Ríkir karlar ánægðastir með ríkisstjórnina

Almennt eru Íslend­ingar óánægðir með nýja rík­is­stjórn og stjórn­ar­sátt­mála hennar. Karlar eru þó síður óánægðir en konur og tekju­háir mark­tækt sátt­ari en tekju­lágir.

Rúmur mánuður er síðan að skrifað var undir stjórnarsáttmála Bjartrar framtíðar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar. Mikill meirihluti þjóðarinnar er ósátt með innihald hans.
Rúmur mán­uður er síðan að skrifað var undir stjórn­ar­sátt­mála Bjartrar fram­tíðar, Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar. Mikill meiri­hluti þjóð­ar­innar er ósátt með inni­hald hans. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tekju­hærri lands­menn eru mark­tækt ánægð­ari með rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar en þeir sem hafa lægri tekjur. Þeir eru líka mun lík­legri til að vera ánægðir með inni­hald stjórn­ar­sátt­mála Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Réttara væri reyndar að segja að færri í þeim hópi sem hafa umtals­vert hærri tekjur en með­al­tekjur eru óánægðir með rík­is­stjórn­ina og stjórn­ar­sátt­mál­ann en í þeim hópum sem hafa miðl­ungs- eða lægri tekjur, í ljósi þess að ánægja með hvort tveggja mælist mjög tak­mörkuð. Almennt er þjóðin óánægð með stjórn­ar­sam­starfið og sátt­mál­ann sem það hvílir á.

Þetta má lesa út úr nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup.

Ríkir ánægðari en hinir

Í könnun Gallup kemur fram að í þeim hópum Íslend­inga sem voru með undir 550 þús­und krónur í mán­að­ar­laun mæld­ist ánægja með rík­is­stjórn­ina á bil­inu 13-21 pró­sent. Minnst mæld­ist ánægjan í tekju­hópnum sem hafði 400-549 þús­und krónur á mán­uði, en ein­ungis 13 pró­sent aðspurðra í honum var ánægður með rík­is­stjórn­ina.

Marktækt meiri ánægja er á meðal tekju­hærri hópa sam­fé­lags­ins með rík­is­stjórn­ina. Á meðal þeirra tekju­hópa sem eru með yfir 800 þús­und krónur í mán­að­ar­laun mælist ánægjan á bil­inu 25-34 pró­sent. Mest er ánægjan hjá efsta tekju­hópnum, þ.e. þeim sem hafa yfir 1.250 þús­und krónur í mán­að­ar­laun. Innan þess hóps eru 34 pró­sent aðspurðra ánægðir með rík­is­stjórn­ina. Sam­an­lagt mælist ánægja með rík­is­stjórn­ina ein­ungis um 25 pró­sent þannig að mark­tækt meiri ánægja er með hana hjá tekju­hæstu hóp­unum en öllum hinum.

Tekju­hærri hópar sam­fé­lags­ins eru líka mun ánægð­ari með stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar en þeir sem eru tekju­lægri. Hjá þeim lands­mönnum sem til­heyra tekju­hópum með laun upp að 550 þús­und krónum mæld­ist ánægjan með stjórn­ar­sátt­mál­ann ein­ungis á bil­inu 12-16 pró­sent. Minnst var ánægjan hjá þeim sem eru með 400 til 549 þús­und krónur á mán­uði, eða 12 pró­sent.

Hjá tekju­hópum með yfir 800 þús­und krónur á mán­uði var ánægja með stjórn­ar­sátt­mál­ann á bil­inu 27-32 pró­sent, og mest hjá þeim sem voru með yfir 1.250 þús­und krónur á mán­uði.

Sex prósent kjósenda Bjartar framtíðar ánægðir með sáttmálann

Í könnun Gallup kemur líka fram að karlar eru mun ánægð­ari með rík­is­stjórn­ina en konur. Alls sögð­ust 30 pró­sent karla vera ánægðir með hana en 19 pró­sent kvenna. Áður hefur verið greint frá því að ein­ungis 14 pró­sent þeirra sem kusu Bjartra fram­tíð, sem situr í rík­is­stjórn­inni, eru ánægðir með störf hennar. Til við­bótar eru ein­ungis sex pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíðar ánægðir með stjórn­ar­sátt­mála flokk­anna þriggja.

Til sam­an­burðar eru 67 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks ánægðir með rík­is­stjórn­ina og 39 pró­sent kjós­enda Við­reisnar. Aðeins minni ánægja er meðal þeirra með stjórn­ar­sátt­mál­ann. 35 pró­sent kjós­enda Við­reisnar eru sáttir með hann en 59 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks.

Menntun telur þegar kemur að þekkingu

Í Þjóð­ar­púls­inum var líka spurt hvort fólk teldi sig þekkja inni­hald stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Í nið­ur­stöð­unum kom í ljós að um 31 pró­sent taldi sig þekkja inni­haldið vel, 37 pró­sent hvorki vel né illa en um 32 pró­sent tali sig þekkja það illa.

Skýr munur var á því eftir menntun hvort fólk þekkti inni­hald stjórn­ar­sátt­mál­ans eða ekki. Þannig þekktu 39 pró­sent aðspurðra sem eru með háskóla­próf inni­hald hans en ein­ungis 22 pró­sent þeirra sem voru með grunn­skóla­próf sem æðstu menntun. Karlar (39 pró­sent) töldu sig þekkja hann mun betur en konur (26 pró­sent) og tekju­hæsti hópur lands­manna, sá sem hefur yfir 1.250 þús­und krónur í mán­að­ar­laun, taldi sig þekkja hann mun betur en aðrir (46 pró­sent).

Könnunin var net­könnun sem gerð var dag­ana 1. til 12. febr­úar 2017. Heild­ar­úr­taks­stærð var 1.402 og þátt­töku­hlut­fall var 59,5 pró­sent. Ein­stak­lingar voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár