Sigríður Andersen segir dómaramálið byggt á misskilningi

Dóms­mála­ráð­herra segir að dóm­nefnd hafi ekki gert upp á milli þeirra sem hún vildi til­nefna sem dóm­ara til Lands­rétt. Ráð­herr­ann telur að fram­vinda máls­ins muni ekki bitna á trausti til Lands­réttar.

Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra.
Sigríður Andersen er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra segir að það sé mis­skiln­ingur að dóm­nefnd sem mat hæfi umsækj­enda til að gegna emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt hafi gert upp á milli þeirra 15 sem hún til­nefndi í emb­ættin. Dóm­nefndin hafi hafi ekki raðað þessum 15 umsækj­endum í töl­sett sæti eftir hæfni. Þetta kemur fram á mbl.is. Ráð­herr­ann seg­ist ekki ótt­ast að fram­vinda máls­ins muni bitna á trausti til Lands­réttar.

[links] Á lista sem dóm­nefndin gerði yfir hæfni umsækj­enda, og Kjarninn birti á þriðju­dag í síð­ustu viku, var umsækj­endum raðað í tölu­sett sæti eftir þeirri hæfn­is­ein­kunn sem dóm­nefndin gaf hverjum og einum umsækj­enda. Sá listi var meðal ann­ars á meðal þeirra gagna sem lögð voru fyrir stjórn­skip­unar- eft­ir­lits­nefnd við með­ferð máls­ins. Sigríður ákvað að breyta þeirri röðun sem dóm­nefndin hafði lagt til og skipta út fjórum af þeim 15 sem nefndin vildi að skip­aðir yrði í emb­ættin 15.

[adspot]

Sigríður segir við mbl.is að dóm­nefndin hafi tekið fram að hún geri ekki upp á milli þeirra 15 sem hún mælti með og taldi hæfa. Sigríður seg­ist telja að 24 séu hæfir og að allir séu þeir jafn hæfir. Af þeim 24 manna lista hafi hún valið og lagt heild­stætt mat á umsækj­endur, meðal ann­ars út frá dóm­ara­reynslu. Þannig hafi hún kom­ist að nið­ur­stöðu sinni um hverja ætti að til­nefnda í rétt­inn.

Telja að ráðherra hafi brotið lög

Samkvæmt lista dóm­nefndar hafði hún kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að 15 af 33 umsækj­endum væru hæf­astir í þau 15 emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt sem í boði eru. Sig­ríður ákvað að breyta röðun list­ans með þeim hætti að fjórir sem dóm­nefnd til­nefndi hurfu af honum og fjórum öðrum var bætt við. Hún rök­studdi þessa ákvörðun sína með því að hún vildi gera dóm­ara­reynslu umsækj­enda hærra undir höfði. Stjórn­ar­and­staðan taldi að ráð­herr­ann hefði ekki rök­stutt breyt­ing­arnar sínar nægi­lega vel og vildi að ákvörðun í mál­inu yrði frestað þannig að hægt yrði að vinna það bet­ur. Var það meðal ann­ars gert vegna harðrar gagn­rýni frá lög­mönnum sem skil­uðu umsögnum inn til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar og vegna þess að rök­stuðn­ing­ur­inn gekk ekki upp ef hann miðað við stiga­gjöf dóm­nefndar fyrir dóm­ara­reynslu ein­vörð­ung­u.

Málið var hins vegar sam­þykkt með atkvæðum stjórn­ar­liða ein­vörð­ungu. Einn þeirra umsækj­enda sem var fjar­lægður af list­an­um, Ást­ráður Har­alds­son, hefur þegar til­kynnt að hann muni stefna íslenska rík­inu og ráð­herr­anum sjálfum vegna máls­ins og telur hana hafa brotið lög. Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem einnig var fjar­lægður af list­an­um, hefur einnig sagt að hann íhugi að leita réttar síns.

Jón Hösk­ulds­son hefur sömu­leiðis sagt að hann liggi undir feldi um næstu skref en Eiríkur Jóns­son, sem dóm­nefndin mat sjö­unda hæf­asta umsækj­and­ann, hefur ekk­ert viljað láta hafa eftir sér opin­ber­lega um hvort hann ætli að höfða mál eða ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár