Ung vinstri græn: Rík­is­stjórn­ar­sam­starfið má aldrei verða mik­il­væg­ara en mann­úð

Lands­stjórn Ungra vinstri grænna hvetur rík­is­stjórn Íslands ein­dregið til að draga til baka ákvörðun sína um end­ur­send­ingar flótta­fólks og líta til mann­úð­ar­sjón­ar­miða og félags­legs ávinn­ings fyrir sam­fé­lagið.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lands­stjórn Ungra vinstri grænna for­dæmir þá ákvörðun íslenskra stjórn­valda að hefja á ný end­ur­send­ingar á fólki til Grikk­lands.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef­síðu Ungra vinstri grænna í dag. Mál umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hér á landi hefur tröll­riðið sam­fé­lags­um­ræð­unni und­an­farna daga en til stendur að vísa tæp­lega 300 ein­stak­lingum úr landi á næst­unni.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra og vara­for­maður Vinstri grænna (VG) sagði í við­tali á RÚV í gær­kvöldi það rangt að sam­staða ríkti innan rík­is­stjórn­ar­innar um það að vísa flótta­mönn­unum úr landi, líkt og Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur haldið fram. Hann sagð­ist hafa gert „al­var­legar athuga­semd­ir“ við þá veg­ferð sem Jón væri á og að hann væri ekki ánægður með það hvernig Jón hefði haldið á mál­inu. „Nei, ég get ekki sagt að ég sé það. Ég held að það sé alveg ljóst af mínum orð­u­m.“

„Nú ríður á að hafa hugrekki til að standa með okkar sannfæringu“

Land­stjórn Ungra vinstri grænna lýsa yfir ánægju með yfir­lýs­ingar vara­for­manns VG í fréttum RÚV í gær­kvöldi og hvetja þau þeirra fólk til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að þess­ari ákvörðun verði fram­fylgt.

„Stefna VG í mála­flokknum er skýr og nú ríður á að hafa hug­rekki til að standa með okkar sann­fær­ingu þó svo sam­starfs­flokk­arnir og þeirra ráð­herrar séu ef til vill á öðru máli. Rík­is­stjórn­ar­sam­starfið má aldrei verða mik­il­væg­ara en mannúð.

Það fólk sem nú á að flytja úr landi hefur verið hér í langan tíma og myndað náin tengsl við land og þjóð og gefið af sér til sam­fé­lags­ins. Þessi ákvörðun er póli­tísk og keyrð áfram af rík­is­stjórn Íslands,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Ísland þarf að gangast við sinni ábyrgð á orsök fólksflótta

[links]Þá benda þau á að ítrekað hafi komið fram að Grikk­land sé ekki öruggt land, þrátt fyrir að vera á lista yfir slík lönd, og styðja frá­sagnir fólks af aðstæðum þar í landi við það. „Annað sem styður við það er ákvörðun íslenskra stjórn­valda fyrir nokkrum árum um að hætta að end­ur­senda fólk í hæl­is­kerf­inu í Grikk­landi vegna óvið­un­andi aðstæðna þar. Sú ákvörðun nær þó ekki til fólks með vernd í Grikk­landi og er það með öllu óskilj­an­legt. Það er ljóst að ekk­ert bíður þessa hóps nema örbirgð, óör­yggi, skortur á nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu og algjört von­leysi.

Fólks­flótti í heim­inum orsakast að mestu af lifn­að­ar­háttum og hern­að­ar­brölti vest­rænna ríkja. Ísland þarf að gang­ast við sinni ábyrgð á orsök fólks­flótta og taka hér á móti mun fleira fólki á flótta en hefur við­geng­ist hingað til og sýna meiri metnað þegar kemur að mál­efnum flótta­fólks og hæl­is­leit­enda. Fyrir utan aug­ljós mann­úð­ar­sjón­ar­mið auðgar fjöl­breyti­leik­inn sam­fé­lagið okkar,“ segir enn fremur í yfir­lýs­ing­unni.

Lands­stjórn Ungra vinstri grænna hvetur rík­is­stjórn Íslands ein­dregið til að draga til baka ákvörðun sína um end­ur­send­ingar flótta­fólks og líta til mann­úð­ar­sjón­ar­miða og félags­legs ávinn­ings fyrir sam­fé­lagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár