Eldri femínistar vilja búa á Bræðraborgarstíg 1

Femínistar sex­tíu ára og eldri gætu eftir um þrjú ár fyllt „norna­hús“ sem áhugi er á að reisa á horni Bræðra­borg­ar­stígs og Vest­ur­götu. Horn­húsið, sem í ára­tugi var sam­komu­staður í hverf­inu, brann í miklum elds­voða í sumar.

Garðurinn bakvið Bræðraborgarstíg 1 og 3 er risa stór.
Garð­ur­inn bak­við Bræðra­borg­ar­stíg 1 og 3 er risa stór. Mynd: Golli

„Hug­myndin er að búa þarna til sam­fé­lag í sátt og sam­lyndi borg­ar­yf­ir­völd, Minja­stofnun og ekki síst við nærum­hverfið,“ segir Runólfur Ágústs­son, verk­efna­stjóri Þorpsins vist­fé­lags sem hefur fengið sam­þykkt kauptil­boð í bruna­rúst­irnar á Bræðra­borg­ar­stíg 1 sem og hús númer 3 við göt­una sem var í eigu sömu aðila, félags­ins HD verks ehf. Bruna­rúst­irnar hafa nú staðið í að verða hálft ár með til­heyr­andi slysa­hættu og óþef. Ef allt gengur að óskum gæti nið­ur­rif þeirra haf­ist í byrjun næsta árs og skipu­lags­vinna og fram­kvæmdir í kjöl­farið.

Kaup Þorpsins vist­fé­lags eru þannig til komin að hópur kvenna sem kallar sig Femínistar 60+ kom að máli við for­svars­menn þess og spurði hvort að þau gætu unnið í sam­ein­ingu að upp­bygg­ingu íbúða­kjarna í takti við hug­mynda­fræði sem kall­ast Baba Yaka. Hug­mynda­fræðin er unn­runnin í París en hefur síð­ustu ár rutt sér til rúms víðar. Hún gengur út á að skapa val­kost við önnur búsetu­form sem eldra fólki býðst í dag, í þessu til­viki fyrir konur á besta aldri sem vilja búa í sínum íbúðum en í húsi með ýmsum sam­eig­in­legum rýmum og öðrum konum sem eru svipað þenkj­andi, líkt og Unnur Ágústs­dóttir úr Femínistum 60+, sagði í við­tali við Síð­deg­is­út­varpið í vik­unni.

Frétta­skýr­ingar Kjarnans um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg

[adspot]

Húsið að Bræðra­borg­ar­stíg 1 var byggt árið 1906 og var fyrstu árin fjöl­skyldu­hús með bak­aríi og verslun á jarð­hæð­unum. En síð­ustu ár hefur það verið í eigu félaga sem leigðu her­bergi þess út, aðal­lega til erlends verka­fólks. Viðhaldi húss­ins var ábóta­vant og höfðu nágrannar marg­sinnis kvartað vegna þess til borg­ar­yf­ir­valda. Þrír fór­ust í elds­voð­anum sem varð 25. júní, allt ungt fólk frá Póllandi. Þá slös­uð­ust tveir alvar­lega. Annar brann mjög illa og hinn hlaut áverka við það að stökkva út um glugga á ris­hæð­inni til að forð­ast eld­inn.

[links]Bygg­ing­ar­full­trúi Reykja­víkur sendi eig­and­anum HD verki ehf. bréf í lok októ­ber þar sem honum var gert að sækja um nið­ur­rif og fjar­lægja það sem eftir stæði af hús­inu innan þrjá­tíu daga. Í athuga­semd eig­and­ans kom fram að hann vildi ekki að húsið yrði rifið strax. Það væri sönn­un­ar­gagn í vátrygg­ing­ar­máli sem gæti dreg­ist í marga mán­uði, jafn­vel ár. Ef yfir­völd myndu engu að síður láta rífa það yrði farið í mál og þau krafin bóta.

En mögu­lega er nú fundin lausn í nið­ur­rifs­mál­inu – þó að enn eigi eftir að hnýta marga lausa enda. Lausn sem nágrannar, borg­ar­yf­ir­völd og Minja­stofnun hafa tekið vel í, að sögn Runólfs.

Kaupverð hús­anna tveggja fæst ekki upp gefið. Nú standa yfir við­ræður við banka­stofn­anir um yfir­töku á áhvílandi lánum. Að auki þarf að ná sam­komu­lagi við vátrygg­ing­ar­fé­lagið VÍS sem HD verk tryggði hjá en bygg­ing­areit­ur­inn er keyptur með kröfu á trygg­inga­fé­lagið. „Fjár­mögnun verk­efn­is­ins stendur yfir og gengur vel,“ segir Runólfur. „Við erum svona hálfn­aðir með hana.“

Þorpið vist­fé­lag mun stofna sér­stakt dótt­ur­fé­lag utan um eign­irnar á Bræðra­borg­ar­stíg 1 og 3 líkt og gert var í öðru verk­efni félags­ins, hag­kvæmu íbúða­hverfi í Gufunesi. Runólfur segir að fram­kvæmdin muni lík­lega kosta um einn millj­arð króna og að til verks­ins þurfi um 25 pró­sent eigið fé.

Deilur HD verks og VÍS hafa m.a. staðið um það hvort að allt húsið á horni Bræðra­borg­ar­stígs 1 og Vest­ur­götu eyði­lagð­ist í elds­voð­anum. Trygg­inga­fé­lagið mat við­bygg­ing­una á Vest­ur­götu að mestu heila eftir brun­ann.

Runólfur segir að horn­húsið verði allt rifið gangi hug­mynd Þorpsins vist­fé­lags eftir. Þá yrði Bræðra­borg­ar­stígur 3, þar sem gisti­heim­ili og útleiga á her­bergjum til langs tíma hefur verið stunduð síð­ustu ár, hækkað um eina hæð og end­ur­gert með báru­járns­klæðn­ingu og alda­móta­gluggum. Bæði húsin voru byggð á fyrstu árum síð­ustu aldar en var mikið breytt í áranna rás.

„Við erum að hanna þessar lóðir sem eina heild í kringum þennan mjög svo stóra og frá­bæra bak­garð,“ segir Runólfur. Nýtt horn­hús mun svo rísa þar sem bruna­rúst­irnar standa nú. „Þar þurfum við að vanda okkur sér­stak­lega gagn­vart götu­mynd­inni á Vest­ur­götu sem er mjög við­kvæm.“

Þorpið vist­fé­lag hefur til 7. jan­úar til að efna kauptil­boðið. „Það þarf auð­vitað að ganga frá þessum praktísku atriðum; trygg­inga­mál­inu, yfir­töku á lánum og greiðslu, en um leið og þau eru í höfn og við höfum tekið form­lega við eign­inni, verður það for­gangs­at­riði að byrja að taka til.“

Runólfur segir að við­brögðin við verk­efn­inu hafi verið gríð­ar­lega góð. „Við erum óvenju­legt fyr­ir­tæki á þessum mark­aði. Það sem við gerum er að leggja áherslu á sam­fé­lags­lega þætti í upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis. Við viljum búa til sam­fé­lag. Mark­miðið er að reisa þennan bygg­ing­ar­reit aftur til fyrri vegs og virð­ingar. Að gera eitt­hvað gott á þessum stað eftir þær hörm­ungar sem þarna urðu.“

Horn­húsið var á sínum tíma mik­il­vægur sam­komu­staður í hverf­inu. Í bak­arí Sveins Hjart­ar­sonar lögðu Vest­ur­bæ­ingar leið sína í ára­tugi og sömu­leiðis í nýlendu­vöru­verslun Hjartar bróður hans sem var í pakk­húsi á milli hús­anna númer 1 og 3.

Í frétta­skýr­ingu Kjarnans um sögu húss­ins kom m.a. fram að Sveinn og eig­in­kona hans Steinunn Sig­urð­ar­dóttir tóku að sér börn tveggja systra Stein­unnar eftir að þær lét­ust í spænsku veik­inni árið 1918. Eitt þess­ara fóst­ur­barna var Guð­mundur Ágústs­son sem tók við rekstri bak­arís­ins eftir and­lát Sveins. Steinunn er sögð hafa kennt honum mann­gang­inn og hann varð síðar snjall skák­maður.

Teknir í bakaríið á Bræðraborgarstígnum

Skemmti­leg saga er til af Guðmundi og þekktu orða­til­tæki í íslensku: Að taka ein­hvern í bak­aríið. „Guð­mundur hafði það til siðs að koma á ung­linga­æf­ingar hjá Tafl­fé­lagi Reykja­víkur sem voru haldnar á laug­ar­dögum og að þeim loknum bauð hann venju­lega þeim efni­leg­ustu til sín um kvöldið til að tefla,“ skrifar Benedikt Jónasson, í athuga­semd á Vís­inda­vefnum. „Ef menn fóru illa út úr viður­eignum við hann þá voru þeir teknir í bak­aríið.“

Af bak­arí­inu gæti nú tekið við hús í anda Baba Yaka. Unnur sagði svo frá því óvenju­lega nafni í Síð­deg­is­út­varp­inu í vik­unni: „Baba Yaka er upp­haf­lega sló­vensk norn sem býr út í skógi í húsi sem stendur á kjúklinga­löppum.“

Þannig hús verður þó vissu­lega ekki byggt á Bræðra­borg­ar­stígnum. Það verður mun veg­legra. En það mætti vel kalla það norna­hús.

„En hug­mynda­fræðin er sú að skapa val­kost við önnur búsetu­form sem eldra fólki bjóð­ast í dag, sagði Unnur. „Þarna geti þeir eða þær í þessu til­viki, fólk sem er á svip­aðri línu, tekið sig saman og búið sjálf­stætt og jafn­framt stutt hver aðra.“

Að sögn Unnar má segja að um „komm­únu-hugsun“ sé að ræða að ákveðnu leyti. Gert sé ráð fyrir litlum íbúðum með sjálf­stæðri búsetu en góðri sam­eign, t.d. stórum garði, leik­fimi­sal og stóru eld­húsi. Hægt verði að hafa ein­hverjar upp­á­komur í sam­eig­in­legum rýmum og svo er einnig stefnt á að opna á Bræðra­borg­ar­stígnum bæði kaffi­hús og hand­verks­búð.

Hið nýja hús á horni Bræðra­borg­ar­stígs og Vest­ur­götu mun ekki rísa alveg á næst­unni. Fyrst þarf að rífa bruna­rúst­irnar, þá þarf málið að fara í gegnum hefð­bundið skipu­lags­ferli sem tekur sinn tíma. Að því loknu geta fram­kvæmdir fyrst haf­ist. Ef allt gengur að óskum gætu fyrstu kon­urnar flutt inn eftir um þrjú ár, að sögn Unnar.

Runólfur von­ast til þess að verk­efnið muni gefa af sér út í hverfið og að húsið á horni Bræðra­borg­ar­stígs og Vest­ur­götu verði á ný sú félags­mið­stöð hverf­is­ins sem það var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár