Sjálfstæðisflokkur og Samfylking mælast stærstu flokkarnir

Nánast engin breyt­ing er á fylgi stjórn­mála­flokka milli mán­aða. Stjórn­ar­flokk­arnir myndu tapa 9,2 pró­sentu­stigum ef kosið yrði í dag en þeir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem bætt hafa við sig á kjör­tíma­bil­inu græða 10,9 pró­sentu­stig.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með nákvæm­lega sama fylgi og hann hafði í lok nóv­em­ber í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup, eða 23,7 pró­sent. Sam­fylk­ingin var líka með sama fylgi um liðin ára­mót og hún mæld­ist með í lok nóv­em­ber, eða 17 pró­sent.

Í raun er fylgi allra þeirra níu flokka sem mældir voru með stuðn­ing nán­ast það sama nú og það var um mán­uði áður.

Píratar eru áfram þriðji stærsti flokkur lands­ins með 11,9 pró­sent fylgi, Vinstri græn koma þar á eftir með 11,7 pró­sent og fylgi Við­reisnar mælist tíu pró­sent.

Mið­flokk­ur­inn mælist með 9,1 pró­sent stuðn­ing og flokk­ur­inn sem hann klauf sig frá, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, yrði minnsti flokk­ur­inn á Alþingi ef kosið yrði í dag með 8,3 pró­sent atkvæða.

Hvorki Flokkur fólks­ins (4,3 pró­sent) eða Sós­í­alista­flokkur Íslands (3,8 pró­sent) eru lík­legir til að ná inn manni á þing miðað við þær fylgis­tölur sem þeir mæl­ast með nú.

Næst verður kosið í sept­em­ber næst­kom­andi að óbreyttu. 

Nálægt 58 pró­sent aðspurðra segj­ast styðja sitj­andi rík­is­stjórn, sem er tæp­lega tveimur pró­sentu­stigum minni stuðn­ingur en mæld­ist í lok nóv­em­ber.

Fjórir bæta við sig, fimm tapa fylgi

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír eru allir undir kjör­fylgi síð­ustu kosn­inga, líkt og þeir hafa verið meira og minna allt kjör­tíma­bilið. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi tapa 1,6 pró­sentu­stigi ef kosið yrði í dag, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 2,4 pró­sentu­stigi en Vinstri græn allra stjórn­ar­flokka mest, eða 5,2 pró­sentu­stigum. Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna nú mælist 43,7 pró­sent en þeir fengu 52,9 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum.

[adspot]Þrír flokkar sem þegar eiga full­trúa á þingi myndu bæta við sig fylgi. Sam­fylk­ingin mælist ný með 4,9 pró­sentu­stigum meira fylgi en hún fékk 2017, og bætir meira við sig en nokkur annar. Píratar mæl­ast með 2,7 pró­sentu­stigum meira fylgi en þeir fengu sið­ast þegar var kosið og Viðreisn með 3,3 pró­sentu­stigum meira en haustið 2017. Sam­an­lagt fylgi þess­ara þriggja flokka hefur því auk­ist úr 28 pró­sentu­stigum í 38,9 pró­sentu­stig.

Til við­bótar við þessa þrjá hefur Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem hefur aldrei boðið fram til þings, tekið til sín nýtt fylgi upp á 3,8 pró­sent. Það þýðir að ein­ungis Sam­fylk­ingin hefur tekið meira en hann af nýju fylgi til sín sam­kvæmt mæl­ingum.

Mið­flokk­ur­inn myndi tapa 1,8 pró­sentu­stigi ef kosið yrði í dag og Flokkur fólks­ins 2,6 pró­sentu­stigum.

Nið­ur­stöður sem hér birt­ast um fylgi flokk­anna á lands­vísu eru úr net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 1. des­em­ber 2020 til 3. jan­úar 2021. Heild­ar­úr­taks­stærð var 10.958 og þátt­töku­hlut­fall var 51,5 pró­sent. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,2 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár