Óvæntur sigurvegari gærkvöldsins - en hvað gerist næst?

Ted Cruz sigr­aði fyrsta slag­inn af mörgum um útnefn­ingu Repúblik­ana. Það gerði hann með hjálp trú­aðra og íhalds­manna í Iowa. Nú flyst athyglin til New Hamshire, sem er allt öðru­vísi en Iowa.

Ted Cruz varð hlut­skarpastur fram­bjóð­enda Repúblikana­flokks­ins á kjör­fundi í Iowa í gær, þvert á flestar spár. Hann fékk 28% atkvæða þeirra sem mættu á kjör­fundi. Nú flyst bar­áttan til New Hamshire, þar sem kosið verður í næstu viku, og sumir eru á því að eftir úrslitin í Iowa sé komið í ljós hvaða þrír fram­bjóð­endur muni berj­ast um útnefn­ingu Repúblikana­flokks­ins: Cruz, Donald Trump og Marco Rubio, en Trump rétt hafði betur en Rubio og náði öðru sæti. Það litar þó alla umræðu og spár að hingað til hefur þró­unin verið nokkuð óút­reikn­an­leg. Fáir spáðu því til dæmis fyrir nokkrum mán­uðum að Donald Trump næði þeim árangri sem hann hefur náð.

Hvað hafði áhrif?

Flestir eru sam­mála um það að Cruz hafði sigur með því að fá íhalds­sama og kristna, evang­elista, á kjör­stað. Allar skoð­ana­kann­anir van­mátu líka hversu margir voru óákveðnir þangað til á síð­asta degi, en það voru 35%.

Tveir af hverjum þremur þeirra sem fóru á kjör­stað sögð­ust vera mjög íhalds­samir, sam­kvæmt könnun Politico, og Cruz fékk 44% atkvæða þeirra sem skil­greindu sig þannig. Donald Trump fékk bara 21% atkvæða þessa hóps og Marco Rubio 15%. Hins vegar fékk Cruz aðeins 19% atkvæða þeirra sem sögð­ust dálítið íhalds­samir, en sá hópur taldi heil 45% af öllum þeim sem mætu á svæðið. Og á meðal þeirra sem telja sig hóf­sama eða frjáls­lynda, sem voru 15%, fékk Cruz bara níu pró­senta stuðn­ing.

Cruz fékk 34% af atkvæðum þeirra sem eru evang­elistar, Trump 22% og Rubio 21%. Cruz hefur meðal ann­ars sagt á fundum að hann hafi beðið fyrir því að vinna í Iowa.

Þetta skiptir auð­vitað máli vegna þess að það eru alls ekki öll ríki eins sam­sett. Hlutfall krist­inna og íhalds­samra repúblik­ana er hátt í Iowa. Í Iowa er líka að stórum hluta hvítt og milli­stétt­ar­fólk, sem hafði líka áhrif á nið­ur­stöð­una hjá demókrötum. Hillary Clinton á meiri vin­sælda að fagna meðal ann­arra hópa.

Fyr­ir­komu­lagið í Iowa er líka öðru­vísi en víð­ast ann­ars staðar. Þar fara fram kjör­fundir, þar sem fólk þarf að mæta, hlusta á ræður og kjósa svo með fót­unum. Það er ekki leyni­leg kosn­ing, og þetta hefur iðu­lega verið talið hafa þau áhrif að aðeins þeir hörð­ustu mæti á stað­inn.

Engu að síður var met­þátt­taka í kjör­fund­unum hjá repúblikönum í Iowa, 185 þús­und manns mættu.

Cruz sagði eftir sig­ur­inn að hann væri sigur gras­rót­ar­innar. Það má alveg til sanns vegar færa, honum og hans kosn­inga­vél tókst að virkja mik­inn fjölda sjálf­boða­liða í bar­átt­unni og það skiptir ekki minna máli hvað hann varði miklum tíma þar. Eins og Kristinn Haukur Gunn­ars­son sagn­fræð­ingur kom inn á í skýr­ingu um Iowa á Kjarn­anum um helg­ina eru kjós­endur í Iowa kröfu­harðir. Einn sjálf­boða­liði repúblík­ana í Des Moines segir: „Iowa-búar eru aldrei ánægðir. Það þarf meira en eina ræðu, eitt handa­band eða einn fund til að sann­færa kjós­endur í Iowa.“

Cruz fór í allar 99 sýslur rík­is­ins, og hélt fundi, líkt og Rick Santorum gerði fyrir fjórum árum. Það virk­aði fyrir Santorum þá og það virk­aði fyrir Cruz núna. 

Hægri íhaldsmaðurinn Cruz

Cruz er gríð­ar­legur íhalds­maður sem hefur haldið úti harðri kosn­inga­bar­áttu í þá veru. Hann hefur gengið jafn­langt eða lengra en Trump þegar kemur að utan­rík­is­málum, og meðal ann­ars kallað eftir því að sprengjum verði látið rigna yfir Íslamska ríkið í Sýrlandi þangað til sand­ur­inn glóir.

Hann hefur tjáð sig um breyt­ingar á Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna, og

sagt að þar þurfi

að gera breyt­ingar og koma inn íhalds­mönnum. Annars muni Hæsti­réttur ákveða að eng­inn megi bera vopn, muni stöðva allar tak­mark­anir á fóst­ur­eyð­ingum þannig að hægt sé að eyða fóstri á öllum tímum með­göngu, og það verði gert með notkun skatt­fjár. Hann hefur talað fyrir því að stöðva fjár­veit­ingar til Planned Parenthood og er mjög á móti fóst­ur­eyð­ingum. Hann hefur við­haft mjög vafasöm ummæli sem mjög

auð­velt er að segja rasísk.

Hann er mjög fylgj­andi byssu­eign og NRA sam­tökin gefa honum sína bestu ein­kunn. Hann vill og hefur reynt að stöðva breyt­ingar á heil­brigð­is­trygg­ingum. Og hann hefur ekki mikla trú á hætt­unni af lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum. Enda hafa fram­bjóð­endur Demókrata sagt að hann sé alveg jafn slæmur og Donald Trump.

Þrátt fyrir að Marco Rubio hafi kom­ist á þing með hjálp Teboðs­hreyf­ing­ar­innar rétt eins og Cruz, þá er hann hóf­samur í sam­an­burð­inum. Í Iowa kom Marco Rubio á óvart, steig upp sem þriðji fram­bjóð­and­inn og skildi alla hina hóf­sam­ari, kerf­is­fram­bjóð­end­urna eftir langt fyrir neðan. Þeir hafa þó margir eytt miklu púðri í New Hamps­hire, ekki síst Jeb Bush, og það er ekk­ert hægt að úti­loka. Þar ætlar Rubio sér að ná öðru sæt­inu. Hann er vin­sælli fram­bjóð­andi meðal flokks­hesta í Washington og vegna þess að hann er hóf­sam­ari en Cruz er hann líka tal­inn lík­legur til að geta frekar náð til almennra kjós­enda.

Slagurinn hafinn - Pólitísk bylting?

Magnús Halldórsson skrifar frá New York

„Þetta markar upphafið af pólitískri umbreytingu í Bandaríkjunum,“ sagði Bernie Sanders, við dynjandi lófaklapp og fagnaðaróp stuðningsmanna sinna í Iowa, þegar niðurstaðan lá fyrir í forvalinu. Þrátt fyrir tap fyrir Hillary þá líta margir álitsgjafar hér í Bandaríkjunum á hann sem sigurvegara kosninganna. Því nú hefur verið staðfest með kosningu að krafturinn í kosningabaráttu hans er ósvikinn. Hillary Clinton, með alla sína reynslu og tengingar við helstu stofnanir Bandaríkjanna - og Wall Street - getur ekki annað en tekið fram öll vopnin sem hún hefur í búri sínu til að kljást við Sanders, fram að útnefningu flokksins.

En á móti segja margir, að fyrst Sanders hafi ekki unnið Iowa, þá eigi hann ekki mikinn séns. Staða Hillary sé það sterk í öðrum ríkjum. Kosningaþátttaka mun líklega hafa mikið um það að segja, hvernig fer, því Sanders virðist vera að kveikja mikinn áhuga á stjórnmálum hjá fólki sem ekki hefur áður gefið þeim mikinn gaum. Ekki síst er það ungt fólk sem virðist tengja hugsanir sínar sterklega við málflutning Sanders, ekki síst tala hans um hnignun millistéttarinnar og að stjórnmálin séu hönnuð í kringum elítuna á Wall Street og í Washington DC. Hillary hefur sterka stöðu þar, en að auki sýna kannanir að hún nær vel til minnihlutahópa og auðvitað kvenna. Enda ætlar hún sér að verða fyrsti kvenforseti Bandaríkjanna. Hvorki meira né minna.

Hjá Repúblikönum eru það talin helstu tíðindin, að Donald Trump sé að missa vindinn úr seglum á sínu skipi. Ted Cruz, sem hefur mikinn stuðning frá sértrúarsöfnuðum vítt og breitt um Bandaríkin, sigraði nokkuð örugglega í Iowa. Trump hefur verið að mælast hár í könnunum að undanförnu, og þykja þessar niðurstöður sína að "frasastjórnmál" hans séu hugsanlega að sýna ýktari mynd í skoðanakönnunum, heldur en þegar á hólminn er komið. Nokkur óvissa er því í kortunum með framhaldið hjá þessum milljarðamæringi sem lætur allt flakka.

Á meðan getur Marco Rubio andað léttar, eftir að hafa tekið dýfu í könnunum að undanförnu. Rubio, sem er sonur innflytjenda frá Kúbu, var með einu prósentustigi lakari kosningu en Trump, en er almennt álitinn hafa mikinn stuðning innan Repúblikanaflokksins í öðrum ríkjum. Hugsanlega er þessi niðurstaða upphafið af mikilli sókn hans fram að útnefningunni sjálfri, hver veit. Rafmögnuð spenna mun fylgja forvalinu og baráttunni fram að sjálfum kosningunum, svo mikið er víst.

Fer allt í kunnuglegt far?

Í næstu viku er svo komið að fyrstu eig­in­legu for­kosn­ing­unum, próf­kjör­inu sem fer fram í New Hamps­hire 9. febr­úar. Þar er staðan allt önnur en í Iowa, ekki eins trúað fólk og ekki eins harð­línu-íhalds­sinnað og Cruz. New Hamps­hire próf­kjörið hefur líka sjaldn­ast farið eins og kjör­fundur í Iowa.

En ef hann fer með sigur af hólmi þar, sem er alls óvíst, gæti róð­ur­inn þyngst veru­lega fyrir Trump. Þá gæti bar­áttan farið á kunn­ug­legar slóðir, hægri íhalds­mað­ur­inn Cruz á móti hóf­sam­ari Rubio. Þá er ágætt að minna á að Repúblikanar hafa ekki valið þann fram­bjóð­anda sem er mesti hægri íhalds­mað­ur­inn í 35 ár, eða frá því að Ronald Reagan varð fyrir val­inu. Hins vegar er svo margt óvenju­legt í ferl­inu núna að það er erfitt að líta á slíkar sögu­skýr­ingar sem mjög mikla vís­bend­ingu um það sem koma skal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár