim flokkum sem buðu fram þá sam­sam­aði ég mig best með VG vegna áherslna á femín­isma, frið­ar­stefnu, jöfnuð og umhverf­is­vernd. Svo þekkti ég fólk í flokknum og fannst það skemmti­legt.“

Þetta var ekki ein­föld ákvörðun. Hún ótt­að­ist að fá á sig flokkspóli­tískan stimpil. Hún hafði eign­ast dyggan fylgj­enda­hóp á Twitter, hafði þar ákveðna rödd og fannst flokks­starf geta dregið úr styrk hennar. Hún end­aði þó að því að taka til­boð­inu, bauð sig fram og er í dag vara­þing­maður. „En ég er ekk­ert sér­stak­lega góður póli­tíkus,“ segir hún hlæj­andi og við­ur­kennir að langir fundir séu ekki hennar tebolli. Þá seg­ist hún lélegur „plott­ari“, það að hanna atburða­rás til að ná ein­hverju fram, sé ekki í hennar eðli.

Finnst þér þú hafa þurft að gefa afslátt á þínum skoð­unum eftir að hafa gengið til liðs við stjórn­mála­flokk?

„Nei, en ég hef tjáð þær minna síð­ustu mán­uði. Það hefur ekk­ert með VG að gera heldur það að mér var tekið öðru­vísi eftir að ég varð vara­þing­maður. Mér var reyndar farið að finn­ast Twitter mjög eitrað umhverfi. Það er ekk­ert bundið við mig eða Ísland. Sama þróun hefur átt sér stað víðar í heim­inum. Þetta var í fyrstu skemmti­legt en var hætt að skila ein­hverju góðu. Bara farið að valda streitu í mínu lífi, ein­fald­lega van­líðan.“

Ástríðan

Hún ákvað því að stíga til hliðar á þessum vett­vangi en er þó ekki horfin af sam­fé­lags­miðlum heldur skipti yfir á Instragram þar sem hún stundar nú sinn aktí­visma. Sá mið­ill hentar mál­staðnum betur.

Og vel á minnst, mál­stað­ur­inn. Sá sem Eydís brennur fyrir. Ástríðan og bar­áttan sem hún segir hafa snú­ist upp í aktí­visma.

Fyrir einu og hálfu ári tók hún þá ákvörðun að verða vegan, hætta að borða dýra­af­urðir. Hún var ekk­ert að aug­lýsa það í fyrstu, sagði fáum frá því. Hún vildi ekki vera týpan sem hún sjálf átti erfitt með áður en hún varð vegan, „þessi leið­in­lega týpa sem fólki finnst vera að troða sinni heims­mynd upp á aðra“.

Þessi týpa fannst til dæmis í MH. „Jújú, þar var auð­vitað allt fullt af ein­hverjum bölv­uðum hippum,“ segir hún og skellir upp úr. Nokkrar vin­konur hennar hafi ýmist verið græn­metisætur eða vegan. Í partí­íum áttu þær til að fara að tala um það. „Og ég gerði nákvæm­lega það sama og margir gera gagn­vart mér núna. Ég sagði: En æðis­legt að þú sért vegan, gott hjá þér, en bætti svo við í hug­anum: Svo lengi sem það truflar mig ekk­ert.“

Eftir að Eydís tók ákvörðun um að verða vegan sagði hún fáum frá því.
Eftir að Eydís tók ákvörðun um að verða vegan sagði hún fáum frá því.

Hún seg­ist oft hafa farið í mikla vörn þegar vinir hennar spurðu af hverju hún, sem væri svona skyn­söm og víð­sýn, sæi ekki rökin fyrir því að vera vegan. „Ég átti það til að snar­móðg­ast. Mér fannst þetta bara alls ekk­ert fyrir mig.“

Þegar hún sá fólk segja frá sínum vegan­isma á Twitter reidd­ist hún jafn­vel og spurði: „Af hverju er þetta fólk að reyna að yfir­færa sitt sið­ferði yfir á mig? Hvað þyk­ist það vera?“ En mesta rifr­ildið átti hún samt við sjálfa sig. „Svo tók ég eftir því að ég var farin að tapa í mínu eigin rifr­ildi. Ég var farin að svara fyrir vegan­isma, farin að segja við sjálfa mig: Eydís, þú veist betur.“

Rök­ræð­urnar innra með henni voru harðar því að þær snér­ust um hvort það væri rétt eða rangt að drepa dýr og borða þau. „Það var ein­hver þver­sögn innra með mér, hún var svo hrotta­leg að ég þorði ekki að horfast í augu við hana. Þá greip ég til þess að vera í mik­illi vörn á meðan sam­viskan tísti þar undir.“

Samviskan er áttavitinn okkar

Hún gerir stutt hlé á máli sínu en heldur svo áfram: „Mér finnst sam­viska svo mik­il­vægt tól. Mörgum finnst það að fá sam­visku­bit vera nei­kvætt en ég tel það einmitt jákvætt. Þá er eitt­hvað sið­ferði innra með þér, átta­vit­inn þinn, að segja þér að þú sért að gera eitt­hvað rangt. Í minni vörn var ég farin að fá sam­visku­bit en kenna öðrum um það. Í stað­inn fyrir að hlusta á sam­visku mína. Hún var ekki að benda á aðra heldur mig.“

Eydís segir það hafa tekið sig langan tíma að sætta sig við að hún hefði haft rangt fyrir sér. Hún man nákvæm­lega hvenær allt rann loks upp fyrir henni. Hún stóð heima hjá móður sinni og var að grilla svína­kjöt. „Og kjötið var allt brunnið. Því ég bara gat þetta ekki lengur. Ég fékk yfir­þyrm­andi til­finn­ingu að ég gæti ekki borðað þetta kjöt. Það var reyndar ónýtt, því ég brenndi það! En þarna á þess­ari stundu ákvað ég að verða vegan.“

(Eydís á mynd­band af þessu augna­bliki sem sjá má í færsl­unni hér að neðan)

Nú seg­ist hún enn ekki hafa séð þau við­brögð gegn vegan­isma sem hún velti ekki sjálf fyrir sér áður. Hún þekkir alla orð­ræð­una, öll rökin, allar spurn­ing­arnar. Og vörn­ina sem fólk fer í.

„Mér finnst mik­il­vægt að fólk átti sig á að lang­flestir sem eru vegan í dag voru það ekki áður. Þetta er fólk sem tók þessa ákvörðun að vel athug­uðu máli. Þetta sam­fé­lag sem við búum í, sem normaliserar það að drepa dýr og borða þau, það er sam­fé­lagið sem ég ólst upp í. Heims­myndin mín hefur nú breyst en ég þekki hina samt vel.“

Þegar hún var búin að vera vegan í ár ákvað hún að segja frá því á Instagram. „Þegar við stöndum frammi fyrir ákvörð­un­inni um að drepa eða drepa ekki þá er svo aug­ljóst hvort er sið­ferð­is­lega rétt­ara,“ skrif­aði hún.

Fangar það sem margir þekkja

Jákvæð við­brögðin komu henni á óvart. Það hleypti auknum krafti í hana og hún ákvað að halda áfram að deila pæl­ingum sínum um vegan­isma. Margir segj­ast tengja við það sem hún skrifar. Líkt og margir segj­ast hafa tengt við ljóðin sem hún samdi og gaf út. „Ég felli enga dóma heldur reyni að fanga eitt­hvað sem margir skilja og þekkja. Ég reyni að horfa á þetta út frá því sjón­ar­horni sem ég hafði fyrir tveimur árum, áður en ég varð sjálf vegan.“

Eydís setur hug­renn­ingar sínar fram með ein­földum hætti, jafn­vel í ein­földum reikn­ings­dæmum. Dýr eru alin til mann­eldis með tug­þús­undum hita­ein­inga en skila aðeins örfáum þeirra til baka í formi kjöts. „Þetta er í raun mikil mat­ar­sóun,“ bendir Eydís á.

En þeir sem eru vegan borða sumir hverjir mikið af mat­vörum sem fluttar eru inn til lands­ins, jafn­vel um mjög langan veg. Hverju svarar þú því?

„Já, þetta hef ég einmitt heyrt oft áður,“ segir hún og bendir á að vissu­lega séu mat­væli flutt inn, en bæði fyrir þá sem eru vegan og aðra. Kolefn­is­sporið sem græn­kerar skilja eftir sig sé lítið sam­an­borið við það sem mynd­ast við fram­leiðslu á kjöti, sé horft til alls fram­leiðslu­ferl­is­ins.

Eydís hefur gefið út tvær ljóðabækur; Án tillits og Tíst og bast.
Eydís hefur gefið út tvær ljóða­bækur; Án til­lits og Tíst og bast.

Það eru einmitt fram­leiðslu­ferlin sem Eydís vill beina sjónum fólks að. Stór hluti þeirra er fal­inn fyrir neyt­endum, þeir vita ekki hvernig vara verður til og hver umhverf­is­á­hrif hennar eru.

Hún hefur því lagt fram fyr­ir­spurn á Alþingi til iðn­að­ar­ráð­herra varð­andi gegn­sæi umhverf­is­á­hrifa við fram­leiðslu vara og þjón­ustu. „Áformar ráð­herra að skylda fyr­ir­tæki til að greina frá kolefn­is­fótspori ann­ars vegar og umhverf­is­á­hrifum vegna t.d. plast­notk­unar hins vegar við fram­leiðslu á vörum og þjón­ustu til að auka gegn­sæi og auð­velda neyt­endum að taka upp­lýsta ákvörðun þegar kemur að neyslu?“

Hún tekur dæmi: Vörur sem verslun selur koma til hennar frá heild­sölu á vöru­bretti sem pakkað er í plast í bak og fyrir. Áður höfðu þær komið í heild­söl­una frá útlöndum, pakk­aðar í annað plast. Fram­leið­and­inn ytra keypti hrá­efni. Þeim var mögu­lega einnig pakkað í plast. Svo er hver og ein vara pökkuð í plast. Út úr því plasti kemur kannski bambust­ann­bursti. Sem fólk kaupir með góðri sam­visku. Þannig er ferlið að baki fjöl­mörgum vörum.

Fáránleg keðja sem enginn ber ábyrgð á

„Þessi keðja er fárán­leg, það er gríð­ar­leg sóun víða í henni. Við veltum þessum ferlum ekki fyrir okkur, af hverju þau eru svona og hverju sé hægt að breyta. Við getum ekki nálg­ast upp­lýs­ingar um þau til að taka upp­lýsta ákvörðun um kaup okkar. Þetta er svo ónátt­úru­legt, þetta er hugs­un­ar­leysi sem eng­inn ber ábyrgð á.“

Hún spyr hvort að það sé kannski ómögu­legt að kom­ast að því hversu miklu sé sóað af plasti. Sömu sögu sé að segja af annarri mengun sem fylgi fram­leiðslu neyslu­varn­ings. „Kannski er þetta bara orðið svo langt og gríð­ar­lega mikið ferli að við eigum engan séns að finna út úr þessu. En ef svo er, þá hvet ég fólk til að spyrja sig: Finnst mér þetta eðli­legt?“

Eydísi finnst þetta sorg­legt því margir séu virki­lega að reyna að minnka umhverf­is­á­hrif neyslu sinnar. Ofneysla sé gríð­ar­leg og komin úr bönd­unum. Á sama tíma hafi sá iðn­aður að fram­leiða dýr til mann­eldis gengið mjög langt. „Núna þurfum við að hugsa öll okkar kerfi upp á nýtt, allt hag­kerfið,“ segir hún. „Mér finnst þegar allt kemur til alls að við göngum út frá hug­mynd sem er lygi að mörgu leyti. Við tökum ein­hverri heims­mynd sem fasta en það vorum við sem bjuggum hana til og það er okkar að breyta henni.“

Tíu pró­sent rík­asta fólks heims ber ábyrgð á helm­ingi af útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, bendir hún á. „Við lítum á jörð­ina eins og hún sé hérna ein­göngu fyrir okkur. Við höldum að dýrin séu til fyrir okkur, að olían sé í jörð­inni fyrir okkur. Og við höldum að fólkið í Bangla­dess sé þar til að sauma á okkur fötin. Við skrif­uðum þessar leik­reglur og förum svo eftir þeim eins og þær séu ófrá­víkj­an­legar stað­reyndir.“

En hvað þýðir það fyrir jarð­ar­búa að umbylta hag­kerfi?

„Í lofts­lags­að­gerðum flestra vest­rænna ríkja er fyrst og fremst verið að leita leiða til að við­halda okkar lífs­stíl, svo að þurfum ekki að breyta neinu. Í því sam­bandi heyr­ast oft orðin kolefn­is­jöfnun og raf­magns­bílar svo ég taki dæmi. En við getum ekki haldið áfram að lifa eins og við gerum. Það hvernig við lifum er einmitt vanda­málið. Viðhorf okkar til heims­ins, jarð­ar­innar, er vanda­málið. Hvað við teljum vera til­gang lífs­ins. Það er búið að brengla þessi við­horf okkar.“

Nokkur skref til baka

Nú þurfi fólk lífs­nauð­syn­lega að taka nokkur skref til baka. „Þetta er skilj­an­lega við­kvæmt fyrir þær kyn­slóðir sem á undan fóru. Þær gætu tekið því þannig að við séum að ásaka þær um að hafa eyði­lagt allt fyrir okkur. Það upp­lifir að allt það sem það taldi rétt sé rangt að mati yngra fólks­ins. Ég skil það vel að fólk verði sárt og reitt og fari í vörn. Ég þekki það vel sjálf að líta svo á að maður sé að fylgja reglum sam­fé­lags­ins og sé þess vegna ekki að gera neitt rangt. En sið­ferð­is­reglur eru ekki meit­l­aðar í stein. Siðferði þarf að vera til sífelldrar end­ur­skoð­unar.“

Eydís minnir á að það sem okkur þótti gott og eðli­legt fyrir nokkrum ára­tugum og öldum sé sumt frá­leitt í sam­fé­lagi dags­ins í dag. „Það gerð­ist ekki í tóma­rúmi. Það er af því að ein­hver stóð upp og benti á það. Þeir sem hafa bent á rang­læti í gegnum tíð­ina hafa alltaf mætt and­stöðu fyrst því þeir eru að rísa upp gegn ríkj­andi gildum.“

Hagkerfin ekki fullkomin í dag

Þegar komi að umbylt­ingu kerf­anna sé vert að hafa í huga að hag­kerfi dags­ins í dag sé langt í frá full­komið og valdi mis­munun. Millj­ónir búi við fátækt á meðan aðrir séu stór­kost­lega ríkir.

„Við þurfum að end­ur­hugsa það sem við teljum lífs­gæði í dag. Sem dæmi má nefna að fyrir nokkrum árum fannst mér það topp­ur­inn á til­ver­unni að fara til útlanda og versla föt. En nú, ekki svo löngu seinna, finnst mér það frá­leitt. Við þurfum að muna að efn­is­hyggjan gefur okkur enga fyll­ingu. Hún skapar ekki ham­ingj­una þó að við höldum það af því að allt umhverfið hefur sagt okkur það svo lengi.“

Nú munu kannski ein­hverjir sem lesa þetta við­tal benda á að þú sért ung for­rétt­inda kona úr Reykja­vík sem hefur aldrei unnið á sveitabæ og vitir varla um hvað þú ert að tala. Hverju myndir þú svara því?

„Ég nýt for­rétt­inda, það er alveg rétt, en ég er ekki veru­leikafirrt,“ svarar hún. „Ég veit að ég get ekki bara smellt fingrum og þá verði allir vegan á morgun. Ég hef engan rétt á því og er ekki að ætl­ast til þess. En ég veit að dýr eru fram­leidd til að mæta eft­ir­spurn eftir kjöti og öðrum dýra­af­urðum. Nú tók ég nógu marga hag­fræði­á­fanga til að skilja sam­hengi fram­boðs og eft­ir­spurnar. Það er nákvæm­lega þannig sem ég sé þetta fyrir mér. Með minnk­andi eft­ir­spurn verður minna fram­leitt.“

En hvernig sérðu þá fyrir þér hlut­verk sveita lands­ins?

„Fólk mun ennþá þurfa að borða,“ segir Eydís, „og það eru til græn­met­is­bændur og við þurfum meiri nýsköpun þar og í land­bún­aði almennt til að tryggja fæðu­ör­yggi okkar. Ég sé fyrir mér að sveit­irnar fái nýtt hlut­verk. Það mætti nota þá fjár­muni sem fara í nið­ur­greiðslu á kjöt­fram­leiðslu til þess­arar nýsköp­unar.“

Vill fá að tala fyrir hönd dýranna

Hún leggur áherslu á að með þessum orðum sé hún alls ekki að ráð­ast gegn bændum lands­ins. Hún tali fyrir kerf­is­breyt­ingu, ekki gegn fólki sem vilji vel og sé að gera það sem það telji best. „En ég vil samt fá að tala fyrir hönd dýr­anna sem geta ekki varið sig.“

Lofts­lags­vand­inn verður ekki leystur með því að Eydís Blöndal hætti að borða kjöt. Þetta veit hún mæta vel. „Það er ekk­ert eitt sem við getum gert til að stöðva þró­un­ina. Það er engin lausn við lofts­lags­breyt­ingum. En við verðum að sam­ein­ast í því að hætta að eyða nátt­úru­auð­lindum okkar í til­gangs­lausa hluti. Við þurfum að setj­ast niður og spyrja okkur: Hvernig ætlum við að lifa þetta af?“

Það sé hvers og eins að taka ábyrgð á sinni heims­mynd. „Það að borða kjöt hefur nei­kvæð áhrif á umhverfið. Þannig að ég ætla ekki að halda áfram að gera það, jafn­vel þótt að það eitt og sér sé ekki að fara að bjarga heim­inum. Ég svara bara minni sam­visku.“

Sérðu fyrir þér hag­kerfi án kjöt­fram­leiðslu?

„Það virð­ist útópía, að minnsta kosti núna. Þarna að baki er menn­ing og saga sem verður að taka til­lit til og bera virð­ingu fyrir. Ég ætla mér aldrei að predika yfir fólki, segja því hvað það má og hvað það má ekki gera. Þessi umræða er mjög til­finn­inga­hlaðin, beggja vegna borðs­ins. Ég myndi vilja tala við ein­hvern sauð­fjár­bónda um þetta, af gagn­kvæmu umburð­ar­lyndi. Ekki bara í ein­hverjum kommenta­kerfum þar sem sleggju­dómar eru látnir falla.“

Eydís hefur stundum heyrt að skoð­anir hennar séu barna­legar. Að heim­ur­inn sé nú bara svona. Dýr séu matur. Hún tekur undir að á öldum áður hafi fólk á sumum svæðum kom­ist af með því að leggja sér kjöt til munns. Staðan sé hins vegar gjör­breytt og ræktun dýra til mann­eldis sé óþörf í hinum vest­ræna heimi.

Og ef dýr eru bara matur, af hverju eru þá ekki öll dýr matur?

Að skjóta hund

„Ef það ætti að skjóta hund úti á götu myndi engum sem ég þekki finn­ast það ekki í lagi. En hver er mun­ur­inn á hundi og lambi? Er ein­hver munur, eða ákváðum við það bara? Að annað væri til þess að borða en hitt ekki? Þarna er ein­hver tví­skinn­ungur. Ef fólk sæi ein­hvern ætla að skjóta lamb úti á götu myndi líka öllum bregða. En ef sama athöfnin á sér stað bak við vegg, inni í slát­ur­húsi þar sem þú þarft ekki að horfa upp á það, þá er það orðið allt í lagi. Hætt að vera hræði­legt ofbeldi. Þarna hefur orðið ein­hver afteng­ing. Það er engin mann­úð­leg leið til að drepa ein­hvern að ástæðu­lausu.“

Eydís seg­ist vel gera sér grein fyrir því að það sé óvin­sæl skoðun hjá fjöl­mörgum að tala fyrir vegan­isma. „En það gleður mig að heyra að fólk hafi gerst vegan eftir að hafa hlustað á mig. Þessi skoðun er nefni­lega ekki óvin­sæl meðal ungs fólks almennt.“

Uppgjöf ekki í boði

Er hægt að snúa til baka? Í átt að sjálfs­þurft­ar­bú­skap for­tíðar?

Þetta er stór spurn­ing. Við henni er ekk­ert ein­hlítt svar. Ham­ingjan er að minnsta kosti ekki bundin við lífs­stíl nútíma­fólks. Hana er að finna handan hans.

„Við höfum gengið mjög langt í að raska vist­kerf­unum okkar. Ein­hverjir fött­uðu það fyrir löngu en voru stimpl­aðir klikk­aðir hippar,” segir Eydís og brosir. „Því hinum megin við borðið eru svo sterk pen­inga­öfl. Þetta er orr­usta sem er kannski von­lítið að sigra. En ég ætla samt að berj­ast, það er það eina sem ég get gert. Við getum ekki ein­fald­lega gef­ist upp, sá mögu­leiki er ekki lengur í boði. Þá deyjum við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár