Vill sækja 25 milljarða með stóreignaskatti, álagi á veiðigjöld og hertu skattaeftirliti

Rekstr­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs þarf að hækka um 25 millj­arða króna til að standa undir kosn­inga­á­herslum Sam­fylk­ingar. Sá kostn­aður verður fjár­magn­aður með nýjum tekjum. Annar kostn­aður er fjár­fest­inga­kostn­aður, sem verður tekin að láni en á að skapa tekjur.

Samfylkingin kynnti kosningaáherslur sínar í vikunni.
Sam­fylk­ingin kynnti kosn­inga­á­herslur sínar í vik­unni. Mynd: Samfylkingin

Sá rekstr­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs sem þarf að fjár­magna á hverju ári vegna þeirra til­lagna sem Sam­fylk­ingin vill inn­leiða eftir kosn­ingar er um 25 millj­arðar króna. Stærstu lið­irnir eru stuðn­ing­ur­inn við barna­fólk, öryrkja og eldra fólk. Beinn kostn­aður af þessum til­lögum þegar þær eru að fullu komnar til fram­kvæmda er um 20 millj­arðar króna á ári hverju. Til við­bótar þurfi að auka fjár­magn til heil­brigð­is­þjón­ust­unnar.

Til að mæta þessu ætlar Sam­fylk­ingin að auka tekjur rík­is­sjóðs um sömu upp­hæð. Að mati sér­fræð­inga hennar mun stór­eigna­skattur, á hreinar eignir yfir 200 millj­ónir króna, sem flokk­ur­inn hyggst leggja á skila hátt í 15 millj­örðum króna á ári í við­bót­ar­tekjur fyrir rík­is­sjóð.

Þetta kemur fram í svari flokks­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um fjár­mögnun á kosn­inga­stefnu hans, sem kynnt var í vik­unni.

Ekkert með eignaupptöku að gera

Kristrún Frosta­dóttir, hag­fræð­ingur og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, segir að stór­eigna­skatt­ur­inn sé leið til að nútíma­væða skatt­kerfið fyrir kom­andi kyn­slóðir. „Ráð­stöf­un­ar­tekjur ungs fólks hafa vaxið mun hægar hér landi en þeirra sem eldri eru. Ef ráð­stöf­un­ar­tekjur eldri kyn­slóða vaxa hraðar en þeirra sem yngri eru fer það að skipta meira og meira máli hverjir for­eldrar þínir eru. Upp­hafs­eigna­staðan fer að skil­greina okkur. For­eldrar ung­menna ganga á eigin sparnað til að styðja lengur við börnin sín til að tryggja að þau kom­ist almenni­lega af stað. Í því fel­ast líka auknar fjár­hags­á­hyggjur þeirra sem eldri eru. Það er hættu­leg þróun ef hagur ein­stak­lings verður í auknum mæli háður hag for­eldra.“

[adspot]Kristrún segir að til­lögur flokks­ins um stór­eigna­skatta hafi ekk­ert með eigna­upp­töku að gera. „Hófleg skatt­pró­senta á hreina eign umfram 200 millj­ónir króna þýðir ein­fald­lega að tekjur af eignum verða minni. Fjöldi rann­sókna um allan heim benda til þess að eigna­skattur sé til þess fall­inn að ýta undir arð­bæra fjár­fest­ingu, frekar en fjár­magnstekju­skattur, því hvati skap­ast hjá ein­stak­lingum sem eiga miklar eignir að fjár­festa í háá­vöxt­un­ar­eignum til móts við eigna­skatt­inn. Þetta eru þær fjár­fest­ingar sem við þurfum. Fjár­fest­ing í nýjum atvinnu­greinum. Við viljum ekki að fólk sitji bara á eignum sínum heldur nýti þær til góðs – til að breikka grunn­inn í sam­fé­lag­inu sem við öll getum vaxið á. Um þetta snýst hinn nýi kap­ít­al­ismi. Að stjórn­völd sníði mark­aðs­hag­kerfið í mann­legra form. Skapi hvata til fjár­fest­inga með jákvæðum ytri áhrif fremur en nei­kvæðum. Komi í veg fyrir að bak­grunnur fólks ákvarði tæki­færi.“

Þá ætlar Sam­fylk­ingin að sækja sam­tals um tíu millj­arða króna á ári ann­ars vegar með álagi á veiði­gjald sem leggst á tutt­ugu stærstu útgerðir lands­ins og hins vegar með tekjum sem hljót­ast af auknu skatta­eft­ir­liti sem dregur úr skattaund­anskotum. Með þessum nýju tekju­póstum telur flokk­ur­inn að rekstr­ar­á­ætl­unum hans sé full­mætt.

Á árinu 2020 voru aðrar tekjur en fjár­veit­ingar úr rík­is­sjóði hjá Skatt­inum, yfir­skatta­nefnd og Skatt­rann­sókn­ar­stjóra sam­tals 443 millj­ónir króna sam­kvæmt rík­is­reikn­ingi. Síð­ast­nefnd stofn­unin var ekki með neinar aðrar tekjur en fjár­veit­ingar úr rík­is­sjóði. Veiði­gjöld á síð­asta ári voru tæp­lega 4,9 millj­arðar króna. Því þyrftu tekjur vegna veiði­gjalda og skatta­eft­ir­lits að næstum tvö­fald­ast til að rekstr­ar­á­ætlun Sam­fylk­ing­ar­innar sé full­fjár­mögnuð.

Fjárfestingakostnaður sem mun auka tekjur

Annar kostn­aður sem hlýst af inn­leið­ingu stefnu­mála Sam­fylk­ing­ar­innar flokkar flokk­ur­inn sem fjár­fest­inga­kostnað, ekki rekstr­ar­kostnað, þar sem um inn­viða­fjár­fest­ingu sé að ræða. Sá kostn­aður verði fjár­magn­aður með lán­töku en muni með tíð og tíma skila auk­inni tekju­sköpun og þannig vinna hratt á skulda­hlut­falli rík­is­sjóðs. „Þetta er í full­komnu sam­ræmi við ráð­legg­ingar allra alþjóð­legra stofn­anna um bestu leið­ina til að bæði vaxa út úr COVID ástand­inu og til að byggja undir fram­tíð­ar­hag­vöxt. Við verðum að losa okkur við gamlar kreddur um hver gerir hvað og beita heil­brigðri skyn­semi í hag­stjórn. Sam­fylk­ingin er óhrædd við að leggja fram atvinnu­stefnu sem krefst fjár­fest­ingar í nýjum innviðum á mörgum sviðum,“ segir Kristrún.

[adspot]Á meðal þeirra stefnu­mála sem falla undir þá skil­grein­ingu eru húnæð­is­á­herslur Sam­fylk­ing­ar­innar. Í þeim felst meðal ann­ars að flokk­ur­inn seg­ist ætla að stuðla að því að byggðar verði eitt þús­und leigu- og búsetu­réttar­í­búðir árlega með hús­næð­is­fé­lögum án hagn­að­ar­sjón­ar­miða og að það kalli á tvö­földun stofn­fram­laga til slíkra bygg­inga. Einnig seg­ist flokk­ur­inn vilja færa hús­næðis- og bygg­ing­ar­mál undir eitt ráðu­neyti sem hafi yfir­sýn og beri ábyrgð á upp­bygg­ingu um allt land.

Kristrún segir að slíkar aðgerðir séu til þess fallnar að draga úr fast­eigna­verðs­hækk­unum og þar með draga úr þrýst­ingi á laun og verð­lag. „Lang­mesti þrýst­ing­ur­inn á aukn­ingu rekstr­ar­út­gjalda rík­is­sjóðs snýr að launum og verð­lagi. Ef við náum að draga úr verð­bólgu­þrýst­ingi í hag­kerf­inu með skyn­sam­legum opin­berum fjár­fest­ingum skilar það sér beint í rekstr­ar­sparn­aði rík­is­sjóðs. Fyrir utan að skapa auk­inn stöð­ug­leika í hag­kerf­inu.“

Fjárfesta í framtíðartækifærum

Í lofts­lags­málum boðar Sam­fylk­ingin „nýja og miklu metn­að­ar­fyllri“ aðgerða­á­ætlun, auk þess sem lagt er til að mark­mið um að minnsta kosti 60 pró­senta sam­drátt í losun Íslands fyrir árið 2030 verði fest í lög.

[links]Að sögn Kristrúnar eru þessar aðgerðir hrein fjár­fest­ing í tæki­færum. „Ríkið eyðir tugum millj­arða króna á ári hverju í mennta­kerfið, 30 millj­örðum króna í háskóla­stigið sem dæmi. Við höfum komið okkur saman um að fjár­magna sem sam­fé­lag menntun fólks í hátt í 20 ár af ævi fólks. Þetta er gríð­ar­legur kostn­aður. Og á meðan fólk er í námi er það auk þess ekki á vinnu­mark­aði. En af þessu hlýst þekk­ing sem nýt­ist til tekju­sköp­unar, þó þekk­ing hafi vissu­lega gildi í sjálfu sér. Vandinn hér á landi er hins vegar sá að ekki nægi­lega mikið af störfum við hæfi hafa skap­ast hér. Í þessu felst gríð­ar­leg sóun. Ein besta nýt­ingin á þeim rekstr­ar­fjár­munum sem varið er í mennta­kerfið er að fjár­festa í fram­tíð­ar­tæki­færum fyrir ungt fólk, að byggja hér upp vist­vænt sam­fé­lag sem býður upp á hátækni­störf, störf í þekk­ing­ar­iðn­aði þar sem góð laun eru greidd.

Fjár­fest­ingar í lofts­lagsvænni atvinnu­sköpun er þannig til þess fallin að auka fram­leiðni og nýta betur fjár­magn sem nú þegar er veitt í rekstur rík­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár