Reykjanesbær tekur ekki tilboði Magma í eigið skuldabréf

Ross Beaty er starfandi stjórnarformaður Alterra Power
Ross Beaty er starf­andi stjórn­ar­for­maður Alterra Power

Bæjarráð Reykja­nes­bæjar telur ekki rétt að mæla með til­boði Alterra Power, áður Magma Energy, í skulda­bréf sem útgefið var af sænsku dótt­ur­fé­lagi Magma þegar félagið keypti hlut í HS Orku. Skulda­bréfið er nú í eigu Fag­fjár­festa­sjóðs­ins ORK en ekki er hægt að selja það án sam­þykkis Reykja­nes­bæjar. Á fundi bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar sem hald­inn var 22. des­em­ber síð­ast­lið­inn var til­boðið kynnt fyrir bæj­ar­ráði og var það nið­ur­staða þess að ekki væri rétt að mæla með því að til­boð­inu yrði tekið.

Ekki er til­greint hvers hátt til­boðið er en það er dag­sett 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans var það lít­il­lega hærra en fyrri til­boð Alterra. Tilboðið var lagt fram af fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Arctica Finance fyrir hönds Magma Energy Sweden ab., sænsks félags í eigu Alterra Power. Þetta er fjarri þvi í fyrsta sinn sem Alterra reynir að kaupa skulda­bréfið til baka. Fag­fjár­festa­sjóðnum ORK, sem er rek­inn af Rekstr­ar­fé­lagi Virð­ingar og er fjár­magn­aður af líf­eyr­is­sjóðum og fag­fjár­festum, barst einnig til­boð frá í júní síð­ast­liðnum og annað í byrjum nóv­em­ber. Öll til­boð í skulda­bréfið hafa gert ráð fyrir miklum afföllum.

Reykjanesbær seldi skuldabréfið 2012

ORK keypti skulda­bréfið af Reykja­nesbæ árið 2012 og var sölu­verðið þá sagt 6,3 millj­arða króna. Samkvæmt til­boð­inu sem lagt var fram í nóv­em­ber, og var til­kynnt um til Kaup­hallar Íslands, vildi Alterra Power greiða fyrir skulda­bréfið með nýju skulda­bréfi til tólf ára að verð­mæti 5.350 millj­ónir króna.

Það átti að vera í banda­ríkja­dölum, vextir þess að vera 5,5 pró­sent og það tryggt með veði í 21,7 pró­sent hlut í HS Orku. Alls á Alterra 66,6 pró­sent hlut í orku­fyr­ir­tæk­inu á móti félag­inu Jarð­varma slhf., sem er í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

Likt og áður sagði var nýja til­boðið, sem er dag­sett 10. des­em­ber, lít­il­lega hærra en það sem var lagt fram í nóv­em­ber. Það var þó ekki nógu hátt til að Reykja­nes­bær teldi for­svar­an­legt að breyta afstöðu sinni gagn­vart sölu á bréf­inu.

Og ORK-sjóð­ur­inn getur ekki selt bréfið án þess að óska eftir afstöðu Reykja­nes­bæjar til til­boðs­ins áður en því er tekið. Ástæðan er sú að skulda­bréfið var upp­haf­lega notað sem gjald fyrir hlut í HS Orku sem rann til Reykja­nes­bæjar þegar hlutur sveita­fé­lags­ins var seldur til Geysis Green Energy og síðar Magma Energy (nú Alterra Power). Reykja­nes­bær seldi síðan skulda­bréfið til ORK í ágúst 2012.

Í frétt sem birt­ist á vef sveit­ar­fé­lags­ins vegna þessa árið 2012 var sagt að sölu­verðið, 6,3 millj­arða króna, myndi skipt­ast þannig að ORK greiddi strax 3,5 millj­arða króna í pen­ingum og um 500 millj­ónir króna í mark­aðs­skulda­bréfum. Auk þess kom fram í sam­komu­lagi milli kaup­anda og selj­anda að loka­greiðsla ætti að fara fram í októ­ber 2017, þegar skulda­bréfið væri á gjald­daga.

Virði kröfu hefur hríðlækkað

Virði þess­arrar kröfu, sem er ein helsta eign Reykja­nes­bæjar, hefur hríð­lækkað síðan að þetta sam­komu­lag var gert.

Í árs­reikn­ingi sveit­ar­fé­lags­ins vegna árs­ins 2014 vekur end­ur­skoð­andi þess athygli á að óvissa sé um virði þeirrar lang­tíma­kröfu. Í skýr­ingum reikn­ings­ins segir að áætl­aðar eft­ir­stöðvar stölu­verðs­ins hafi verið 1.970 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. Þar kemur hins vegar fram að mikil óvissa ríki um hvert end­an­legt virði kröf­unnar sé, m.a. vegna álverðs­þró­unar. Því var krafan færð niður um 637 millj­ónir króna og eft­ir­stöðvar hennar bók­færðar á 1.333 millj­ónir króna. Í lang­tíma­á­ætlun Reykja­nes­bæjar er gert ráð fyrir að bók­fært virði kröf­unnar fáist greitt á gjald­daga þann 1. októ­ber 2017

Í grein­ingu sem KPMG gerði fyrir rúmu ári á fjár­hags­stöðu Reykja­nes­bæjar sagði að lík­lega væri erfitt að selja kröf­una nema með miklum afföllum „vegna þeirrar óvissu sem er um verð­mæti þess, enda hefur skulda­bréfið sjálft verði selt til ORK og eftir stendur krafa sem tekur mið af end­an­legu upp­gjöri skulda­bréfs­ins“.

Skelfileg skuldastaða Reykjanesbæjar

Reykja­nes­bær er eitt skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins og rekstur þess und­an­farin ár hefur verið afleitur. Á tíma­bil­inu 2003 til 2014 var A-hluti Reykja­nes­bæjar rek­inn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.

Í lok síð­asta árs skuld­aði það 41 millj­arð króna og skuld­irnar voru rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­línis í and­stöðu við lög.

Í októ­ber síð­ast­liðnum sendi sveit­ar­fé­lagið til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands þar sem sagði að nauð­syn­legt væri að það næði sam­komu­lagi við „helstu kröfu­hafa um veru­lega nið­ur­fell­ingu skulda[...]Náist ekki samn­ingar við kröfu­hafa um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu bæj­ar­fé­lags­ins og stofn­ana þess verður sam­kvæmt sveita­stjórn­ar­lögum óskað eftir því að bæj­ar­fé­lag­inu verði skipuð fjár­hags­stjórn“.

Skelfileg skuldastaða Reykjanesbæjar

Reykja­nes­bær er eitt skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins og rekstur þess und­an­farin ár hefur verið afleitur. Á tíma­bil­inu 2003 til 2014 var A-hluti Reykja­nes­bæjar rek­inn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.

Í lok síð­asta árs skuld­aði það 41 millj­arð króna og skuld­irnar voru rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­línis í and­stöðu við lög.

Í októ­ber síð­ast­liðnum sendi sveit­ar­fé­lagið til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands þar sem sagði að nauð­syn­legt væri að það næði sam­komu­lagi við „helstu kröfu­hafa um veru­lega nið­ur­fell­ingu skulda[...]Náist ekki samn­ingar við kröfu­hafa um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu bæj­ar­fé­lags­ins og stofn­ana þess verður sam­kvæmt sveita­stjórn­ar­lögum óskað eftir því að bæj­ar­fé­lag­inu verði skipuð fjár­hags­stjórn“.

Enn hefur ekki náðst sam­komu­lag við kröfu­hafa Reykja­nes­bæjar og sam­kvæmt frétt RÚV sem birt var 15. des­em­ber er enn langt í land.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár