Bretar fá engan EES-samning ef þeir kjósa útgöngu úr ESB

Wolfgang Schäuble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, þver­tekur fyrir það að Bretar geti samið um aðild að EES ef þeir kjósa að ganga úr ESB. Kosið verður 23. júní. Ísland, Noregur og Liechtenstein eru einu löndin utan sam­bands­ins með aðild að EES.

Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, hefur tekið harða afstöðu í málum Bretlands kjósi þeir að yfirgefa ESB.
Wolfgang Schäuble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, hefur tekið harða afstöðu í málum Bret­lands kjósi þeir að yfir­gefa ESB. Mynd: EPA

Bretar fá engan aðgang að sam­eig­in­legum mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins kjósi þeir að yfir­gefa sam­bandið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni í næstu viku. Þetta segir Wolfgang Schäuble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, í við­tali við þýska viku­ritið Der Spiegel sem kom út á sunnu­dag. Kosið verður í Bret­landi fimmtu­dag­inn 23. júní um áfram­hald­andi veru í ESB. Frá þessu er greint á vef The Guardian.

Schäuble var spurður hvort Bretum stæði til boða að ganga í evr­ópska efna­hags­svæðið (EES) eftir útgöngu úr ESB og gera svip­aðan samn­ing og Ísland, Noregur, Liechtenstein eða Sviss hafa við sam­bandið. „Það mun ekki ganga,“ sagði hann. „Þá þyrfti landið að fylgja reglum klúbbs­ins sem það vill hætta í. Ef meiri­hluti kjós­enda í Bret­landi velur að sam­starf­inu sé slitið verður það ákvörðun gegn sam­eig­in­lega mark­að­inum. Annað hvort ertu með eða ekki.“

Ísland, Noregur og Liechtenstein eru með samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið um aðild að evr­ópska efna­hags­svæð­inu en Sviss hafa við­skipta­samn­ing við sam­bandið sem gengur mun skemur. Leið­togar í Evrópu hafa sagt báðar leiðir vera lok­aðar Bretum ef þeir kjósa að yfir­gefa sam­bandið.

Mjótt er á munum milli fylk­inga í Bret­landi. Skoð­ana­kann­anir hafa und­an­farið sýnt að ekki má miklu muna í hvora átt­ina sem er; með­al­tal síð­ustu sex skoð­ana­kanna sýna að þeir sem vilja slíta sam­starf­inu eru 52 pró­sent kjós­enda og þeir sem vilja vera áfram í ESB eru 48 pró­sent kjós­enda.

Í Bret­landi hefur þeirri hug­mynd verið velt upp að Evr­ópu­sinn­aðir þing­menn Westminster noti meiri­hluta sinn í þing­inu til þess að halda í aðgang að sam­eig­in­legum mark­aði ESB. Fyrsta og lík­leg­asta til­raunin sem þeir munu gera er að fá svip­aðan samn­ing og Ísland, Noregur og Sviss. Meg­in­stoðin í sam­eig­in­legum mark­aði ESB er hið svo­kall­aða fjór­frelsi; frelsi til flutn­inga fólks, varn­ings, þjón­ustu og fjár­magns innan evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins.

Stuðn­ings­menn þeirra sem vilja ekki halda áfram í ESB segja að það sé í Þýska­landi í hag að geta áfram stundað óhindruð við­skipti við Bretland. Bretar séu þriðji stærsta útflutn­ings­land þýskra bíla­fram­leið­enda og Bretland áfanga­staður um 7 pró­sent alls útflutn­ings frá Þýska­landi. Álits­gjafar í Þýska­landi segja hins vegar um meira að tefla en efna­hags­lega hags­muni.

„Evrópa mun virka án Bret­lands ef það kemur til þess,“ er haft eftir Schäuble í Der Spiegel. „Á ein­hverjum tíma­punkti munu Bretar átta sig á því að þeir hafi tekið ranga ákvörðun. Einn dag­inn munum við taka á móti þeim aftur, ef það er það sem þeir vilja.“

Þýski fjár­mála­ráð­herran segir ESB ekki geta úti­lokað að fleiri lönd fari sömu leið og Bretar, ef Bretar kjósa að hætta í sam­band­inu. „Hversu langt munu, til dæmis, Hol­lend­ingar ganga? Það er land sem hefur sterk sam­bönd við Bretland. Það verður mik­il­vægt fyrir Evr­ópu­sam­bandið að senda skýr skila­boð um að það sé til­búið að læra af atkvæða­greiðslu Breta,“ segir Schäuble.

Kosningabaráttan nær hámarki

Kosn­inga­bar­átta fylk­ing­anna tveggja, með og á móti útgöngu Bret­lands, fer nú að ná hámarki sínu og minnir orð­ræðan og ágrein­ings­málin um margt á þá umræðu sem var hér á landi fyrir fáeinum árum þegar umsókn­ar­ferli Íslands að ESB var í gangi. Á vef Guardian er kosn­inga­bar­áttan útskýrð á ein­faldan hátt. Þeir sem telja Bret­landi best borgið utan ESB hafa lagt árherslu á minn­ing­una um breska heims­veldið, hug­ar­far Breta á stríðs­ár­unum og Thatcher-tím­ann á átt­unda og níunda ára­tug síð­ustu aldar. Fyrir þeim er ESB ofrík­is­fullt, dýrt og ólýð­ræð­is­legt; og inn­flutn­ingur fólks í álf­una veldur þeim hug­ar­angri.

Þeir sem vilja halda sam­band­inu við ESB minna á það hversu vel Evr­ópu­sam­starf­inu hefur tek­ist að stilla til friðar í heims­álfu sem log­aði áður í deilum. Þar er einnig lögð áhersla á hversu vel fjór­frelsið hefur komið sér fyrir alla þátt­tak­endur í sam­starf­inu.

Meðal þeirra sem sem styðja áfram­hald­andi veru Bret­lands í ESB eru allir leið­togar allra stærstu stjórn­mála­flokka á Bret­landi, þar með talið David Cameron for­sæt­is­ráð­herra Íhalds­flokks­ins. Allir helstu leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna hafa einnig hvatt Breta til að kjósa áfram­hald­andi aðild og nýverið lagði Barack Obama Banda­ríkja­for­seti sitt á vog­ar­skál­arnar.

Meðal þeirra sem vilja að Bretland yfir­gefi ESB fyrir fullt og allt eru Boris Johnson, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í London og Nigel Farage, yfir­lýstur Evr­ópu­and­stæð­ingur og leið­togi sjálf­stæð­is­flokks Bret­lands. Donald Trump, hinn alræmdi for­seta­fram­bjóð­andi í Banda­ríkj­unum, hefur einnig látið hafa eftir sér að Bretar eigi að kjósa gegn Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár