BioNtech: Ekki draga lengur en í þrjár vikur að gefa síðari skammtinn

Líf­tækni­fyr­ir­tækið BioNtech, sem þró­aði bólu­efni gegn COVID-19 ásamt lyfja­fyr­ir­tæk­inu Pfizer, segir „engin gögn“ styðja við hug­myndir Breta og fleiri um að lengja bilið milli fyrsta og ann­ars skammts bólu­efn­is­ins.

Framleiðslu og dreifingu á bóluefni Pfizer og BioNtech seinkaði miðað við fyrstu áætlanir.
Fram­leiðslu og dreif­ingu á bólu­efni Pfizer og BioNtech seink­aði miðað við fyrstu áætl­anir. Mynd: EPA

Gefa skal seinni skammt bólu­efnis BioNtech og Pfizer innan við þremur vikum eftir þann fyrsta. Þetta hefur þýska líf­tækni­fyr­ir­tækið BioNtech ítrekað eftir að áætl­anir Breta, Dana og fleiri, um að fresta seinni skammt­inum, komust í hámæli.

Fyr­ir­tækið segir að hin gríð­ar­góða vörn bólu­efn­is­ins, sem sýnt var fram á í klínískum rann­sóknum, náist með því að gefa tvo skammta af því með 21 dags milli­bili. Ekki hafi enn verið sýnt fram á öryggi og góða virkni efn­is­ins miðað við aðrar tíma­setn­ingar.

Dönsk og bresk yfir­völd segj­ast ætla að fresta því að gefa fólki seinni skammt lyfs­ins í sex til tólf vikur eftir að það fær hinn fyrri.

Í klínískum rann­sóknum á bólu­efni Pfizer og BioNtech var sýnt fram á að lyfið veitti 95 pró­sent vörn gegn því að sýkj­ast af COVID-19. Þá var miðað við að bólu­efnið yrði gefið í tveimur skömmtum með þriggja vikna milli­bili. Sýnt þykir að fyrri skammt­ur­inn veitir ágæta vörn en ekki er vitað með neinni vissu hversu lengi hún end­ist.

Þýsk stjórn­völd eru að íhuga að fara sömu leið og Bretar og Danir. Ástæðan er sú að hið breska afbrigði veirunnar sem talið er meira smit­andi en flest önnur, er að breið­ast út. Því vilja yfir­völd hraða bólu­setn­ingu, gefa helm­ingi fleiri fyrstu spraut­una en áætl­anir gerðu ráð fyrir.

10 þús­und skammtar af bólu­efni Pfizer og BioNtech komu hingað til lands milli jóla og nýárs. Þeir dugðu til að bólu­setja um 5.000 manns.

Dregur úr ábyrgð framleiðandans

Lyfja­stofnun Evrópu hefur ítrekað í dag að mark­aðs­leyfi til bólu­setn­ingar með bólu­efni fyr­ir­tækj­anna byggi á því að það sé gefið í tveimur skömmtum með „að minnsta kosti 21 dags milli­bili“ og til að breyta því þurfi að afla fleiri rann­sókn­ar­gagna. Ef sex vikur eða lengra líður á milli skammta sé ábyrgð fram­leið­enda bólu­efn­is­ins minni en ann­ars ef eitt­hvað kemur upp á.

Lyfja- og mat­væla­stofnun Banda­ríkj­anna hefur einnig ítrekað að til að breyta til­högun bólu­setn­ingar sem lyfja­fyr­ir­tækin sjálf mæla með þurfi að gera frek­ari klínískar rann­sóknir. Breyt­ingar á ráð­legg­ingum lyfja­fyr­ir­tækj­anna gætu ógnað lýð­heilsu.

Þar sem hraði á þróun og rann­sóknum bólu­efna er hrað­ari nú en nokkru sinni fyrr eru skammta­stærðir og tíma­lengd milli skammta eitt þeirra atriða sem eiga eftir að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár