Boða sókn í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum á leiðtogafundi Bidens

Á tveggja daga leið­toga­fundi um lofts­lags­mál kynnti Banda­ríkja­for­seti frek­ari skuld­bind­ingar sínar varð­andi losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Margir þjóð­ar­leið­togar fylgja Biden að máli en aðgerð­ar­leysi Kínverja hefur valdið gremju banda­rískra stjórn­mála­manna.

Biden bauð til leiðtogafundar í vikunni þar sem hann ræddi við leiðtoga 40 annarra ríkja í gegnum fjarfundabúnað.
Biden bauð til leið­toga­fundar í vik­unni þar sem hann ræddi við leið­toga 40 ann­arra ríkja í gegnum fjar­funda­búnað. Mynd: EPA

Banda­ríkin ætla að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um helm­ing fyrir lok þessa ára­tugar miðað við losun árið 2005. Þetta til­kynnti Joe Biden á tveggja daga leið­toga­fundi um lofts­mál sem hald­inn var í vik­unni. Biden hafði boðað 40 stjórn­mála­leið­toga víðs vegar að til þess að taka þátt í fund­inum sem fór fram í gegnum fjar­funda­búnað.

Lofts­lags­mál hafa verið ofar­lega á baugi á fyrstu mán­uðum stjórn­ar­tíðar Joes Bidens. Hann lét það verða eitt sitt fyrsta verk að skrifa undir til­skipun þess efnis að Banda­ríkin yrðu aftur aðili að Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Leið­toga­fund­ur­inn sem Biden hélt í vik­unni fjall­aði að stórum hluta um end­ur­komu Banda­ríkj­anna inn í Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Á fund­inum kynnti Biden nýjar skuld­bind­ingar Banda­ríkj­anna auk þess sem hann vildi með fund­inum reyna að fá fleiri þjóð­ar­leið­toga til að taka stærri skref í bar­átt­unni við losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og ham­fara­hlýnun.

Fleiri ríki uppfæra skuldbindingar sínar

Fleiri lönd hafa skuld­bundið sig til þess að ganga lengra í minnkun á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, þar á meðal Kanada, Japan og Suður-Kórea, sam­kvæmt umfjöllun BBC.

Ný áform stjórn­valda í Kanada um að minnka losun um 40-45 pró­sent fyrir lok ára­tug­ar­ins hafa verið gagn­rýnd af aðgerð­ar­sinnum. „Nýtt mark­mið Kanada fyrir árið 2030 gengur lengra en fyrri skuld­bind­ingar en það nægir ekki til þess að koma í veg fyrir hættu­lega hlýnun,“ er haft eftir Helen Mountford hjá banda­rísku rann­sókn­ar­stofn­un­inni World Resources Institute í frétt BBC. Hún fagn­aði því að gripið væri til aðgerða, líkt og að skatt­leggja losun en að hennar mati þyrfti að ganga mun lengra í minnkun los­unar.

Japanir ætla sér að minnka losun um 46 pró­sent fyrir lok ára­tug­ar­ins, miðað við magn los­unar árið 2013. Stefnan var sett á 26 pró­sent sam­drátt los­unar í fyrri mark­miðum. Yoshide Suga, for­sæt­is­ráð­herra Japans, sagði landið vera reiðu­búið til að verða einn af leið­togum lofts­lags­mála.

Þá hafa ráða­menn Suður-Kóreu lagt fram nýjar skuld­bind­ingar í þessum efnum. Ein af aðgerðum þar­lendra stjórn­valda verður að hætta að fjár­magna orku­ver sem ganga fyrir kolum.

Aðgerðarleysi Kínverja veldur gremju

Skuld­bind­ingar Kína, Rúss­lands og Indlands hafa aftur á móti ekk­ert breyst frá því sem áður var. Samkvæmt umfjöllun New York Times hefur það valdið gremju bæði innan raða repúblik­ana jafnt sem demókrata að Kín­verjar ætli ekki að leggja fram metn­að­ar­fyllri lof­orð um minnkun los­unar. Sögulega eiga Banda­ríkja­menn mesta sök á því magni gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem losnað hefur í and­rúms­loftið en í dag eru það Kín­verjar sem losa mest.

Repúblikanar hafa gagn­rýnt það að Banda­ríkja­menn þurfi að færa fórnir á meðan Kín­verjar halda áfram að brenna kolum. Mitch McConnell, leið­togi Repúblik­ana í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings, sagði til að mynda í vik­unni að Kín­verjar héldu „blygð­un­ar­laust“ áfram á sömu braut þegar kemur að losun. Hann benti einnig á að hlut­deild Kínverja í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á árs­grund­velli um þessar mundir væri nærri tvö­föld á við hlut­deild Banda­ríkja­manna.

Á leið­toga­fund­inum gaf Xi Jinping það þó í skyn að von yrði á sam­drætti í notkun kola á næstu árum, án þess þó að upp­færa skuld­bind­ingar í losun, líkt og áður segir. Búast má við að bruni kola í Kína muni fær­ast í auk­ana eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn dvalar og sam­kvæmt tölum frá Alþjóða orku­mála­stofn­un­inni sem vísað er í í umfjöllum BBC mun helm­ingur allrar aukn­ingar í kola­brennslu þessa árs eiga sér stað í Kína.

Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands, hefur heldur ekki heitið frek­ari aðgerðum líkt og Xi Jinping. Á fund­inum lagði hann áherslu á að losun Indverja á hvern íbúa sé 60 pró­sentum minni heldur heims­með­al­talið. Hann sagði að lífstíls­breyt­ingar ættu að skipa stærri sess í bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ingar.

Tæknin örlítið að stríða forsetanum

Leið­toga­fund­ur­inn gekk ekki þrauta­laust fyrir sig eins og rakið er í umfjöllun New York Times. Upp­hafs­ræður Bidens og Kamölu Harris, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, máttu sín lít­ils gagn­vart háværu berg­máli á köflum. Þá gekk erf­ið­lega að kynna Vladimír Pútín, Rúss­lands­for­seta, en Emmanuel Macron, Frakk­lands­for­seti stal gjarnan sviðs­ljós­inu í mynd­sím­tal­inu.

Douglas Brinkley, sagn­fræð­ingur sem meðal ann­ars sér­hæfir sig í öllu því sem við kemur emb­ætti Banda­ríkja­for­seta, sagði þennan vand­ræða­gang ekki gefa góð fyr­ir­heit fyrir stóru áskor­an­irnar sem bíða þjóð­ar­leið­tog­anna., „Það er ótrú­legt að sjá hversu erf­ið­lega tækni­málin gengu. Það fær mann til að hugsa hversu vel eigi eftir að ganga með að ráða nið­ur­lögum lofts­lags­breyt­inga þegar jafn illa gengur að koma ein­földu vef­streymi í gangi,“ er haft eftir honum í grein New York Times.

Þrátt fyrir þessa byrj­un­arörð­ug­leika lýstu leið­tog­arnir því yfir að þeim væri létt að vita til þess að vís­indi væru enn á ný í hávegum höfð meðal banda­rískra stjórn­valda. Einn fund­ar­gesta sem tal­aði á þessum nótum var Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Hún sagði það vera gott að fá Banda­ríkin aftur til liðs við þær þjóðir sem vilja gera eitt­hvað í mál­unum. „Par­ís­ar­sam­komu­lagið er líf­trygg­ing mann­kyns,“ sagði hún meðal ann­ars á fund­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár