„Ég vissi bara ekkert um þetta mál fyrr en ráðuneytisstjórinn sagði mér frá því“

Utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra seg­ist ekki hafa vitað um sam­skipti ráðu­neyt­is­stjóra utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra telur það mjög mik­il­vægt að íslenskir blaða­menn fái að sinna sínum störfum, sínu aðhaldi og eft­ir­liti með stjórn­völdum og öðrum „með sem frjálsustum hætti“. Þetta kom fram í máli hans í und­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, spurði hann meðal ann­ars hvað honum fynd­ist um njósn­a­leið­angra stór­fyr­ir­tækja gagn­vart íslenskum blaða­mönnum.

Þór­hildur Sunna hóf mál sitt á því að segja að sam­skipti hinnar svoköll­uðu skæru­liða­deildar Samherja, sem Kjarninn og Stundin hefðu fjallað um að und­an­förnu, sýndu að útgerð­ar­fyr­ir­tækið njósn­aði um ferðir íslenskra frétta­manna á erlendri grundu.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að Jón Óttar Ólafsson ráð­gjafi Samherja hefði í upp­hafi febr­ú­ar­mán­aðar á þessu ári sagt að „skoðun“ væri hafin á því hvort frétta­mað­ur­inn Helgi Seljan væri mögu­lega staddur í Namibíu.

Vissi ráðherrann af þessu samtali, spurði þingmaðurinn

Þór­hildur Sunna benti jafn­framt á að í njósn­a­starf­semi sinni hafði Samherji leitað á náðir stjórn­sýsl­unnar og þannig hefði skip­stjóri Samherja sett sig per­sónu­lega í sam­band við fyrr­ver­andi sendi­herra í Þýska­landi og núver­andi ráðu­neyt­is­stjóra utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í upp­hafi þessa árs.

[links]„Ætlunin var að fá upp­lýs­ingar um hvort fyrr­nefndur Helgi Seljan hefði fylgt Jóhann­esi Stef­áns­syni, upp­ljóstr­ara í Sam­herj­a­mál­inu, til Berlínar árið 2019. Í sam­tali við Kjarnann stað­festir ráðu­neyt­is­stjór­inn að skip­stjór­inn hafi leitað til hans, þeir séu mál­kunn­ugir, en ekki hafi verið unnt að verða við beiðni skip­stjór­ans því að hún hafi fallið utan verk­sviðs utan­rík­is­þjón­ust­unnar. Sam­skipti skæru­liða­deild­ar­innar bera með sér að skip­stjór­inn hafi ekki fengið upp­lýs­ingar hjá ráðu­neyt­is­stjór­anum en að sam­tal þeirra hafi verið, með leyfi for­seta, „mjög gott“, eins og skip­stjór­inn orð­aði það. Skip­stjór­inn hafi ætlað, með leyfi for­seta, „að segja mönnum af“ spjalli þeirra enda teldi hann það end­ur­spegla „svo­lítið hvað fólk er að hugsa“,“ sagði hún.

Spurði hún hvort ráð­herr­ann hefði verið einn þeirra manna sem ráðu­neyt­is­stjór­inn sagði frá þessu sím­tali.

Guð­laugur Þór svar­aði og sagð­ist ekk­ert hafa vitað um þetta mál fyrr en ráðu­neyt­is­stjór­inn sagði honum frá því fyrir nokkrum dögum að haft hefði verið sam­band við hann. „Í kjöl­farið sendi ráðu­neyt­is­stjór­inn yfir­lýs­ingu, sem ég hygg að hátt­virtur þing­maður hafi verið að vitna í. Að öðru leyti veit ég ekk­ert um þetta mál.“

Helga látið líða eins og hann væri ekki 100 prósent öruggur

Þór­hildur Sunna steig aftur í pontu og sagði að þetta sím­tal hefði átt stað í kjöl­far þess að fréttir bár­ust af því að setið hefði verið um Helga Seljan á kaffi­húsi, hann fengið ógn­andi skila­boð frá Sam­herj­a­mönnum og almennt í því gert að fylgja honum eftir – og láta honum líða eins og hann væri ekki hund­rað pró­sent öruggur.

„Nú veit ég að hæst­virtum utan­rík­is­ráð­herra er annt um öryggi blaða­manna, að minnsta kosti á erlendri grundu,“ sagði hún og spurði Guðlaug Þór hvort ekki hefði verið til­efni til þess að láta Helga vita af þessum eft­ir­grennsl­unum fyr­ir­tæk­is­ins, hvort honum fynd­ist eðli­legt að svona sam­tal ætti sér stað án þess að um það væri til­kynnt og hvað honum fynd­ist almennt um það að stór­fyr­ir­tæki væru að reyna að njósna um ferðir íslenskra frétta­manna á erlendri grundu.

„Hvað segir hæst­virtur ráð­herra við slíkum njósn­a­leið­öngrum stór­fyr­ir­tækja gagn­vart íslenskum blaða­mönnum?“ spurði hún.

Engar reglur um hvernig „menn koma skilaboðum áleiðis“

Guð­laugur Þór sagði í kjöl­farið að þing­mað­ur­inn legði „svo sann­ar­lega út af ýmsu“. Stóra málið væri nátt­úr­lega það að stjórn­völd hefðu tekið sér­stak­lega upp mál­efni blaða­manna. „Það á við hvar sem er í heim­inum þó svo að ólíku sé saman að jafna. Því miður er staða blaða­manna víðs vegar um heim­inn orðin hræði­leg eins og við þekkjum.“

Sagðist hann aftur á móti ekki átta sig á því hvert þing­mað­ur­inn væri að fara varð­andi hin fjöl­mörgu sam­töl sem menn ættu almennt.

„Það eru engar reglur um hvernig menn koma skila­boðum áleiðis. Ég held hins vegar að aðal­at­riðið sé að það er mjög mik­il­vægt að íslenskir blaða­menn fái að sinna sínum störfum, sínu aðhaldi og eft­ir­liti, getum við kallað það, með stjórn­völdum og öðrum með sem frjálsustum hætti. Það er nokkuð sem ég styð, hef stutt og mun styðja áfram,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár